Fara í efni

Félagsleg ráðgjöf

Starfsfólk Félagsþjónustu í  Hvalfjarðarsveit veitir félagslega ráðgjöf til einstaklinga og fjölskyldna í sveitarfélaginu. Félagsleg ráðgjöf getur staðið ein eða verið í tengslum við önnur úrræði félagsþjónustu.

Markmið þjónustunnar er að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál annars vegar og stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda hins vegar. Unnið er samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Félagsleg ráðgjöf tekur m.a. til ráðgjafar á sviði fjármála, húsnæðismála, uppeldismála, skilnaðarmála, þar með talinna forsjár- og umgengnismála, ættleiðingarmála o.fl. Henni skal ætíð beitt í eðlilegu samhengi við aðra aðstoð og í samvinnu við aðra aðila sem bjóða upp á slíka þjónustu, svo sem skóla, sýslumenn og heilsugæslustöðvar, eftir því sem við á.

Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri bæði í tölvupósti og í síma 433 8500.