Sveitarstjórn
Dagskrá
1.Sveitarstjórn - 450
2609005F
Fundargerðin framlögð.
2.Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 95
2610003F
Fundargerðin framlögð.
-
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 95 Tilboð í byggingu leikskólans Skýjaborgar voru opnuð 6. október 2026. Alls bárust 14 tilboð.
Að lokinni yfirferð og mati á tilboðum verður tillaga um val á hagstæðasta tilboði lögð fyrir sveitarstjórn til samþykktar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir að veita sveitarstjóra umboð til að undirrita samning um framkvæmd verksins við þann bjóðanda sem uppfyllir öll skilyrði útboðsgagna og hefur boðið lægsta verð að teknu tilliti til þeirra skilmála og matsforsendna sem þar eru tilgreind.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: GSG
3.Menningar- og markaðsnefnd - 69
2609008F
Fundargerðin framlögð.
Til máls tók: BS
4.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 69
2609006F
Fundargerðin framlögð.
-
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 69 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti merkjalýsingu fyrir Innri-Hólm L133691 og þær breytingar sem í henni felast.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir merkjalýsingu fyrir Innri-Hólm L133691 og þær breytingar sem í henni felast.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 69 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti merkjalýsingu fyrir Skorholt L133795 og þær breytingar sem í henni felast.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir merkjalýsingu fyrir Skorholt L133795 og þær breytingar sem í henni felast.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
5.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 70
2610001F
Fundargerðin framlögð.
-
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 70 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemd við að sveitarstjórn / Umhverfis- og skipulagsdeild auglýsi útboðið.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir framlögð drög útboðsgagna fyrir hreinsun rotþróa í Hvalfjarðarsveit og að hreinsunin verði boðin út á grundvelli þeirra. Umhverfis- og skipulagsdeild falið að bjóða verkefnið út.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 70 Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 þar sem ábendingar sem bárust á kynningartíma vinnslutillögu hafa eftir atvikum verið hafðar til hliðsjónar og einnig breyting á deiliskipulagi sem auglýsa á samhliða.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Melahverfi og að hún verði kynnt og auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin samþykkir einnig að deiliskipulagsbreyting fyrir Melahverfi I og II verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða breytingu á Aðalskipulagi fyrir sömu lóð.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Melahverfi og að hún verði kynnt og auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn samþykkir einnig að deiliskipulagsbreyting fyrir Melahverfi I og II verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða breytingu á Aðalskipulagi fyrir sömu lóð.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: ÞKJ -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 70 Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við framkomnar umsagnir og viðbrögð við þeim, og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun skv. 1. mgr. 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við framkomnar umsagnir og viðbrögð við þeim, og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar skv. 1. mgr. 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum. GÞS sat hjá við afgreiðslu málsins.
Til máls tók: GÞS -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 70 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir erindið í ljósi þess að erfitt er að staðsetja húsið á öðrum stað vegna aðstæðna á svæðinu, en að mati nefndarinnar er um ræða lítið hús (25 m2) sem skv. umsókninni fellur vel að landinu sem takmarkar áhrif staðsetningarinnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um umbeðna undanþágu frá skipulagsreglugerð vegna staðsetningar stöðvarhúss Þóristaðavirkjunar. Með samþykkt deiliskipulagsins, Frístundabyggð og smávirkjun í landi Þórisstaða II og Þórisstaða, dags. 29.09.2026, hefur sveitarstjórn tekið afstöðu til framkvæmdarinnar í heild og staðsetningar stöðvarhússins. Sérstakir staðhættir, einkum bratti að árgili, takmarka aðra staðsetningarkosti. Fyrirhugað staðarval miðar að því að lágmarka jarðrask og taka tillit til nálægrar frístundabyggðar. Jafnframt er húsið lítið, um 25 m² og fellur samkvæmt umsókn vel að landinu sem dregur úr áhrifum þess á ásýnd svæðisins.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
6.Velferðar- og fræðslunefnd - 15
2610006F
Fundargerðin framlögð.
Til máls tók: GSG
-
Velferðar- og fræðslunefnd - 15 Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja viðaukabeiðni á deild 5911 vegna fjárhagsaðstoðar. Erindinu vísað til samþykktar sveitarstjórnar.
Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja viðaukabeiðni á deild 04012 vegna aukins matarkostnaðar í leikskólanum Skýjaborg. Matarkostnaður hefur aukist vegna fjölgunar á börnum og starfsfólki. Einnig hefur matarverð hækkað á árinu. Erindinu vísað til samþykktar sveitarstjórnar. Bókun fundar Framlagt - ofangreindar beiðnir eru til afgreiðslu undir lið 8 á dagskrá fundarins.
7.Árshlutareikningur Hvalfjarðarsveitar janúar-ágúst 2026.
2610015
Árshlutareikningur Hvalfjarðarsveitar fyrir janúar til ágúst 2026 lagður fram til kynningar.
Fyrstu átta mánuði ársins eru málaflokkar og deildir almennt innan áætlunar tímabilsins. Heildar tekjur eru hærri en ráðgert var og rekstrar- og launakostnaður lægri. Rekstrarniðurstaða fyrstu átta mánuði ársins er 162,3 m.kr. jákvæðari en áætlun tímabilsins gerði ráð fyrir en rétt að vekja athygli á að stórir útgjaldaliðir eiga eftir að koma til gjalda á seinni hluta ársins.

Til máls tóku: BÞ, HB og ÞMJ
8.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.
2505008
Framlagðar tillögur að Viðaukum við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026 nr. 38 til 41.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 38 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 0 kr. vegna breytinga á reglugerð 1212/2015 um úrgangsmál. Breytingin felur í sér færslu
á fjárheimildum á milli deilda."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 39 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 2.000.000 kr. vegna fjárhagsaðstoðar. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."

"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 40 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 2.382.832 kr. vegna aukins matarkostnaðar í leikskólanum Skýjaborg. Breytingin kemur
til lækkunar á handbæru fé."

"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 41 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 2.350.000 kr. vegna breytingar á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar. Breytingin kemur til
lækkunar á handbæru fé."

9.Umsókn um byggingarlóðir - Urðarmelur 1,2 og 6
2609037
Framlagðar umsóknir um lóðirnar Urðarmel 1, Urðarmel 2 og Urðarmel 6.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir að úthluta GV byggir ehf. lóðunum Urðarmel 1, 2 og 6 í Melahverfi samkvæmt umsókn dags. 24.09.2026. Lóðirnar voru á lista yfir lausar lóðir til umsóknar og uppfyllti umsóknin skilyrði úthlutunar. Úthlutunin er í samræmi við reglur um lóðaúthlutun í Hvalfjarðarsveit og skilmála deiliskipulags Melahverfis III. Um greiðslu gatnagerðargjalda og framkvæmdafresti fer samkvæmt reglum og gjaldskrá sveitarfélagsins. Byggingarfulltrúa er falið að tilkynna umsækjanda niðurstöðuna og skilmála úthlutunarinnar skriflega.
Sveitarstjórn samþykkir að úthluta umsækjanda þremur lóðum með vísan til heimildar í 6. gr. reglna um lóðaúthlutun í Hvalfjarðarsveit. Við ákvörðunina er litið til þess að lóðirnar hafa verið auglýstar lausar til umsóknar og engar aðrar umsóknir liggja fyrir um þær.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: BÞ

10.Erindi til sveitarstjórnar.
2609023
Framlagt erindi frá Garða- og Saurbæjarprestakalli í tilefni af 70 ára vígsluafmæli kirkjunnar árið 2027.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að styrkja Garða- og Saurbæjarprestakall vegna framkominnar umsóknar um kr. 5.000.000 á árinu 2026 og gerður verði viðauki vegna þessa á yfirstandandi ári."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: HB

11.Beiðni um styrk vegna starfsmannaferðar í Heiðarskóla 2027.
2610006
Framlagt erindi frá skipuleggjendum starfsmannaferðar í Heiðarskóla 2027.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn samþykkir að veita styrk til ferðarinnar að fjárhæð kr. 30.000 á hvern starfsmann sem um ræðir í framkominni umsókn. Það er sama styrkfjárhæð og veitt hefur verið vegna annarra sambærilegra fræðsluferða starfsfólks Hvalfjarðarsveitar. Gert verði ráð fyrir styrkveitingunni í fjárhagsáætlun ársins 2027."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
“Sveitarstjórn samþykkir að veita styrk til ferðarinnar að fjárhæð kr. 30.000 á hvern starfsmann sem um ræðir í framkominni umsókn. Það er sama styrkfjárhæð og veitt hefur verið vegna annarra sambærilegra fræðsluferða starfsfólks Hvalfjarðarsveitar. Gert verði ráð fyrir styrkveitingunni í fjárhagsáætlun ársins 2027."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
12.Beiðni um fjárstyrk vegna lokaferðar 9. - 10. bekkjar Heiðarskóla 2027.
2610027
Erindi frá Nemendafélagi Heiðarskóla vegna útskriftarferðar 2027.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fresta afgreiðslu og í millitíðinni er starfsmönnum falið að ræða við skólastjórnendur og fulltrúa foreldra áður en erindið verður afgreitt"
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum. ÞMJ vék af fundi við afgreiðlu málsins.

13.Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2027.
2610004
Framlagt erindi frá Kvennaathvarfinu um rekstrarstyrk fyrir árið 2027.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að styrkja Kvennaathvarfið um kr. 200.000 á árinu 2027 og að gert verði ráð fyrir þeim fjármunum í fjárhagsáætlun sem nú er í vinnslu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að styrkja Kvennaathvarfið um kr. 200.000 á árinu 2027 og að gert verði ráð fyrir þeim fjármunum í fjárhagsáætlun sem nú er í vinnslu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
14.Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta árið 2027.
2610005
Framlagt erindi frá Stígamótum með beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta árið 2027.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að styrkja Stígamót um kr. 100.000 á árinu 2027 og að gert verði ráð fyrir þeim fjármunum í fjárhagsáætlun sem nú er í vinnslu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að styrkja Stígamót um kr. 100.000 á árinu 2027 og að gert verði ráð fyrir þeim fjármunum í fjárhagsáætlun sem nú er í vinnslu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
15.Beiðni um styrk vegna jólaúthlutunar Mæðrastyrksnefndar Akraness.
2610010
Framlegt erindi frá Mæðrastyrksnefnd Akraness.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að styrkja jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness um kr. 250.000 en nefndin þjónar Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
"Sveitarstjórn samþykkir að styrkja jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness um kr. 250.000 en nefndin þjónar Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
16.Beiðni um styrk við nýjan hjálparsíma samtaka um karlaathvarf.
2610016
Framlagt erindi frá Samtökum um karlaathvarf.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir beiðni um styrk frá Samtökum um karlaathvarf um kr. 50.000 á árinu 2027 og að gert verði ráð fyrir þeim fjármunum í fjárhagsáætlun sem nú er í vinnslu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir beiðni um styrk frá Samtökum um karlaathvarf um kr. 50.000 á árinu 2027 og að gert verði ráð fyrir þeim fjármunum í fjárhagsáætlun sem nú er í vinnslu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
17.Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga.
2610017
Framlagt fundarboð ásamt fylgigögnum varðandi stofnfund Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga. Sveitarfélög sem hafa verulega beina hagsmuni af landbúnaði geta gerst stofnaðilar að samtökunum. Við mat á því skal meðal annars líta til umfangs landbúnaðarstarfsemi innan sveitarfélagsins, hlutfalls starfa í landbúnaði og tengdum greinum, sem og annarra þátta sem sýna fram á verulega hagsmuni sveitarfélagsins af málefnum landbúnaðar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir aðild Hvalfjarðarsveitar sem stofnaðila að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga, enda liggja fyrir verulegir hagsmunir sveitarfélagsins af landbúnaði og tengdri starfsemi. Gert verði ráð fyrir árgjaldi til samtakanna í fjárhagsáætlun ársins 2027 að upphæð kr. 150.000,-"
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: BÞ
"Sveitarstjórn samþykkir aðild Hvalfjarðarsveitar sem stofnaðila að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga, enda liggja fyrir verulegir hagsmunir sveitarfélagsins af landbúnaði og tengdri starfsemi. Gert verði ráð fyrir árgjaldi til samtakanna í fjárhagsáætlun ársins 2027 að upphæð kr. 150.000,-"
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: BÞ
18.Lyngmelur 2 - umsagnarbeiðni - gistileyfi í flokki II - G.
2610022
Framlagt erindi frá Sýslumanninum á Vesturlandi - umsagnarbeiðni.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Samkvæmt Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 er atvinnustarfsemi í íbúðabyggð óheimil nema hún sé sérstaklega heimiluð í aðalskipulagi og eftir atvikum deiliskipulagi. Í deiliskipulagi Melahverfis I og II er lóðin Lyngmelur 2 skilgreind sem íbúðarlóð og þar er ekki veitt sérstök heimild til gistireksturs.
Sveitarstjórn veitir því neikvæða umsögn um umsókn um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II við Lyngmel 2 þar sem fyrirhuguð starfsemi samræmist ekki gildandi skipulagsheimildum.“

19.Kalastaðir - umsagnarbeiðni - gistileyfi í flokki II - H.
2610025
Framlagt erindi frá Sýslumanninum á Vesturlandi - umsagnarbeiðni.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Frístundahúsið og gistihúsin sem umsóknin tekur til eru innan frístundabyggðar F30 samkvæmt Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020 - 2032. Samkvæmt skilmálum aðalskipulagsins er atvinnurekstur almennt óheimill á frístundasvæðum. Heimild til slíkrar starfsemi er háð mati á staðbundnum aðstæðum, samþykki landeiganda og allra lóðarhafa á svæðinu og að aðgengi valdi sem minnstri truflun. Jafnframt skal gert ráð fyrir starfseminni í gildandi deiliskipulagi.
Sveitarstjórn veitir því neikvæða umsögn um umsókn um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II að Kalastöðum þar sem fyrirhuguð starfsemi samræmist ekki gildandi skipulagsheimildum.“

20.Ósk um endurgjaldslaus afnot af Miðgarði.
2610024
Framlagt erindi frá Félagi eldri borgara í Hvalfjarðarsveit.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Félagi eldri borgara í Hvalfjarðarsveit endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði mánudaginn 26. október nk. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til menningarmála."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Félagi eldri borgara í Hvalfjarðarsveit endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði mánudaginn 26. október nk. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til menningarmála."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
21.Frumvörp, reglur og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026.
2601036
Frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum nr. 90-1996 og fleiri lögum(skipulagsbreytingar hjá lögreglu).
Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138-2011 (fjöldi fulltúa í sveitarstjórn) - umsagnarbeiðni.
Tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá - umsagnarbeiðni.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun - umsagnarbeiðni.
Frumvarp til loftslagslaga - umsagnarbeiðni.

Hvalfjarðarsveit hefur sent inn umsögn vegna endurskoðunar laga um snjóflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá, sjá í fylgigögnum fundargerðar.
Varðandi framkomið frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum nr. 90-1996 og fleiri lögum(skipulagsbreytingar hjá lögreglu) er lögð fram tillaga að umsögn sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar sem er hér í fylgigögnum fundargerðar.
Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu að umsögn um framkomið frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum með 7 atkvæðum.
Jafnframt er sveitarstjóra falið að senda umsögn Hvalfjarðarsveitar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun.

22.Tillaga að flokkun sjö vindorkuverkefna - Tillaga verkefnisstjórnar.
2610011
Framlagt erindi frá Umhverfis- og orkustofnun.
23.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Samband íslenskra sveitarfélaga.
2602001
Framlagðar fundargerðir frá fundum nr. 1002,1003 og 1004.
24.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Heilbrigðisnefnd Vesturlands.
2602042
Framlögð fundargerð 204. fundar.
25.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Faxaflóahafnir sf.
2602017
Framlögð fundargerð 271. fundar.
Fundi slitið - kl. 16:34.
Mál nr. 2610006F, fundargerð velferðar- og fræðslunefndar frá 15. fundi nefndarinnar sem haldinn var 20.október sl. Mál verði nr. 6 á dagskrá verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0
Mál nr. 2610027, Beiðni um fjárstyrk vegna lokaferðar 9. - 10. bekkjar Heiðarskóla 2027. Mál verði nr. 12 á dagskrá verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0