Sveitarstjórn
Dagskrá
1.Sveitarstjórn - 449
2608005F
Fundargerðin framlögð.
2.Menningar- og markaðsnefnd - 68
2609001F
Fundargerðin framlögð.
Til máls tóku: BS og BÞS
-
Menningar- og markaðsnefnd - 68 Menningar- og markaðsnefnd samþykkir uppfærðar reglur um Menningarsjóð Hvalfjarðarsveitar og úthlutun styrkja úr sjóðnum til menningarstarfsemi í Hvalfjarðarsveit. Reglunum vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir tillögu menningar- og markaðsnefndar að uppfærðum reglum um Menningarsjóð Hvalfjarðarsveitar og úthlutun styrkja úr sjóðnum til menningarstarfsemi í Hvalfjarðarsveit."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: BS -
Menningar- og markaðsnefnd - 68 Bréfritarar eru hjónin Anna Guðrún Torfadóttir, myndlistarkona og Gunnar J. Straumland, myndlistarmaður og skáld. Þau óska eftir að fá að halda sýningu í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar.
Menningar- og markaðsnefnd telur mikilvægt að listamönnum sé gefinn kostur á að sýna verk sín í heimabyggð og tekur því jákvætt í erindi bréfritara. Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti að þeim verði heimilað að halda sýningu í stjórnsýsluhúsinu og leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt. Jafnframt leggur nefndin til að verkefnastjóra á velferðar- og fræðsludeild verði falið að vinna áfram að málinu í samráði við bréfritara.
Endanlegri afgreiðslu málsins er vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir tillögu menningar- og markaðsnefndar að heimilað verði að halda listsýningu í stjórnsýsluhúsinu að Innrimel. Jafnframt er samþykkti tillaga nefndarinnar um að verkefnastjóra á velferðar- og fræðsludeild verði falið að vinna áfram að málinu í samráði við bréfrita."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku: BS og BÞK.
3.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 68
2609003F
Fundargerðin framlögð.
Til máls tóku: EÞ, HB og GÞS.
-
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 68 Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 þar sem ábendingar/athugasemdir sem bárust á kynningartíma vinnslutillögu hafa eftir atvikum verið hafðar til hliðsjónar.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Fellsenda L133625 og að hún verði kynnt og auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 þar sem ábendingar/athugasemdir sem bárust á kynningartíma vinnslutillögu hafa eftir atvikum verið hafðar til hliðsjónar. Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Fellsenda L133625 og að hún verði kynnt og auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 68 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Galtarlæk L133627 og leggur til að tillagan verði send Skipulagstofnun til afgreiðslu að nýju skv. 3. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Samþykkt með 3 atkvæðum, ÞMJ á móti, ÁH sat hjá. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Galtarlæk L133627 og leggur til að tillagan verði send Skipulagstofnun til afgreiðslu að nýju skv. 3. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum, 2 atkvæði greidd gegn tillögunni (ÞMJ og BÞK). -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 68 Fyrir liggur uppfærð tillaga þar sem brugðist hefur verið við athugasemd HMS m.a. með gerð skýrari ákvæða um mælanlegt umfang fasteigna þar með talið lóða (uppskiptingu lands) og mannvirkja á einstökum svæðum.
Í breytingunni felst m.a. að landbúnaðarland L3, sem áður var sameiginlega skilgreint fyrir 4 svæði þ.e. í nágrenni Krosslands, Lambhaga, Heiðarskóla og Narfabakka, verður framvegis skipt upp í L3 fyrir nágrenni Krosslands, L4 fyrir Lambhaga, L5 fyrir nágrenni Heiðarskóla og L6 fyrir Narfabakka. Engar efnislegar breytingar eru gerðar á skilgreiningum sem áður giltu fyrir nágrenni Heiðarskóla og Narfabakka og gilda þær í megindráttum óbreyttar frá því sem er í gildandi aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir breytingu á skilmálum Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Landbúnaðarland-L3, með áorðnum breytingum þar sem L4 Lambhagi verði með sömu skipulagsskilmálum og er varðandi L5 Heiðarskóla og L6 fyrir Narfabakka, möo að breyttir skilmálar gildi eingöngu fyrir L3 fyrir nágrenni Krosslands, og leggur til að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til afgreiðslu að nýju skv. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„ Sveitarstjórn samþykkir breytingu á skilmálum Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Landbúnaðarland-L3, með áorðnum breytingum þar sem L4 Lambhagi verði með sömu skipulagsskilmálum og er varðandi L5 Heiðarskóla og L6 fyrir Narfabakka, m.ö.o. að breyttir skilmálar gildi eingöngu fyrir L3 fyrir nágrenni Krosslands, og leggur til að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til afgreiðslu að nýju skv. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: EÞ -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 68 Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagstillöguna með áorðnum breytingum í samræmi við framkomnar umsagnir og viðbrögð við þeim, og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagstillögu fyrir Þórisstaði og Þórisstaði 2, með áorðnum breytingum í samræmi við framkomnar umsagnir og viðbrögð við þeim, og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar skv. 1. mgr. 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 68 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd bendir á að skv. aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 segir í almennum skilmálum um iðnaðarsvæði að "ekki verður tekin afstaða til breytinga aðalskipulags vegna vindlunda og/eða vindrafstöðva yfir 35 m nema fyrir liggi skýr stefnumörkun á landsvísu um vindorkunýtingu og/eða í rammaáætlun".
Jafnframt bendir Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd á að fyrirhuguð uppbygging vindorkumannvirkja við Mosfellsheiðarvirkjanir I og II geti haft áhrif á upplifun ferðamanna, göngufólks og gesta í sveitarfélaginu s.s. á fjölförnum ferðamanna- og gönguleiðum í sveitarfélaginu eins og Leggjabrjóti, Þyrli og Síldarmannagötum. Huga þurfi að t.d. ljósmengun við uppbyggingu slíkra vindorkumannvirkja.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar bendir á að skv. aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 segir í almennum skilmálum um iðnaðarsvæði að "ekki verður tekin afstaða til breytinga aðalskipulags vegna vindlunda og/eða vindrafstöðva yfir 35 m nema fyrir liggi skýr stefnumörkun á landsvísu um vindorkunýtingu og/eða í rammaáætlun". Jafnframt bendir sveitarstjórn á að fyrirhuguð uppbygging vindorkumannvirkja við Mosfellsheiðarvirkjanir I og II geti haft áhrif á upplifun ferðamanna, göngufólks og gesta s.s. á fjölförnum ferðamanna- og gönguleiðum í sveitarfélaginu eins og Leggjabrjóti, Þyrli og Síldarmannagötum. Huga þurfi að t.d. ljósmengun við uppbyggingu slíkra vindorkumannvirkja.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku: ÞKJ og HB.
4.Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 94
2609004F
Fundargerðin framlögð.
Til máls tók: GÞS og BBÞ.
-
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 94 Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdir við leiksvæðið í Krosslandi hefjist sem fyrst. Fyrir liggur tilboð frá Fagurverki ehf. í framkvæmd verksins sem er umfram fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun.
Nefndin óskar því eftir viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð 2.000.000 kr. Jafnframt leggur nefndin til að verkefnastjóra framkvæmda og eigna verði falið að ganga frá verksamningi við Fagurverk ehf.
Ofangreindu er vísað til staðfestingar í sveitarstjórn. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir tillögu mannvirkja- og framkvæmdanefndar um að framkvæmdir við leiksvæðið í Krosslandi hefjist sem fyrst. Fyrir liggur tilboð frá Fagurverki ehf. í framkvæmd verksins sem er umfram fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun. Nefndin óskaði því eftir viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð 2.000.000 kr. og liggur fyrir hér á þessum fundi sveitarstjórnar, undir lið 8, tillaga að viðauka vegna þessa. Sveitarstjóra og verkefnastjóra framkvæmda og eigna er falið að ganga frá verksamningi við Fagurverk ehf.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku: HB, BS, GÞS og GSG.
5.Velferðar- og fræðslunefnd - 14
2609002F
Fundargerðin framlögð.
Til máls tók: GSG.
-
Velferðar- og fræðslunefnd - 14 Á síðasta fundi Velferðar- og fræðslunefndar var ákveðið að endurskoða reglur um Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar. Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærðar reglur og vísar þeim til samþykktar hjá sveitarstjórn. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
Sveitarstjórn samþykkir tillögu velferðar- og fræðslunefndar að uppfærðum reglum um Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: BS
6.Sameiginlegur fundur Ungmennaráðs og sveitarstjórnar.
2609014
Á fund sveitarstjórnar mæta fulltrúar Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar þau Anton Teitur Ottesen formaður, Hrafn Sölvi Vignisson, Valgarður Orri Egilsson, Díana Ingileif Ottesen og Veronika Jara Heimisdóttir.
Kynntar voru og framlagðar áherslur Ungmennaráðs, sjá í fylgigögnum fundargerðar.
Sveitarstjórn þakkar fulltrúum Ungmennaráðs fyrir góða framsögu og gott samtal.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að vísa fram komnum ábendingum Ungmennaráðs er snúa að vinnu við fjárhagsáætlun 2027 til þeirrar vinnu sem nú er í gangi og verði skjalið sent til viðkomandi fagnefnda til umfjöllunar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku allir fundarmenn auk fulltrúa Ungmennaráðs.

7.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.
2505008
Framlögð tillaga að Viðauka við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026 nr. 37.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 37 við framkvæmdaáætlun 2026 að fjárhæð 314.270.000 kr. vegna framkvæmda við íþróttahúsið Heiðarborg, gatnagerð í Melahverfi 3, lausar kennslustofur við Skýjaborg og leiksvæði í Krosslandi . Innri leiga á íþróttahúsi er leiðrétt samhliða. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku: BÞ, HB, ÞMJ, GSG og GÞS.

8.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2027-2030.
2606022
Rætt um gjaldskrármál og álögur í tengslum við vinnu við gerð Fjárhagsáætlunar 2027-2030.
Oddviti lagði til að umræður um liði nr. 8 og 9 verði tekin samhliða og var það samþykkt.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur heilshugar undir ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi gjaldskrár og breytingar á þeim árið 2027 og mun leggja sitt af mörkum til þess sameiginlega átaks sem þar er kallað eftir. Sveitarfélagið mun við ákvörðun gjaldskráa fyrir árið 2027 fylgja þeirri línu að halda almennum hækkunum innan 2,5% og sýna þannig ábyrgð í verki í baráttunni við verðbólgu og háa vexti.
Mikilvægt er að allir helstu aðilar samfélagsins axli ábyrgð og standi saman að því að skapa aukinn efnahagslegan stöðugleika. Hvalfjarðarsveit telur sérstaklega brýnt að kjarasamningar haldi og að ríki, sveitarfélög og stofnanir þeirra leggi sameiginlega sitt af mörkum með festu og ábyrgri gjaldtöku.
Jafnframt tekur Hvalfjarðarsveit eindregið undir hvatningu til ríkisvaldsins um að endurskoða fyrirliggjandi áform um hækkanir gjaldskráa og álaga sem áhrif hafa á heimili og fyrirtæki og koma af fullum þunga að þessu sameiginlega verkefni. Árangur næst ekki nema ábyrgðin sé sameiginleg og ríki og sveitarfélög gangi í takt. Markmiðið er skýrt: að stuðla að því að kjarasamningar haldi, verðbólga hjaðni og vextir lækki.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku: HB, ÞMJ, EÞ og GSG.

9.Fjárhagsáætlun 2027 - erindi til sveitarstjórnar.
2609023
Framlögð erindi frá Starfgreinasambandi Íslands(SGS), sem samanstendur af 18 stéttarfélögum víða um land og frá formönnum VR, Landssambands verslunarmanna og fagfélaga varðandi stöðu efnahagsmála og stöðu á vinnumarkaði í ljósi hárrar verðbólgu og vaxta.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að svara erindum þeim sem hér um ræðir í ljósi samþykktar sveitarstjórnar varðandi áherslur í þróun gjaldskráa fyrr á fundinum."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku: HB, ÞMJ, EÞ og GSG.
"Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að svara erindum þeim sem hér um ræðir í ljósi samþykktar sveitarstjórnar varðandi áherslur í þróun gjaldskráa fyrr á fundinum."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku: HB, ÞMJ, EÞ og GSG.
10.Beiðni um lausn frá störfum í mannvirkja- og framkvæmdanefnd
2609030
Framlagt erindi frá Hildi Jónsdóttur sem óskar eftir lausn frá störfum sem varamaður í mannvirkja- og framkvæmdanefnd.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að varamaður í mannvirkja- og framkvæmdanefnd í stað Hildar verði Katrín Rós Sigvaldadóttir."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
"Sveitarstjórn samþykkir að varamaður í mannvirkja- og framkvæmdanefnd í stað Hildar verði Katrín Rós Sigvaldadóttir."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
11.Tímasetningar sveitarstjórnarfunda á næstunni.
2608005
Rætt um tímasetningu næsta sveitarstjórnarfundar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar, nr. 451, verði haldinn fimmtudaginn 22. október kl. 15:00."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar, nr. 451, verði haldinn fimmtudaginn 22. október kl. 15:00."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
12.Atvinnumál í Hvalfjarðarsveit.
2609032
Rætt um atvinnumál í Hvalfjarðarsveit og mögulegt bann á hvalveiðar sem viðrað hefur verið af hálfu stjórnvalda.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu að ályktun:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar áréttar mikilvægi hvalveiða og þeirrar starfsemi sem þeim tengist fyrir atvinnulíf í Hvalfjarðarsveit og í nærliggjandi sveitarfélögum. Starfsemi hvalstöðvarinnar í Hvalfirði á sér langa sögu og hefur á starfstímum skapað fjölbreytt störf, bæði beint við veiðar og vinnslu og óbeint hjá þjónustu- og verktakafyrirtækjum á svæðinu.
Fyrir samfélag á borð við Hvalfjarðarsveit og nágrannasveitarfélög skiptir fjölbreytni og styrkur atvinnulífs miklu máli. Öflug atvinnustarfsemi skapar störf og verðmæti, styður við aðra atvinnustarfsemi og þjónustu og styrkir þannig samfélagið í heild. Áhrif starfseminnar einskorðast jafnframt ekki við sveitarfélagamörk Hvalfjarðarsveitar heldur ná til nærliggjandi sveitarfélaga og Vesturlands í heild. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar telur mikilvægt að nýting auðlinda í hafi byggist á ábyrgri og sjálfbærri nýtingu veiðistofna, bestu fáanlegu vísindalegu upplýsingum og skýrum viðmiðum um vernd og viðgang þeirra.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar telur mikilvægt að þegar stjórnvöld taka ákvarðanir sem geta haft veruleg áhrif á einstakar atvinnugreinar og starfsgrundvöll þeirra liggi fyrir heildstætt mat á samfélagslegum, atvinnulegum, efnahagslegum og byggðalegum áhrifum þeirra. Þar þurfi meðal annars að horfa til áhrifa á störf og atvinnuöryggi, afkomu fjölskyldna, þjónustu- og verktakafyrirtæki, tekjur sveitarfélaga og byggðaþróun á viðkomandi svæði.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar leggur ríka áherslu á mikilvægi fyrirsjáanleika í starfsumhverfi fyrirtækja og atvinnugreina. Skýrar og fyrirsjáanlegar leikreglur eru forsenda þess að fyrirtæki geti tekið ákvarðanir um fjárfestingar, ráðningar og langtímauppbyggingu og skipta ekki síður máli fyrir starfsfólk og fjölskyldur þess. Sveitarstjórn leggur jafnframt áherslu á mikilvægi atvinnufrelsis og telur að stjórnvöld þurfi að sýna fram á skýr, málefnaleg og vel rökstudd sjónarmið þegar íþyngjandi takmarkanir eru lagðar á lögmæta atvinnustarfsemi, ekki síst þegar slíkar ákvarðanir geta haft veruleg áhrif á störf, fjárfestingar og atvinnulíf heilla samfélaga.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar telur því að ákvarðanir stjórnvalda sem kunna að leiða til þess að hvalveiðar og tengd starfsemi leggist af eða dragist verulega saman verði ekki teknar án þess að áður liggi fyrir vandað og gagnsætt mat á áhrifum slíkrar ákvörðunar á atvinnu, efnahag og byggðaþróun í Hvalfjarðarsveit og á Vesturlandi.
Sveitarstjórn hvetur jafnframt til þess að raunverulegt samráð verði haft við þau sveitarfélög, fyrirtæki, starfsfólk og samfélög sem slíkar ákvarðanir hafa bein áhrif á. Mikilvægt er að sjónarmið nærsamfélagsins og atvinnulegir hagsmunir þess séu hluti af þeirri heildstæðu mynd sem stjórnvöld byggja ákvarðanir sínar á.
Með vísan til framangreinds mótmælir sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar áformum um bann við hvalveiðum og hvetur stjórnvöld til þess að hverfa frá slíkum áformum og tryggja þess í stað að ákvarðanir um nýtingu hvalastofna byggist á vísindalegum grunni, sjálfbærni, fyrirsjáanleika og heildstæðu mati á atvinnulegum, efnahagslegum og byggðalegum áhrifum."
Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku: EÞ, ÞMJ, BÞK, GSG og HB.

13.Ósk um endurgjaldslaus afnot af Miðgarði.
2609016
Framlagt erindi frá Láru J. Magnúsdóttur varðandi beiðni um niðurfellingu á leigu af félagsheimilinu Miðgarði.
Odddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita bréfritara og þeim sem að erindinu standa endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði þann tíma sem um ræðir. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til menningarmála."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: BS.

14.Ósk um niðurfellingu leigu af Miðgarði.
2609020
Framlagt erindi frá Sóknarnefnd Innri-Hólmskirkju varðandi beiðni um niðurfellingu á leigu af félagsheimilinu Miðgarði.
Odddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Sóknarnefnd Innri-Hólmskirkju endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði dagana 28. og 29. október nk. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til menningarmála."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Sóknarnefnd Innri-Hólmskirkju endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði dagana 28. og 29. október nk. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til menningarmála."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
15.Torfholt - umsagnarbeiðni - gistileyfi í flokki II - H.
2609033
Framlagt erindi frá Sýslumanninum á Vesturlandi varðandi umsagnarbeiðni.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu að fengnu áliti Umhverfis- og skipulagsdeildar:
„Sveitarstjórn telur sér ekki fært um að veita jákvæða umsögn þar sem ekki liggur fyrir lokaúttekt né öryggisúttekt um nýtingu húsnæðisins fyrir gististarfsemi. Umsögn sveitarfélagsins er því neikvæð.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: EÞ.

16.Haustþing SSV 2026.
2609028
Framlagt fundarboð á Haustþing SSV ásamt dagskrá.
Þau Haraldur Benediktsson, Guðrún Sigríður Gísladóttir og Þóra Margrét Júlíusdóttir verða fulltrúar Hvalfjarðarsveitar á Haustþinginu skv. samþykkt á 447. fundi sveitarstjórnar. Sveitarstjóri mun einnig sitja þingið.
17.Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2026.
2609029
Framlagt fundarboð á ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri, fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 7. október nk.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
"Sveitarstjórn samþykkir að Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri, fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 7. október nk.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
18.Frumvörp, reglur og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026.
2601036
Frumvarp til sveitarstjórnarlaga - umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, frestur til og með 1.okt. 2026 til að bregðast við.
Frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum ofl. - umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, frestur til og með 1.okt. 2026 til að bregðast við.

Sveitarstjóri kynnti tillögu að umsögn Hvalfjarðarsveitar, sjá í fylgögnum fundargerðar, um framkomið frumvarp um sveitarstjórnarlög sbr. tölvupóst frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sem gaf sveitarfélögum kost á að koma með umsagnir til nefndarinnar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að senda framkomna umsögn um sveitarstjórnarlög inn til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis."
Tillagan var samþykkt með 7 atkvæðum.
Oddviti lagði einnig fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að rýna framkomið frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og meta hvort Hvalfjarðarsveit sendi frá sér umsögn um frumvarpið."
Tillagan var samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku: BÞ, HB, ÞMJ og GSG.

19.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Samband íslenskra sveitarfélaga.
2602001
Framlögð fundargerð 1001. fundar.
20.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Faxaflóahafnir sf.
2602017
Framlögð fundargerð 270. fundar.
21.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili.
2601035
Framlögð fundargerð 173. fundar.
Fundi slitið - kl. 17:00.
Oddviti lagði til að taka lið nr. 6 á dagskrá, sameiginlegan fund með Ungmennaráði, á undan öðrum liðum og var það samþykkt samhljóða.