Bókasafn Akraness
Í gildi er samstarfssamningur á milli Hvalfjarðarsveitar og Akraneskaupstaðar um rekstur Bókasafns Akraness. Samningurinn felur í sér að Bókasafn Akraness þjónustar einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir í Hvalfjarðarsveit jafnt sem á Akranesi og tryggir íbúum Hvalfjarðarsveitar aðgengi að safnkosti og þjónustu safnsins.
Hvalfjarðarsveit greiðir 10% af heildarrekstrarkostnaði safnsins auk 5% álags vegna umsýslukostnaðar. Samningurinn tók gildi frá 1. janúar 2026 og er ótímabundinn.
Bókasafn Akraness veitir metnaðarfulla þjónustu árið um kring og tryggir samningurinn meðal annars að háskólanemar í Hvalfjarðarsveit fái aðgang að Svövusal allan sólarhringinn án endurgjalds, eldri borgarar og þeir sem ekki komast á safnið geta nýtt sér heimsendingu bóka með aðstoð starfsfólks Hvalfjarðarsveitar og nemendur í 4. bekk fá boð á safnkynningu. Einnig fara fram kynningar á sumarlestri fyrir grunnskólanema, reglulegar leikskólaheimsóknir og jólasögustundir í boði fyrir íbúa beggja sveitarfélaga. Börn úr Hvalfjarðarsveit geta dvalið á bókasafninu eftir skóla þar til frístundastarf hefst.
Safnið býður einnig upp á listsýningar, fjölbreyttar smiðjur og menningarviðburði yfir árið. Öll ný verkefni safnsins ná jafnframt til íbúa Hvalfjarðarsveitar.