Fara í efni

Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd

70. fundur 15. október 2026 kl. 15:30 - 17:10 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Bjarki Borgdal Magnússon formaður
  • Einar Þórarinsson varaformaður
  • Ása Hólmarsdóttir aðalmaður
  • Þóra Margrét Júlíusdóttir aðalmaður
  • Erna Elvarsdóttir Varamaður
Starfsmenn
  • Jökull Helgason embættismaður
  • Helga Harðardóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Jökull Helgason Deildarstjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar
Dagskrá
Erna kom inn á fund undir lið nr. 5.

1.Rotþróarhreinsun - Útboð 2026

2602057

Núgildandi samningur um hreinsun rotþróa í Hvalfjarðarsveit rennur út í lok árs 2026. Unnið hefur verið að undirbúningi útboðs vegna þjónustunnar fyrir næsta samningstímabil í samvinnu við Fjársýslu Ríkisins.



Núgildandi samningur um rotþróarhreinsun var boðinn út fyrir tímabilið 2020-2024 með ákvæði um framlengingu að samningstíma loknum sem var til 31. desember 2024. Samningur var svo framlengdur í samræmi við ákvæði þar um og gildir hann nú til loka árs 2026. Hreinsun rotþróa er framkvæmd þriðja hvert ár fyrir heimili, frístundahús og stofnanir í sveitarfélaginu.

Í kortasjá á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar má sjá skiptingu hreinsunarsvæða í svæði 1, 2 og 3.

Drög að útboðsgögnum eru lögð fram. Þar kemur m.a. fram að um sé að ræða um 700 rotþrær.

Samningstími er 4 - 6 ár, en heimilt er að framlengja samninginn 2 sinnum um 1 ár í senn.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemd við að sveitarstjórn / Umhverfis- og skipulagsdeild auglýsi útboðið.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.

2.Melahverfi I og II - Aðal- og deiliskipulagsbreyting - Leikskólalóð

2606009

Melahverfi I og II - Aðal- og deiliskipulagsbreyting - Leikskólalóð.



Á 64. fundi Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar þann 2.7.2026 samþykkti nefndin að auglýsa skipulagslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir leikskólalóð í Melahverfi, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fram kom í afgreiðslu nefndarinnar að deiliskipulagsbreyting fyrir Melahverfi I og II verði auglýst samhliða á síðari stigum skv. bókun fundar sveitarstjórnar 25. júní s.l.

Á 447. fundi sveitarstjórnar þann 9.7.2026 staðfesti sveitarstjórn afgreiðslu USNL-nefndar.

Skipulagslýsingin var auglýst í Skipulagsgátt frá 22.07.2026 - 12.08.2026 og bárust 5 umsagnir þ.e. frá Vegagerðinni, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun ásamt Náttúruverndarstofnun.



Á 66. fundi Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar þann 20.8.2026 samþykkti nefndin að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir reit S13 í Melahverfi á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Á 449. fundi sveitarstjórnar þann 4.9.2026 staðfesti sveitarstjórn afgreiðslu USNL-nefndar.

Var tillagan og forsendur hennar kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum í Skipulagsgátt frá 11.09.2026 - 2.10.2026 og bárust 7 umsangir þ.e. frá Minjastofnun Íslands, Náttúruverndarstofnun, eiganda og íbúa að Hagamel 13, Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, Vegagerðinni, Náttúrufræðistofnun og Landi og skógi.

Kynningarfundur (íbúafundur) var haldinn í Stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar þann 23.09.2026 þar sem kynnt var auglýst tillaga að breyttu aðalskipulagi fyrir reit S13 í Melahverfi vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar nýs leikskóla og vegna nýs aðkomuvegar að svæðinu.



Fyrir liggur tillaga að breyttu aðalskipulagi og tillaga að deiliskipulagi vegna áforma um byggingu nýs leikskóla í Melahverfi þar sem eftir atvikum hefur verið tekið tillit til ábendinga og athugasemda sem fram hafa komið í Skipulagsgátt á auglýsingartíma vinnslutillögunnar.
Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 þar sem ábendingar sem bárust á kynningartíma vinnslutillögu hafa eftir atvikum verið hafðar til hliðsjónar og einnig breyting á deiliskipulagi sem auglýsa á samhliða.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Melahverfi og að hún verði kynnt og auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin samþykkir einnig að deiliskipulagsbreyting fyrir Melahverfi I og II verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða breytingu á Aðalskipulagi fyrir sömu lóð.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

3.Narfabakki - Deiliskipulagsbreyting

2608010

Áform eru um uppsetningu allt að sex vindmylla sem verða um 10 - 15 m að hæð miðað við spaða í hæstu stöðu, fyrir raforkuframleiðslu til eigin nota á jörðinni Narfabakka.

Samtals allt að 90 kW uppsett afl.

Öryggissvæði vindmylla er 1,5 x hæð þeirra og verður alfarið innan lóðar 7 skv. deiliskipulagi svæðisins.

Vindmyllur verða ekki staðsettar nær öðrum mannvirkjum en sem nemur fjórfaldri hæð þeirra miðað við spaða í hæstu stöðu.



Á 65. fundi sínum þann 16.07.2026 samþykkti Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd fyrir sitt leyti að deiliskipulagstillaga fyrir Narfabakka yrði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Á 448. fundi sínum þann 13.08.2026 samþykkti sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar afgreiðslu USNL-nefndar.



Í inngangi málsins hjá USNL-nefnd kom m.a. eftirfarandi fram:

Lögð fram breyting á deiliskipulagi fyrir Narfabakka. Í gildi er deiliskipulag fyrir Narfabakka í Hvalfjarðarsveit sem tók gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þann 16. ágúst 2024. Beiðni er um breytingu á uppdrætti og greinargerð skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Áform eru um uppsetningu vindmylla fyrir raforkuframleiðslu til eigin nota á jörðinni. Með breyttu skipulagi er skilmálum breytt, lóð nr. 5 er minnkuð og færð sunnar innan deiliskipulagsins og nýtt svæði fyrir vindmyllur afmarkað auk aðkomu að nýju svæði. Breyting deiliskipulags er í samræmi við Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar þar sem raforkan er ætluð til staðbundinnar notkunar innan jarðar Narfabakka, sbr. heimildir um stakar framkvæmdir í kafla 2.3.4 í Aðalskipulagi Hvalfjarðasveitar 2020 - 2032. Framkvæmdin sem breytingin nær til er ekki tilkynningaskyld til HMS í samræmi við lið 13.02 í viðauka 1 í lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 þar sem hún er ekki talin hafa umtalsverð umhverfisáhrif og raforkuframleiðslan undir viðmiðunarmörkum. Texta í kafla 3.1 er breytt auk þess sem nýjum kafla 3.6 er bætt við í greinargerð þar sem gerð er grein fyrir raforkuframleiðslu fyrir vindmyllur. Innan deiliskipulagssvæðisins fjölgar lóðum úr 13 í 14, innan landbúnaðarlands er skv. deiliskipulaginu 7 lóðir, m.a. til garðræktar og breytast skilmálar í deiliskipulagstillögu á þann veg að innan landbúnaðarlands verði allt að 8 lóðir, m.a. til garðræktar og framleiðslu raforku. Nánari skilmálar deiliskipulagstillögunnar eru m.a.: Heimil verður uppsetning vindmylla til staðbundinnar notkunar innan jarðarinnar Narfabakka, samtals allt að 200 kW uppsett afl, sbr. heimildir um stakar framkvæmdir í kafla 2.3.4 í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Vindmyllur skulu staðsettar innan lóðar 7, sem afmörkuð er sérstaklega fyrir vindmyllur á uppdrætti. Uppsetning vindmylla verður í samræmi við gildandi aðalskipulag sem heimilar hámarkshæð vindmyllu allt að 25 m miðað við spaða í hæstu stöðu. Fjöldi, stærð og endanleg staðsetning vindmylla ákvarðast við útgáfu framkvæmdaleyfis hverju sinni, að teknu tilliti til hljóðvistar, skuggaflökts og fjarlægðar frá landamerkjum, háspennulínum og vegum. Öryggissvæði vindmylla er 1,5 x hæð þeirra og verður alfarið innan lóðar 7. Vindmyllur skulu ekki staðsettar nær öðrum mannvirkjum en sem nemur fjórfaldri hæð þeirra miðað við spaða í hæstu stöðu. Lóð nr. 5 er minnkuð til vesturs og færð sunnar innan deiliskipulagsins og nýtt svæði fyrir vindmyllur sem skilgreint verður sem lóð 7 er afmarkað vestan við lóð 5 auk aðkomu að lóðinni.



Tillagan er í samræmi við aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 þar sem segir:

2.3.4 Stakar framkvæmdir



Stefna:

Heimild til minni háttar framkvæmda sem styrkir samfélagið og atvinnustarfsemi, án umtalsverðra áhrifa. ? Auka umhverfisvæna orkunýtingu.

Almennir skilmálar

Skilmálar þessir gilda almennt í sveitarfélaginu, m.a. á landbúnaðarlandi, óbyggðum svæðum, skógræktar- og landgræðslusvæðum. Eftirtaldar framkvæmdir eru heimilar innan sveitarfélagsins án þess að afmarka landnotkun sérstaklega í aðalskipulagi. Þar sem farið er umfram þessi mörk skal skilgreina sérstaklega landnotkun fyrir umrædda framkvæmd. Gert er ráð fyrir að skoðað verði í hverju tilfelli fyrir sig hvort og þá hvar eftirfarandi stakar framkvæmdir verða heimilaðar. Áfram verður gerð krafa um deiliskipulag eða eftir atvikum grenndarkynningu, þá þarf framkvæmdaleyfi og/eða byggingaleyfi. Umfangsmeiri starfsemi skal staðsett, þar sem slík landnotkun er skilgreind.



Vindrafstöðvar þar sem raforkan er ætluð til staðbundinna nota , allt að 200 kW. Vindrafstöðvar geta verið allt að 25 m háar miðað við spaða í hæstu stöðu. Einnig er gert ráð fyrir lögnum og vegum að þeim ásamt aðstöðuhúsi. Gert er ráð fyrir að skoðað verði í hverju tilfelli fyrir sig hvort og þá hvar vindrafstöðvar verða heimilaðar. Meðal annars verður tekið tillit til hljóðvistar og fjarlægðar frá landamerkjum, öðrum mannvirkjun, sýnileika og áhrifa á náttúru og landslag. Vindrafstöðvar verða þó aldrei heimilaðar innan þéttbýlis, á frístundasvæðum eða nær annarri byggð en sem nemur fjórfaldri hæð vindmyllu.



Tillagan var auglýst í Skipulagsgátt frá 21.08.2026 - 2.10.2026 og bárust 7 umsagnir m.a. frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, Minjastofnun Íslands, Náttúruverndarstofnun, Vegagerðinni, Landsneti, Landi og skógi og Náttúrufræðistofnun.

Fyrir liggur samantekt athugasemda og tillaga að viðbrögðum við þeim ásamt uppfærðum deiliskipulagsgögnum.
Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við framkomnar umsagnir og viðbrögð við þeim, og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun skv. 1. mgr. 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

4.Kalastaðir - Birkihlíð L133190 - Merkjalýsing - stofnun lóðar

2610009

Erindi dags. í október 2026 frá Þorvaldi Inga Magnússyni, Kalastöðum 2, þar sem sótt er um stofnun nýrrar lóðar.

Sótt er um stofnun lóðar, Kalastaðir - Brikihlóð úr landi Kalastaða (133190), stærð 19 ha.

Lóðin er staðsett suðvestan við núverandi frístundabyggð og nær að auki yfir vegsvæði frístundabyggðar og á því mörk að öllum lóðum innan frístundabyggðarinnar.

Samhliða stofnun lóðarinnar eru mörk frístundalóða við vegsvæðin uppfærð í samræmi við gildandi deiliskipulag Kalastaða.



Leiðrétting marka við vegsvæðið er gerð þar sem gögn sem lágu til grundvallar við stofnun lóðanna gerðu ekki ráð fyrir bogalínum meðfram veginum og mörk lóðanna voru þvi ekki rétt. Eldri mörk við vegsvæðin sem falla úr gildi eru ekki sýnd á uppdrætti þar sem þau myndu sjást illa. Lóðirnar Birkihlíð 30, 31, 32 og 34 eru hnitsettar allan hringinn þar sem hnitsett gögn lágu ekki fyrir við stofnun þeirra. Á Birkihlíð 24 hefur hnitpunkti 285 verið bætt við þannig að aförkun lóðarinnar sé i samræmi við skráða stærð hennar og gildandi deiliskipulag.



Með erindinu fylgdi merkjalýsing.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að fela Umhverfis- og skipulagsdeild að vinna málið áfram skv. umræðum á fundinum.
Afgreiðslu málsins frestað.


5.Beiðni um undanþágu frá skipulagsreglugerð - stöðvarhús Þórisstaðavirkjunar.

2610001

Beiðni um undanþágu frá skipulagsreglugerð - stöðvarhús Þórisstaðavirkjunar.

Erindi frá Félags- og húsnæðismálaráðuneyti dags. 1.10.2026 þar sem fram kemur að ráðuneytinu hafi borist erindi Axels Helgasonar, dags. 1. október 2026, þar sem farið er þess á leit að ráðherra veiti undanþágu frá skipulagsreglugerð nr. 90/2013, sbr. 13. mgr. 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fram kemur að um sé að ræða nýja beiðni um undanþágu en ráðuneytið hefur áður hafnað beiðni um undanþágu, dags. 19. janúar 2024, vegna byggingarreitar fyrir stöðvarhús í landi Þórisstaða, Hvalfjarðarsveit í 34 metra fjarlægð frá Dragavegi, með bréfi dags. 5. mars 2024.

Með vísan til 13. mgr. 45. gr. skipulagslaga er þess farið á leit að sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar veiti ráðuneytinu umsögn sína um beiðni þessa eigi síðar en 23. október nk.

Fram kemur að ráðuneytið muni einnig óska umsagnar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um erindið.



Í fylgigögnum landeiganda með erindinu kemur fram að með vísan til 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sé óskað eftir undanþágu frá annars vegar d-lið gr. 5.3.2.5 skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 vegna fjarlægðar fyrirhugaðs stöðvarhúss

frá Dragavegi (520) og hins vegar gr. 5.3.2.14 vegna fjarlægðar þess frá Kúhallará.

Fyrirhugað stöðvarhús er innan byggingarreits B1 samkvæmt nýlegri tillögu að deiliskipulagi Þórisstaða og Þórisstaða II.

Byggingarreiturinn er í um 31 metra fjarlægð frá vegkanti Dragavegar, um 34 metra frá miðlínu vegarins og í um 3 metra fjarlægð frá árbakka Kúhallarár.

Hámarks stærð stöðvarhúss er 25 m² og hámarks mænishæð 3,2 m samkvæmt skilmálum deiliskipulagstillögunnar.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir erindið í ljósi þess að erfitt er að staðsetja húsið á öðrum stað vegna aðstæðna á svæðinu, en að mati nefndarinnar er um ræða lítið hús (25 m2) sem skv. umsókninni fellur vel að landinu sem takmarkar áhrif staðsetningarinnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.

6.Önnur mál í USNL nefnd

1504031

Rætt um umgengnismál á Grundartanga.

Rætt um umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamannastaða og áherslur þar um.



7.Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 132

2609007F

  • 7.1 2606008 Aðkomuskilti við Hvalfjarðargöng.
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 132 Málið er samþykkt.
  • 7.2 2609027 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Brattakinn 6 - Flokkur 2
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 132 Erindi samræmist ekki gildandi deiliskipulagi og er hafnað.
  • 7.3 2609026 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eyrarskógur 50 - Flokkur 1
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 132 Uppfæra þarf hönnunargögn, erindinu er hafnað.
  • 7.4 2410004 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Gröf II 207694 - Flokkur 1
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 132 Uppfæra þarf hönnunargögn, erindinu er hafnað.
  • 7.5 2204046 Narfastaðaland 5 no.3 - Byggingarleyfi
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 132 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform er samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.

8.Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 133

2610004F

  • 8.1 2609026 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eyrarskógur 50 - Flokkur 1
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 133 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breitingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform er samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
  • 8.2 2404068 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Birkihlíð 39 - Flokkur 1,
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 133 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breitingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform er samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
  • 8.3 2410004 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Gröf II 207694 - Flokkur 1
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 133 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breitingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform er samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
  • 8.4 2207023 Íþróttahús Heiðarborg - Byggingarleyfi
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 133 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breitingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform er samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.

Fundi slitið - kl. 17:10.

Efni síðunnar