Fara í efni

Menningar- og markaðsnefnd

68. fundur 10. september 2026 kl. 15:00 - 16:51 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Brynhildur Stefánsdóttir formaður
  • Ásdís Björg Björgvinsdóttir aðalmaður
  • Baldur Þór Ketilsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Andrea Ýr Arnarsdóttir Verkefnastjóri Velferðar- og fræðsludeildar
Dagskrá

1.Hvalfjarðardagar 2026

2511038

Hvalfjarðardagar fóru fram dagana 13. til 16. ágúst með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá víðs vegar um Hvalfjarðarsveit.



Hátíðin hófst á fimmtudeginum með opnu húsi hjá félagsstarfi eldri borgara í Stjórnsýsluhúsinu og föndri og þrautum á Bókasafni Akraness. Síðdegis fór fram litahlaup Ungmenna- og íþróttafélags Hvalfjarðarsveitar á Vinavelli þar sem þátttakendur böðuðu sig í litum. Um kvöldið var boðið upp á prjónakvöld í Miðgarði og tónleika heima í stofu í Skipanesi.



Á föstudeginum hélt dagskráin áfram á Vinavelli í Melahverfi þar sem sett var upp risastór hindrunarbraut. Síðdegis var kveikt upp í grillinu og íbúar komu saman, grilluðu og áttu góða stund. Um kvöldið tóku Hreimur og Vignir Snær síðan á móti gestum í Álfholtsskógi með útitónleikum í fallegu umhverfi.



Laugardagurinn var þéttskipaður og boðið upp á viðburði fyrir alla aldurshópa. Fjölskylduskemmtun fór fram á Vinavelli þar sem meðal annars var boðið upp á grillaðar pylsur og umhverfisverðlaun Hvalfjarðarsveitar afhent. Kvenfélagið Lilja stóð fyrir markaði og kaffisölu í Stjórnsýsluhúsinu og þar var jafnframt tíu frambærilegustu ljósmyndirnar í ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðardaga til sýnis. BMX Brós sýndu listir sínar og Leikhópurinn Lotta sýndi Litaland. Afmælistónleikar Hvalfjarðarsveitar fóru síðan fram í Hallgrímskirkju í Saurbæ í tilefni af 20 ára afmæli sveitarfélagsins. Um 30 flytjendur, sem allir eiga tengingu við sveitina, stigu á stokk og buðu tónleikagestum upp á fjölbreytta og glæsilega dagskrá. Í lok tónleika var frumflutt lag og ljóð sem er samið sérstaklega í tilefni afmælisins. Höfundur ljóðs er Gunnar J. Straumland og tónskáld er Jósep Gíslason.



Á sunnudeginum var áfram nóg um að vera. Ratleikur fór fram á Byggðasafninu að Görðum og gestum gafst kostur á að heimsækja lista- og handverksfólk víðs vegar um Hvalfjarðarsveit. Fjölskyldudagur var haldinn í sundlauginni að Hlöðum með þrautabraut, fjársjóðsleit, tónlist, leikjum og sprelli. Hátíðinni lauk um kvöldið í Miðgarði þar sem Haraldur Benediktsson, oddviti Hvalfjarðarsveitar, flutti erindi þar sem hann rekur aðdraganda og sögu þess hvernig Grundartangi varð að einu mesta atvinnusvæði landsins.
Hvalfjarðardagar 2026 voru virkilega vel heppnaðir og þakkar Menningar- og markaðsnefnd öllum sem mættu kærlega fyrir komuna.

Nefndin vill einnig færa öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum til skipulagningar og framkvæmdar hátíðarinnar hjartans þakkir, sem og þeim fjölmörgu styrktaraðilum sem gerðu Hvalfjarðardaga 2026 að veruleika. Sérstakar þakkir fá verkefnastjórar Hvalfjarðardaga 2026, þeir Hjörvar Gunnarsson og Valdimar Ingi Brynjarsson, fyrir að skipuleggja og halda utan um hátíðarhöldin með glæsibrag.

2.Ljósmyndakeppni Hvalfjarðardaga 2026.

2607003

Þátttakan í keppninni var einstaklega góð en alls bárust 120 myndir frá 22 þátttakendum. Menningar- og markaðsnefnd valdi 10 myndir úr innsendum myndum sem þóttu skara fram úr og voru þær til sýnis í stjórnsýsluhúsinu á Hvalfjarðardögum.



Þá fór fram rafræn kosning þar sem almenningi gafst kostur á að velja sína uppáhaldsmynd. Alls voru greidd 180 atkvæði og réðu niðurstöður kosningarinnar úrslitum keppninnar.



Úrslitin urðu eftirfarandi:

1. sæti - með 35% atkvæða. Ljósmyndari: Stefanía Rakel

2. sæti - með 22,8% atkvæða. Ljósmyndari: Eyjólfur Matthíasson

3. sæti - með 17,2% atkvæða. Ljósmyndari: Guðrún Magnúsdóttir
Menningar- og markaðsnefnd færir öllum þeim sem sendu inn myndir kærar þakkir fyrir þátttökuna. Einnig eru færðar bestu þakkir til allra þeirra sem tóku þátt í kosningunni og lögðu þannig sitt af mörkum við að velja vinningsmynd ársins.

3.Ljóð og lag Hvalfjarðarsveitar

2608014

Í tilefni af 20 ára afmæli Hvalfjarðarsveitar var samið ljóð og lag tileinkað sveitarfélaginu. Höfundur ljóðs er Gunnar J. Straumland og tónskáld er Jósep Gíslason.



Verkið var frumflutt við hátíðlega athöfn á afmælistónleikum Hvalfjarðarsveitar í Hallgrímskirkju í Saurbæ um síðastliðna helgi, þar sem fram komu um 30 flytjendur, sem allir eiga tengingu við Hvalfjarðarsveit. Dagskráin var fjölbreytt og glæsileg og endurspeglaði vel þann mikla mannauð og tónlistarlíf sem finna má í sveitarfélaginu.
Menningar- og markaðsnefnd færir Gunnari J. Straumland og Jósep Gíslasyni innilegar þakkir fyrir þeirra framlag. Tónleikanefnd Sumartónleika Hallgrímskirkju í Saurbæ fær sérstakar þakkir fyrir glæsilegt skipulag og utanumhald um tónleikana. Einnig færum við öllum flytjendum sem tóku þátt okkar bestu þakkir fyrir þeirra framlag.

4.Ferðaþjónusta í Hvalfjarðasveit.

2607010

Fulltrúum ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit var boðið til fundar mánudaginn 7. september kl. 17:00 til 19:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3 í Melahverfi. Fundurinn var opinn öllum en fulltrúar ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit voru sérstaklega hvattir til að mæta og taka þátt í samtalinu.
Það var góð mæting á fundinn og skapaðist gott og opið samtal um stöðu ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit, helstu áskoranir og ekki síður þau fjölmörgu tækifæri sem felast í frekari uppbyggingu greinarinnar í sveitarfélaginu.

Fulltrúar frá Markaðsstofu Vesturlands og Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) tóku þátt í fundinum og lögðu mikilvægt innlegg til umræðunnar út frá reynslu sinni og þekkingu á ferðaþjónustu og byggðaþróun á Vesturlandi og ekki síður að hægt er að leita til þeirra hvað varðar ráðgjöf og ýmsa aðstoð.

Á fundinum var komið víða við. Meðal þess sem rætt var um var gjaldtaka hins opinbera, bæði ríkis og sveitarfélaga, og áhrif hennar á rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar. Einnig var rætt um samspil ferðaþjónustu og þeirrar öflugu atvinnu- og iðnaðarstarfsemi sem er í Hvalfjarðarsveit og hvernig þessir mikilvægu þættir atvinnulífsins geta þróast áfram samhliða.

Sérstök áhersla var lögð á að ræða hvar og með hvaða hætti Hvalfjarðarsveit getur stigið inn og stutt við þróun ferðaþjónustunnar. Þar var meðal annars horft til upplýsingamiðlunar, sýnileika, innviða og þess hvernig sveitarfélagið og ferðaþjónustuaðilar geta betur stillt saman strengi sína.

Sterkur samhljómur var um mikilvægi þess að efla samstarf, samvinnu og reglulegt samtal milli sveitarfélagsins og þeirra fjölmörgu aðila sem starfa í ferðaþjónustu í Hvalfjarðarsveit. Slíkt samtal er mikilvægur grunnur að því að nýta þau tækifæri sem svæðið hefur upp á að bjóða og vinna sameiginlega að áframhaldandi uppbyggingu.

Menningar- og markaðsnefnd þakkar öllum þeim sem mættu fyrir góða þátttöku, málefnalegar umræður og fjölmargar góðar ábendingar. Jafnframt eru Markaðsstofu Vesturlands og SSV færðar þakkir fyrir þátttökuna og þeirra framlag.

Fundurinn er vonandi upphafið að enn öflugra og reglulegra samtali. Ferðaþjónustan er mikilvægur hluti af fjölbreyttu atvinnulífi Hvalfjarðarsveitar og sveitarfélagið vill leggja sitt af mörkum til að skapa henni góð skilyrði til áframhaldandi þróunar og vaxtar.

Stefnt er að næsta samtali í lok október/byrjun nóvember, staður og nákvæm stund verður kynnt þegar nær dregur.

5.Barnamenningarhátíð

2405029

Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem börn og ungmenni fá að njóta, skapa og taka þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Hátíðin fer fram í október 2026.



Verkefni hafa verið send til stýrihóps Barnó hjá SSV.



Ýmis spennandi verkefni og viðburðir verða í boði í Hvalfjarðarsveit í tilefni af Barnamenningarhátíð Vesturlands. Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar hefur meðal annars kallað eftir listaverkum frá börnum og ungmennum á aldrinum 0 til 18 ára í sveitarfélaginu. Verkin verða hluti af Listasýningu unga fólksins, sem haldin verður dagana 1.til 31. október 2026. Sýningin verður sett upp í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar.

Menningar- og markaðsnefnd hvetur ungt og skapandi fólk í sveitarfélaginu til að taka þátt og sýna list sína, fjölbreytt listform eru velkomin. Skráning fer fram með því að hafa samband við Andreu Ýr, verkefnastjóra á velferðar- og fræðsludeild, andrea@hvalfjardarsveit.is.

6.Menningarsjóður Hvalfjarðarsveitar.

1811033

Uppfærðar reglur um Menningarsjóð Hvalfjarðarsveitar og úthlutun styrkja úr sjóðnum til menningarstarfsemi í Hvalfjarðarsveit.
Menningar- og markaðsnefnd samþykkir uppfærðar reglur um Menningarsjóð Hvalfjarðarsveitar og úthlutun styrkja úr sjóðnum til menningarstarfsemi í Hvalfjarðarsveit. Reglunum vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.

7.Sýningarhald í Stjórnsýsluhúsi.

2608013

Erindi frá Gunnari Straumland og Önnu Guðrúnu Torfadóttur.
Bréfritarar eru hjónin Anna Guðrún Torfadóttir, myndlistarkona og Gunnar J. Straumland, myndlistarmaður og skáld. Þau óska eftir að fá að halda sýningu í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar.

Menningar- og markaðsnefnd telur mikilvægt að listamönnum sé gefinn kostur á að sýna verk sín í heimabyggð og tekur því jákvætt í erindi bréfritara. Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti að þeim verði heimilað að halda sýningu í stjórnsýsluhúsinu og leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt. Jafnframt leggur nefndin til að verkefnastjóra á velferðar- og fræðsludeild verði falið að vinna áfram að málinu í samráði við bréfritara.

Endanlegri afgreiðslu málsins er vísað til sveitarstjórnar.

8.Viðburðir í Hvalfjarðarsveit 2026.

2601038

Umræður um fyrirhugaða viðburði í Hvalfjarðarsveit.
Umræða fór fram um þá viðburði sem fram undan eru á árinu.

Þann 3. október næstkomandi fer fram opnunarhátíð Heiðarborgar, íþrótta- og samfélagsmiðstöðvar Hvalfjarðarsveitar. Menningar- og markaðsnefnd hvetur íbúa og gesti til að taka daginn frá og koma saman til að fagna þessum ánægjulega áfanga.

Þann 13. desember fer síðan fram jólagleði á Vinavelli í samstarfi við Kvenfélagið Lilju. Þar verður sannkölluð jólastemning með jólasveinum, jólasöngvum, smákökum og heitu súkkulaði. Jólagleðin verður auglýst nánar þegar nær dregur.

9.Siðareglur kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum Hvalfjarðarsveitar.

2606020

Kjörnir fulltrúar undirgangast þessar siðareglur með undirskrift sinni og lýsa því þar með yfir að þeir ætli að hafa þær að leiðarljósi.
Siðareglur voru lagðar fram og staðfestu nefndarmenn með undirskrift sinni að þeir hefðu kynnt sér þær og hygðust hafa þær að leiðarljósi í störfum sínum.

Fundi slitið - kl. 16:51.

Efni síðunnar