Fara í efni

Símenntun á Vesturlandi

Símenntun á Vesturlandi er ein níu símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni, en hún er sjálfseignarstofnun og var stofnuð 19. febrúar 1999. Starfsstöðvar eru í Borgarnesi og á Akranesi. Símenntun á Vesturlandi er með þjónustusamning við mennta- og menningarmálaráðuneytið, en miðstöðin fær árlega framlag til að standa straum að hluta launakostnaðar og rekstri húsnæðis, en Símenntun stendur að rekstri þriggja starfsstöðva á Vesturlandi.

Símenntun á Vesturlandi þjónustar einnig fjarnema í háskólanámi, en þeir geta tekið próf í heimabyggð. Þjónustusamning Símenntunar við mennta- og menningarmálaráðuneytið má sjá á heimasíðu Símenntunar. Stofnaðilar að Símenntunar eru 34 talsins, sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir á svæðinu.

Starfsemi Símenntunar á Vesturlandi tekur mið af framhaldsfræðslulögum en þau tóku gildi 1. október 2010.

Markmið með starfsemi Símenntunar á Vesturlandi er að efla og styrkja íslenskt atvinnulíf og samfélag með endur- og símenntun sem tekur mið af þörfum atvinnulífs og einstaklinga. Sérstaklega skal stofnunin huga að þörfum íbúa á Vesturlandi í þessu sambandi.

Hlutverk Símenntunar á Vesturlandi er að auka þekkingu og stuðla að bættum búsetuskilyrðum á Vesturlandi með því að greina og svara menntunarþörf og hvetja til símenntunar í samvinnu við atvinnulíf og íbúa svæðisins. Símenntun á Vesturlandi er miðja þróunar og miðlunar þekkingar fullorðinna á svæðinu og fyrsti kostur íbúa og atvinnulífs í öflun hennar.

Símenntun á Vesturlandi tengir saman þá sem vinna að miðlun og öflun þekkingar fullorðinna á svæðinu og stendur fyrir ýmsu námsframboði í fullorðinsfræðslu, auk náms- og starfsráðgjafar og ráðgjafar og greiningar á fræðsluþörf innan fyrirtækja og stofnana.

Heimasíða Símenntunar á Vesturlandi