Persónulegur ráðgjafi og tilsjón
Tilsjónarmaður
Í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga kemur fram að Félagsmálanefnd skuli sjá til þess að börn fái notið hollra og þroskavænlegra uppvaxtarskilyrða, t.d. leikskóla og tómstundaiðju. Einnig er eitt af hlutverkum félagslegrar heimaþjónustu að veita félagslegan stuðning. Hlutverk tilsjónarmanns er að rjúfa félagslega einangrun umsækjanda og aðstoða hann við að taka þátt í félagslegum athöfnum. Þetta úrræði er veitt í eðlilegum tengslum við önnur úrræði félagsþjónustu
Einstaklingar með lögheimili í Hvalfjarðarsveit geta sótt um tilsjónarmann skv. lögum um félagsþjónustu í sveitarfélögun. Umsóknin skal rituð á sérstakt umsóknareyðublað þar sem fram koma upplýsingar um umsækjanda og ástæðu umsóknar.
Persónulegur ráðgjafi
Persónulegur ráðgjafi samkvæmt barnaverndarlögum er veittur sem hluti af úrræðum barnaverndaryfirvalda og skv. samningi þar að lútandi.
Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri, bæði í tölvupósti og í síma 433 8500.