Fara í efni

Velferðar- og fræðslunefnd

15. fundur 20. október 2026 kl. 15:30 - 19:30 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Guðrún Sigríður Gísladóttir formaður
  • Ásta Jóna Ásmundsdóttir Varamaður
  • Valborg Ragnarsdóttir aðalmaður
  • Vignir Már Sigurjónsson Varamaður
  • Diljá Marín Jónsdóttir áheyrnafulltrúi
  • Sigurbjörg Friðriksdóttir áheyrnafulltrúi
  • Anna Karen Hafliðadóttir áheyrnafulltrúi
  • Katrín Rós Sigvaldadóttir áheyrnafulltrúi
Starfsmenn
  • Eyrún Jóna Reynisdóttir embættismaður
  • Svala Ýr Smáradóttir embættismaður
  • Andrea Ýr Arnarsdóttir embættismaður
  • Anna Margrét Tómasdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Andrea Ýr Arnarsdóttir Verkefnastjóri Velferðar- og fræðsludeildar
Dagskrá
Arney Þyrí Guðjónsdóttir boðaði forföll en ekki fékkst varamaður í hennar stað.

Vignir Már Sigurjónsson mætti til fundar kl. 17:00 sem varamaður fyrir Sigurð Pétur Svanbergsson.

Anna Karen Hafliðadóttir vék af fundi kl. 17:31.

Leikskólastjóri, skólastjóri og áheyrnarfulltrúar sátu undir lið nr. 2, 3, 6, 7, 8, 9 og 10.

1.Fjárhagsáætlun velferðar- og fræðslunefnar 2027

2609011

Fjárhagsáætlun velferðar- og fræðslunefndar til umræðu. Guðrún Guðmundsdóttir, fjármálastjóri kemur inn á fundinn undir þessum lið.
Guðrún Guðmundsdóttir, fjáramálastjóri kom undir þessum lið.

Velferðar- og fræðslunefnd þakkar Guðrúnu fyrir yfirferðina. Farið var yfir áætlun fyrir rekstur málaflokka hjá Velferðar- og fræðsludeild og voru umræður um málin.

2.Skýjaborg - fjárhagsáætlun 2027

2609010

Fjárhagsáætlun Skýjaborgar til umræðu.
Guðrún Guðmundsdóttir, fjáramálastjóri kom undir þessum lið.

Velferðar- og fræðslunefnd þakkar Guðrúnu og Eyrúnu Jónu fyrir yfirferðina.

Velferðar- og fræðsludeild er falið að vinna áfram að beiðnum leikskólastjóra í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027, í samstarfi við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA).

3.Heiðarskóli - fjárhagsáætlun 2027.

2610020

Fjárhagsáætlun Heiðarskóla til umræðu.
Guðrún Guðmundsdóttir, fjáramálastjóri kom undir þessum lið.

Velferðar- og fræðslunefnd þakkar Guðrúnu og Önnu Margréti fyrir yfirferðina.

4.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.

2505008

Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun á deild 5911 - Fjárhagsaðstoð fyrir árið 2026. Þörf fyrir fjárhagsaðstoð hefur reynst meiri en áætlað var og því er fyrirséð að fjárheimildir deildarinnar dugi ekki til að mæta útgjöldum ársins.

Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja viðaukabeiðni á deild 5911 vegna fjárhagsaðstoðar. Erindinu vísað til samþykktar sveitarstjórnar.

Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja viðaukabeiðni á deild 04012 vegna aukins matarkostnaðar í leikskólanum Skýjaborg. Matarkostnaður hefur aukist vegna fjölgunar á börnum og starfsfólki. Einnig hefur matarverð hækkað á árinu. Erindinu vísað til samþykktar sveitarstjórnar.

5.Trúnaðarmál Velferðar- og fræðslunefndar

2504003

Trúnaðarmál tekin fyrir.
Trúnaðarmál tekin fyrir í Velferðar- og fræðslunefnd.

6.Starfsáætlun Skýjaborgar 2026-2027

2608007

Velferðar- og fræðslunefnd þakkar Eyrúnu Jónu fyrir yfirferðina. Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir starfsáætlun Skýjaborgar 2026-2027. Nefndin hvetur alla forráðamenn barna og aðra hagaðila að kynna sé starfsáætlunina.

7.Starfsáætlun Heiðarskóla 2026-2027

2610023

Velferðar- og fræðslunefnd þakkar Önnu Margréti fyrir yfirferðina. Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir starfsáætlun Heiðarskóla 2026-2027. Nefndin hvetur alla forráðamenn barna og aðra hagaðila að kynna sé starfsáætlunina.

8.Fundargerðir skólaráðs

2309030

Fundargerð skólaráðs frá fundir þeirra 1.10.2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Sameiginlegur fundur Ungmennaráðs og sveitarstjórnar.

2609014

Á fund sveitarstjórnar þann 29. september sl. mættu fulltrúar Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar þau Anton Teitur Ottesen formaður, Hrafn Sölvi Vignisson, Valgarður Orri Egilsson, Díana Ingileif Ottesen og Veronika Jara Heimisdóttir.
Velferðar- og fræðslunefnd fagnar framtaki ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar og horfir með tilhlökkun til samstarfs við ráðið á kjörtímabilinu.

Velferðar- og fræðslunefnd tekur jákvætt í tillögur ungmennaráðs og telur mikilvægt að fjármagn til að halda ungmennaþing verði tryggt í fjárhagsáætlun ársins 2027. Ungmennaþingið er liður í að viðhalda stöðu sveitarfélagsins sem barnvæns sveitarfélags samkvæmt viðmiðum UNICEF.

10.Barnamenningarhátíð

2405029

Barnamenningarhátíð Vesturlands er í fullum gangi og stendur yfir til 31. október. Boðið er upp á fjölbreytt verkefni og viðburði fyrir börn og fjölskyldur víðs vegar um Vesturland.
Velferðar- og fræðslunefnd lýsir yfir ánægju með þá fjölbreyttu og metnaðarfullu viðburði og verkefni sem fara fram í sveitarfélaginu og á Vesturlandi öllu í tilefni af Barnamenningarhátíð Vesturlands. Nefndin hvetur börn og fjölskyldur til að taka virkan þátt í dagskrá hátíðarinnar.

11.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg

2509011

Farið yfir verkstöðu íþróttahússins, næstu skref og önnur verkefni tengd Heiðarborg.
Farið var yfir stöðu framkvæmda við Heiðarborg og tafir á verklokum. Samþykkt verklokadagsetning var 3. október 2026. Helstu ástæður tafanna eru ólokin verk og athugasemdir við brunavarnir, eldvarnarhurðir og ófullnægjandi gögn, sem hafa komið í veg fyrir samþykkta öryggisúttekt og heimild til notkunar mannvirkisins. Verkkaupi hefur ítrekað óskað eftir úrbótum og áskilið sér rétt til dagsekta samkvæmt verksamningi. Unnið er að lausn þeirra atriða sem út af standa.

Kynnt voru drög að teikningum af eldri hluta Heiðarborgar og fyrirhugaðri uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttri starfsemi fyrir íbúa á öllum aldri. Farið var yfir stöðu verkefnisins og næstu skref í undirbúningi og þróun samfélagsmiðstöðvarinnar.

Á fundi sveitarstjórnar nr. 449 var samþykkt að fela velferðar- og fræðsludeild að þróa og útfæra tillögu að heilsupassa í Heiðarborg fyrir starfsfólk sveitarfélagsins. Málinu var vísað til umfjöllunar í velferðar- og fræðslunefnd. Umræður fóru fram um málið og er verkefnastjóra falið að vinna það áfram í samræmi við umræður á fundinum.

12.Öldungaráð

2305056

Fundargerð 8. fundar Öldungaráðs sem fram fór þann 12. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

Umræður fóru fram um mál sem tekin voru fyrir á öldungaráðsfundi. Velferðar- og fræðslunefnd vekur athygli sveitarstjórnar á dagskrálið 3 og 5 sem beinist að sveitarstjórn.

13.Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 382018 (ýmsar breytingar)

Fundi slitið - kl. 19:30.

Efni síðunnar