Fara í efni

Heimsending matar

Heimsendur matur er í boði fyrir þá sem ekki geta sjálfir séð um matseld í skemmri eða lengri tíma.

Fyrir þá íbúa sem búa næst Akranesi er matur sendur frá Dvalarheimilinu Höfða, en annars staðar í sveitarfélaginu kemur maturinn frá mötuneyti Heiðarskóla.

Sótt er um heimsendingu matar til deildarstjóra Velferðar- og fræðslunefndar, bæði í
tölvupósti og í síma 433-8500.

Einnig er hægt að fylla út rafræna umsókn um heimsendan mat hér.