Fara í efni

Verklag um hreinsunarátak í Hvalfjarðarsveit

Upphaf hreinsunarátaks er ákveðið í Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd ár hvert.

_________________________________________________________________________

Þéttbýli:

Gámar eru staðsettir í Melahverfi, Hlíðarbæ og á Innesi.

Eftirfarandi gámar eru í boði:

  • Gámur fyrir timbur
  • Gámur fyrir járn og dekk
  • Gámur fyrir gróðurúrgang
  • Gámur fyrir almennan (óflokkaðan) úrgang til urðunar / *Óheimilt er að setja spilliefni, raftæki, rúmdýnur o.þ.h. 

Gámar verða í boði allt að 2 vikur samfellt. 

Röng flokkun í gáma veldur viðbótarkostnaði.
Íbúar eru hvattir til að taka þátt og nýta sér þjónustu sveitarfélagsins.

___________________________________________________________________________

Dreifbýli:

Tímabil hreinsunarátaks er frá 1. júní til 31. ágúst ár hvert.
Íbúar í dreifbýli geta pantað samtals 2 gáma í 2 sólarhringa á skrifstofu sveitarfélagsins.

Eftirfarandi gámar eru í boði:

  •    Gámur fyrir timbur
  •    Gámur fyrir járn og dekk
  •    Gámur fyrir gróðurúrgang
  •    Gámur fyrir almennan (óflokkaðan) úrgang til urðunar / *Óheimilt er að setja spilliefni, raftæki, rúmdýnur o.þ.h.

Sveitarfélagið greiðir fyrir flutning og leigu fyrir gámana, en umsækjandi greiðir fyrir losun og förgun, sbr. gjaldskrá þjónustufyrirtækisins.
Ef óskað er eftir að gámarnir standi lengur en reglur sveitarfélagsins gera  ráð fyrir er það á kostnað umsækjanda.
Röng flokkun í gáma veldur viðbótarkostnaði sem fellur á umsækjanda.
Íbúar eru hvattir til að taka þátt og nýta sér þjónustu sveitarfélagsins.

_____________________________________________________________________________

Frístundabyggðir:

Tímabil hreinsunarátaks er frá 1. júní til  31. ágúst ár hvert. Gámarnir eru í boði 11 daga samfleytt innan tímabilsins og tímasetninguna þarf að ákvarða í samráði við fulltrúa sveitafélagsins.
Forsvarsmenn frístundahverfa, sem falla undir reglur sveitarfélagsins um gámavelli, geta pantað gáma á skrifstofu sveitarfélagsins.

Eftirfarandi gámar eru í boði:

  •    Gámur fyrir timbur
  •    Gámur fyrir járn
  •    Gámur fyrir gróðurúrgang

Sveitarfélagið greiðir fyrir flutning og leigu fyrir gámana, en umsækjandi greiðir fyrir losun og förgun, sbr. gjaldskrá þjónustufyrirtækisins.
Ef óskað er eftir að gámarnir standi  lengur en reglur sveitarfélagsins gera ráð fyrir er það á kostnað  viðkomandi sumarhúsafélags.
Röng flokkun í gáma veldur viðbótarkostnaði sem fellur á viðkomandi sumarhúsafélag.
Frístundahúsaeigendur eru hvattir til að taka þátt og nýta sér þjónustu sveitarfélagsins.