Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd
Dagskrá
1.Erindi til USNLnefndar - Girðingamál á Botnsheiði
2609021
Erindi frá Guðbjarti Þór Stefánssyni til USNL-nefndar vegna girðingamála á Botnsheiði.
Með erindinu er vakin athygli nefndarinnar á sauðfjárvarnargirðingu á milli Vesturlands- og Landnámshólfs sem liggur frá Hvalfirði og að varnargirðingu við Grímsnes- og Laugardalshólfs.
Í erindinu kemur fram að girðingin sé að hluta til nýleg og í góðu ástandi en ofar á heiðinni sé hún í slæmu ástandi og á sl. ári hafi fé komist á milli hólfa.
Skv. upplýsingum í erindinu er talið að ekki sé nægilegu fjarmagni veitt til viðhalds á girðingunni og skýringin talin vera sú að til standi að leggja þessa sauðfjárvarnarlínu niður vegna ræktunar á riðuþoli í íslenskri sauðfjárrækt.
Í erindinu kemur fram að á sl. ári hafi um 30-40 fjár úr Hvalfjarðarsveit farið á milli hólfa og að á meðan ekki sé búið að fella varnargirðinguna úr gildi þurfi að sinna viðhaldi hennar á fullnægjandi hátt.
Er USNL-nefnd m.a. hvött til að hefja samtal við Matvælastofnun og óska eftir upplýsingum.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd tekur undir með bréfritara varðandi girðinguna og felur Umhverfis- og skipulagsdeild að afla upplýsinga um stöðu og framtíð umræddrar sauðfjárveikivarnargirðingar. Einnig að kannað verði hjá nágrannasveitarfélagi varðandi afstöðu þeirra til málsins.
2.Fellsendi L133625 - Aðalskipulagsbreyting og nýtt deiliskipulag.
2602035
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 25. febrúar 2026 að auglýsa skipulagslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, fyrir Fellsenda L133625, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsingin var auglýst frá 27. febrúar 2026 til og með 20. mars 2026 og bárust umsagnir frá 10 aðilum.
Sveitarstjórn samþykkti á 445. fundi sínum þann 25. júní s.l. að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
Var vinnslutillagan og forsendur hennar kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum í Skipulagsgátt sbr. mál nr. 220/2026, Fellsendi L133625 - Upplifunarmiðstöð, bílasafn ofl., og var kynningartími frá 8. júlí til 19. ágúst 2026 og bárust umsagnir/athugasemdir frá 9 aðilum. Kynningarfundur um verkefnið var haldinn á auglýsingartíma tillögunnar í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarveitar 10. ágúst 2026.
Breytingin felst í upplifunarmiðstöð þar sem fornbílasafn er miðpunktur auk annarrar þjónustu, s.s. veitingarreksturs, gistingar og fjölbreyttrar afþreyingar, á um 16 ha svæði. Jafnframt er m.a. gert ráð fyrir göngu- og hjólaleið milli Eiðisvatns og Akrafjalls. Landið er skilgreint sem landbúnaðarland í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og er innan varúðarsvæðis/þynningarsvæðis umhverfis Grundartanga. Framkvæmdin kallar á breytingu á aðalskipulaginu þar sem skilgreint verður nýtt verslunar- og þjónustusvæði og m.a. gert ráð fyrir nýrri göngu- og hjólaleið. Samhliða breytingu á aðalskipulagi er unnið deiliskipulag fyrir svæðið og sameiginleg umhverfismatsskýrsla fyrir bæði skipulagsstigin.
Málið var áður á dagskrá 449. fundar sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar þann 4.9.2026 og var eftirfarandi niðurstaða / bókun gerð á fundinum:
"Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu: „Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar og heimilar landeiganda að vinna tillögu að breytingu á aðalskipulagi með hliðsjón af þeim athugasemdum og ábendingum sem komið hafa fram og í samræmi við framlagða tillögu að úrvinnslu umsagna.“ Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum."
Fyrir fundinum nú liggur tillaga að aðalskipulagsbreytingu til auglýsingar þar sem þær athugasemdir / ábendingar sem bárust á kynningartíma vinnslutillögu hafa eftir atvikum verið hafðar til hliðsjónar.

Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 þar sem ábendingar/athugasemdir sem bárust á kynningartíma vinnslutillögu hafa eftir atvikum verið hafðar til hliðsjónar.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Fellsenda L133625 og að hún verði kynnt og auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

3.Galtarlækur - Aðalskipulagsbreyting
2405015
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 23. janúar 2025 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu á Galtarlæk L133627, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsingartími í Skipulagsgátt var frá 30.01.2025 - 13.03.2025 og bárust umsagnir frá 17 aðilum.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 25. september 2025 að auglýsa og kynna vinnslutillögu í Skipulagsgátt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.a. fyrir íbúum, landeigendum og hagsmunaaðilum. Auglýst var frá 2. - 23. október í Skipulagsgátt og bárust umsagnir frá 13 aðilum. Kynningarfundur var haldinn um verkefnið í Stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3, mánudaginn 20. október 2025.
Samþykkt var í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar í janúar 2026 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir jörðina Galtarlæk, L133627, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér að athafnasvæði AF15 á Galtarlæk stækkar og umfang starfseminnar eykst. Nýtt hafnarsvæði verður skilgreint neðan athafnasvæðisins. Svæðið sem um ræðir er skilgreint sem landbúnaðarland í gildandi aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar. Hin nýju athafna- og hafnarsvæði verða vestur frá núverandi atvinnusvæði og hafnarmannvirkjum á Grundartanga. Áætlað er að ný höfn muni þjónusta flutningaskip og skemmtiferðaskip, með viðlegukanti sem nýtist til fjölbreyttrar hafnsækinnar starfsemi. Athafnasvæðið mun hýsa hreinlega og vistvæna starfsemi svo sem vörugeymslur, geymslusvæði, léttan iðnað og þjónustustarfsemi tengda hafnarrekstri. Sérstök áhersla verður lögð á umhverfisvænar lausnir varðandi neysluvatn, fráveitu og raftengingar fyrir skip og bifreiðar. Unnin er umhverfismatsskýrsla og samráð verður haft við Skipulagsstofnun m.a. um umfang hennar, í samræmi við lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 25. júní s.l. breytingu á Aðalskipulagi fyrir Galtarlæk og að tillagan yrði send HMS til afgreiðslu og staðfestingar skv. 3 mgr. 32. gr. skipulagslaga nr 123/2010.
Skv. bréfi HMS dags. 31.08.2026 var óskað eftir breytingum á greinargerð sem liggur fyrir fundinum.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Galtarlæk L133627 og leggur til að tillagan verði send Skipulagstofnun til afgreiðslu að nýju skv. 3. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Samþykkt með 3 atkvæðum, ÞMJ á móti, ÁH sat hjá.

4.Endurskoðun aðalskipulags - Skilmálabreytingar L3-Landbúnaðarland.
2206043
Hvalfjarðarsveit vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin tekur til landbúnaðarsvæða (L), með áherslu á svæði í flokki L3. Markmiðið er að skýra nýtingu innan L3 svæða með því að stofna fleiri flokka með nákvæmari skilgreiningum um uppbyggingarheimildir, sem taka mið af aðstæðum á hverjum stað fyrir sig. Með breytingunni er gerð uppfærsla á almennum skilmálum og uppdrætti aðalskipulags, þar sem L3 svæði verða flokkuð sem L3-L6. Þá verður heimiluð landgræðsla og skógrækt undir 10 ha, þar á meðal skjólbeltarækt, á landbúnaðarlandi.
Sameiginleg skipulagslýsing vegna breytinga á almennum skilmálum frístundabyggðar, landbúnaðarsvæða, skógræktar- og landgræðslusvæða og varúðar og þynningarsvæðis var auglýst 02.10.2025-23.10.2025 í Skipulagsgátt.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 var í kynningu í Skipulagsgátt frá 12.12.2025 - 19.01.2026.
Kynningartími aðalskipulagstillögu fyrir skilmálabreytingar L3-landbúnaðarlands var í Skipulagsgátt frá 22. maí - 3. júlí 2026.
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 13. ágúst s.l. breytingu á skilmálum aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar fyrir L3-landbúnaðarland og að tillagan yrði send HMS til afgreiðslu sk. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bréf HMS vegna afgreiðslu málsins barst í Skipulagsgátt þann 08.09.2026 þar sem stofnunin bendir á eftirfarandi atriði sem bregðast þarf við áður en stofnunin staðfestir aðalskipulagsbreytinguna:
"HMS telur að þær viðbætur sem gerðar hafa verið við greinargerðina skýri betur áform sveitarfélagsins um að halda útlitslega í dreifbýlisyfirbragð og að uppbygging á svæðunum taki ekki á sig einkenni þéttbýlis. Hins vegar hefur ekki verið brugðist við fyrri athugasemd stofnunarinnar um umfang á einstökum svæðunum.
Eins og HMS benti á í afgreiðslubréfi dags. 24. apríl 2026 telur stofnunin þörf á að sett verði skýr ákvæði um heimilað umfang uppbyggingarinnar. Það getur meðal annars falist í því að tilgreina hámarksfjölda íbúða og eftir atvikum frístundahúsa á hverju svæði eða setja fram aðrar sambærilegar takmarkanir svo hægt sé að reikna áætlað magn og umfang uppbyggingarinnar. Aðeins er sett fram lágmarksviðmið um stærð lóða/skika og engar takmarkanir þar um s.s. um uppskiptingu lands á einstökum svæðum. Ef heimildir væru til að mynda fullnýttar fyrir Lambhagaland (sbr. ákvæði tillögu) þá er ljóst að umhverfisáhrif af svo þéttri ,,landbúnaðarbyggð“ gætu haft afgerandi áhrif á þróun byggðakjarna í sveitarfélaginu.
Í greinargerð er vísað til þess að uppbygging til fastrar búsetu skuli vera „hófleg og dreifð“, að ekki sé ætlunin að mynda samfellda byggð eða götumynd og að landbúnaðarland verði áfram meginlandnotkun. Um er þó að ræða lýsandi stefnumörkun en ekki mælanleg eða bindandi skipulagsákvæði sem takmarka með skýrum hætti umfang uppbyggingar.
Ekki liggur því fyrir með nægjanlega skýrum hætti hvernig tryggt verði að svæðin þróist áfram sem landbúnaðarsvæði en taki ekki í reynd á sig einkenni íbúðarbyggðar.
Þá þarf að uppfæra umhverfismat tillögunnar með tilliti til umfangs íbúðarbyggðar, en eins og tillagan er nú sett fram er erfitt að sjá hvernig hægt er að meta umfang og áhrif breytingarinnar þar sem það er ekki sett fram sem afmörkuð stærð eða skýrar heimildir sbr. ofangreint."
Lögð fram breytt gögn þar sem m.a. eftirfarandi kemur fram fyrir Landbúnaðarland í Krosslandi og Lambhaga:
Fari fjöldi samliggjandi lóða með sambærilega landnotkun í 8 eða fleiri lóðir, skal það skoðað sérstaklega og hugað að breyttri landnotkun fyrir viðkomandi svæði.

Fyrir liggur uppfærð tillaga þar sem brugðist hefur verið við athugasemd HMS m.a. með gerð skýrari ákvæða um mælanlegt umfang fasteigna þar með talið lóða (uppskiptingu lands) og mannvirkja á einstökum svæðum.
Í breytingunni felst m.a. að landbúnaðarland L3, sem áður var sameiginlega skilgreint fyrir 4 svæði þ.e. í nágrenni Krosslands, Lambhaga, Heiðarskóla og Narfabakka, verður framvegis skipt upp í L3 fyrir nágrenni Krosslands, L4 fyrir Lambhaga, L5 fyrir nágrenni Heiðarskóla og L6 fyrir Narfabakka. Engar efnislegar breytingar eru gerðar á skilgreiningum sem áður giltu fyrir nágrenni Heiðarskóla og Narfabakka og gilda þær í megindráttum óbreyttar frá því sem er í gildandi aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir breytingu á skilmálum Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Landbúnaðarland-L3, með áorðnum breytingum þar sem L4 Lambhagi verði með sömu skipulagsskilmálum og er varðandi L5 Heiðarskóla og L6 fyrir Narfabakka, möo að breyttir skilmálar gildi eingöngu fyrir L3 fyrir nágrenni Krosslands, og leggur til að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til afgreiðslu að nýju skv. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Þórisstaðir; L133217 og Þórisstaðir 2, L 233003-Deiliskipulag
2604022
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 9. júlí 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 1. mgr. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að falla frá gerð lýsingar á skipulagsverkefninu þar sem allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi sbr. 3. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að falla frá ítarlegri kynningu tillögunnar, þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi sbr. 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagið nær til 84 ha svæðis fyrir frístundabyggð og smávirkjun (100 kw) að Þórisstöðum II og Þórisstöðum í Hvalfjarðarsveit. Svæðið er skilgreint sem frístundabyggð F52 og landbúnaðarland í flokki 2 og sem óbyggt svæði í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Aðkoma að svæðinu er frá Dragavegi (520).
Afmörkun svæðisins nær til frístundabyggðarinnar og legu fallpípu smávirkjunar milli stöðvarhúss, inntaks og miðlínu árfarvegar. Lóðirnar að Þórisstöðum II skiptast í tvö svæði. Vestari hlutinn er nefndur Kúhalli og eystri hlutinn Hjallholt.
Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 22. júlí - 2.september í Skipulagsgátt og bárust umsagnir frá 13 aðilum.
Lagðar eru fram umsagnir og tillögur að viðbrögðum, uppfærð greinargerð og lagfærður skipulagsuppdráttur.

Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagstillöguna með áorðnum breytingum í samræmi við framkomnar umsagnir og viðbrögð við þeim, og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
6.Merkjalýsing Gröf L133629 og Jaðar L223085 - Stofnun millispildu og samruni lóða
2608024
Sótt er um stofnun millispildu í landi Grafar L133629 og samruna hennar við Jaðar L223085. Stærð millispildu er 2,1 ha. Gröf er skrá 184,1 ha og minnkar sem lóðinni nemur. Fasteignin / lóðin Jaðar er skráð íbúðarhúsalóð og 2,3 ha að stærð skv. fasteignaskrá HMS, og verður eftir sameiningu við millispilduna 4,4 ha að stærð.
Vegna skörunar á þinglýstri afmörkum jarðanna Grafar L133629 og Aðalvíkur L211189, er mörkum Jaðars breytt frá fyrra lóðablaði. Afmörkun Jaðars mun taka við þinglýstri afmörkun Aðalvíkur.
Ekkert mannvirki er á fasteigninni / lóðinni Jaðri eða millispildunni.
Aðkoma er um Grafarveg (nr. 5041) og þaðan um aðkomuveg.
Lóðin Jaðar hefur neysluvatnsréttindi úr brunni / borholu í Gröf skv. þinglýstu afsali.
Með erindinu fylgir merkjalýsing skv. lögum um skráningu, merki og mat fateigna nr. 6/2001 og reglugerð um merki fasteigna 160/2024.
Umrædd millispilda er skv. aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 á landbúnaðarlandi L2 og skv. skipulagsskilmálum aðalskipulagsins er heimilt að byggja til landbúnaðar eða í tengslum við rekstur bús s.s. minni háttar rekstur með landbúnaði, til að auðvelda kynslóðaskipti eða byggingar til landbúnaðar. Þá segir einnig að forðast skuli að raska samfellu á góðu ræktunarlandi með mannvirkjagerð. Ennfremur segir í aðalskipulagi að heimilt sé að byggja upp á stökum landspildum, 2 ha eða stærri til fastrar búsetu.
Umrætt svæði þar sem lóðin Jaðar L223085 og umrædd millispilda er fyrirhuguð, er innan þynningarsvæðis / varúðarsvæðis vegna stóriðjuveranna á Grundartanga, eins og það er sýnt í núgildandi aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 en um svæðið gilda takmarkanir varðandi m.a. uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, en stefnt er að niðurfellingu þess á skipulagstímabilinu sem nær til ársins 2032.
Í almennum skilmálum fyrir varúðarsvæði / þynningarsvæði segir í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 að á meðan þynningarsvæði við Grundartanga sé gildandi sé að jafnaði ekki heimil skipulögð byggð eða ástundun hefðbundins búskapar, heynytja, akuryrkju eða beit á túnum nema sýnt sé framá að mengun í jarðvegi og grunnvatni sé undir viðmiðunarmörkum.
Málið var áður á dagskrá UNSL-nefndar þann 2. júlí 2025 og samþykkti nefndin þá að fresta afgreiðslu málsins og afla frekari upplýsinga.
Málið var aftur á dagskrá USNL-nefndar þann 16. júlí 2025 og var þá bókað að umsókn væri dregin til baka, eftir að móttekinn var tölvupóstur þess efnis þann 3. júlí 2025.
Fyrir fundinum liggur fyrir sama merkjalýsing og lögð var fyrir árið 2025 með undirritun landeiganda, en auk þess breytt merkjalýsing sem er óundirrituð.

Afgreiðslu málsins frestað. Umhverfis- og skipulagsdeild falið að afla endurnýjaðra undirskrifta málsaðila sökum þess að málið var dregið til baka í júlí 2025.
Jökull Helgason vék að fundi undir umræðu og afgreiðslu málsins.

7.Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum.
2608020
Erindi vísað til nefndar frá sveitarstjórn.
Faghópur 3 í rammaáætlun hefur það hlutverk að meta hvaða áhrif virkjunarhugmyndir lagðar fram af framkvæmdaaðilum geta haft á nærsamfélag áformaðrar virkjunar. Verkefnastjórn rammaáætlunar hefur verið falið að ljúka mati á sjö virkjunarhugmyndum sem hafa verið til mats í fyrri áföngum og allar settar í biðflokk í 5. áfanga.
Við matið á m.a. að fara eftir nýjum lögum sem samþykkt voru á Alþingi 19. júní á þessu ári, sem snúa sérstaklega að vindorkuverum í rammaáætlun.
Í 5. grein laganna eru ýmis atriði sem snúa að samfélagsáhrifum virkjana og áforma um virkjun á ákveðnum stað. Þar er m.a. tekið fram að horfa eigi til þess hvort „viðkomandi sveitarfélag hafi lýst yfir formlegri afstöðu til virkjunarhugmyndar og hvaða sjónarmið liggja til grundvallar; jafnframt skal litið til umsagna nálægra sveitarfélaga hafi virkjunarhugmynd áhrif á hagsmuni þeirra.“. Einnig er nefnt að meta eigi hvort að virkjunarhugmyndin efli raforkuöryggi og hver áhrifin yrðu mögulega á atvinnu- og byggðaþróun, auk áhrifa á „íbúa nærumhverfis“.
Samkvæmt drögum að frumvarpi um rýmiseignir er áhrifasvæði vindorkuvera skilgreint sem 30 km og því myndi Hvalfjarðarsveit lenda innan þeirra marka frá virkjunarhugmyndinni Mosfellsheiðarvirkjanir I og II, sem yrðu með staðsetningu í Grímsnes- og Grafningshreppi og í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Ljóst er að það getur verið um mörg álitamál fyrir sveitarfélagið, íbúa þess og fyrirtæki að ræða og því er aðeins verið að óska eftir almennri umsögn um málið. Þá er einnig ljóst að boðaðar breytingar á lagaumhverfi s.s. á gjaldtöku af orkuvinnslu, sbr. drög að frumvarpi um rýmiseignir geta breytt forsendum umtalsvert hvað varðar einkum lið 3 hér að ofan en óvissa er um útfærsluna og umfang breytinga. Æskilegt væri að umsögnin verði rædd á fundi sveitarstjórnar þannig að ólík sjónarmið, ef þau eru uppi, komi fram.
Umsagnartími er til 18. september 2026.
Umhverfis- og skipulagsdeild hefur óskað eftir fresti til 30. september nk. vegna funda nefndar og sveitarstjórnar og hann var veittur til hádegis þann dag.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd bendir á að skv. aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 segir í almennum skilmálum um iðnaðarsvæði að "ekki verður tekin afstaða til breytinga aðalskipulags vegna vindlunda og/eða vindrafstöðva yfir 35 m nema fyrir liggi skýr stefnumörkun á landsvísu um vindorkunýtingu og/eða í rammaáætlun".
Jafnframt bendir Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd á að fyrirhuguð uppbygging vindorkumannvirkja við Mosfellsheiðarvirkjanir I og II geti haft áhrif á upplifun ferðamanna, göngufólks og gesta í sveitarfélaginu s.s. á fjölförnum ferðamanna- og gönguleiðum í sveitarfélaginu eins og Leggjabrjóti, Þyrli og Síldarmannagötum. Huga þurfi að t.d. ljósmengun við uppbyggingu slíkra vindorkumannvirkja.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Jafnframt bendir Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd á að fyrirhuguð uppbygging vindorkumannvirkja við Mosfellsheiðarvirkjanir I og II geti haft áhrif á upplifun ferðamanna, göngufólks og gesta í sveitarfélaginu s.s. á fjölförnum ferðamanna- og gönguleiðum í sveitarfélaginu eins og Leggjabrjóti, Þyrli og Síldarmannagötum. Huga þurfi að t.d. ljósmengun við uppbyggingu slíkra vindorkumannvirkja.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Fundi slitið - kl. 18:00.