Fara í efni

Heimagreiðslur

Allir foreldrar og forráðamenn barna geta sótt um heimagreiðslur frá lokum fæðingarorlofs þar til barn hefur leikskólavist eða þegar barn nær 18 mánaða aldri.
Hámarksupphæð heimagreiðslu er kr. 45.000.- á mánuði fyrir hvert barn.
Heimagreiðslum er ætlað að brúa það tímabil sem ekki fæst vistun fyrir barn í leikskóla.
Upphæðina skal endurskoða í desember ár hvert.
Heimagreiðslur til foreldra eru skattfrjálsar en framtalsskyldar.

Reglur um Heimagreiðslur

Umsókn um heimagreiðslur