Mannvirkja- og framkvæmdanefnd
Dagskrá
1.Krossland - Opin svæði leiksvæði.
2409033
Krossland leiksvæði.
Lagt fram til kynningar.
2.Íþróttahús - Heiðarborg
2001042
Verkstaða íþróttahússins við Heiðarborg.
Farið var yfir stöðu framkvæmda við Heiðarborg og tafir á verklokum. Samþykkt verklokadagsetning var 3. október 2026.
Helstu ástæður tafanna eru ólokin verk og athugasemdir við brunavarnir, eldvarnarhurðir og ófullnægjandi gögn, sem hafa komið í veg fyrir samþykkta öryggisúttekt og heimild til notkunar mannvirkisins.
Verkkaupi hefur ítrekað óskað eftir úrbótum og áskilið sér rétt til dagsekta samkvæmt verksamningi. Unnið er að lausn þeirra atriða sem út af standa.

3.Leikskólahúsnæði - Skýjaborg
2202016
Útboð leikskólans Skýjaborgar.
Tilboð í byggingu leikskólans Skýjaborgar voru opnuð 6. október 2026. Alls bárust 14 tilboð.
Að lokinni yfirferð og mati á tilboðum verður tillaga um val á hagstæðasta tilboði lögð fyrir sveitarstjórn til samþykktar.
Að lokinni yfirferð og mati á tilboðum verður tillaga um val á hagstæðasta tilboði lögð fyrir sveitarstjórn til samþykktar.
4.Viðhalds- og framkvæmdaáætlun 2027-2030
2610007
Lögð fram gildandi framkvæmdaáætlun 2026-2029 með hliðsjón af áherslum fyrir næsta ár 2027 og þriggja ára áætlun fram til ársins 2030.
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða viðhalds- og framkvæmdaáætlun fyrir 2027-2030 til fyrri umræðu um fjárhagsáætlunargerð sveitastjórnar.
Fundi slitið - kl. 16:30.