Fara í efni

Velferðar- og fræðslunefnd

14. fundur 08. september 2026 kl. 15:30 - 17:30 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Guðrún Sigríður Gísladóttir formaður
  • Valborg Ragnarsdóttir aðalmaður
  • Arney Þyrí Guðjónsdóttir aðalmaður
  • Sigurður Pétur Svanbergsson aðalmaður
  • Ásta Jóna Ásmundsdóttir Varamaður
  • Sigurbjörg Friðriksdóttir áheyrnafulltrúi
Starfsmenn
  • Freyja Þöll Smáradóttir embættismaður
  • Eyrún Jóna Reynisdóttir embættismaður
  • Svala Ýr Smáradóttir embættismaður
  • Andrea Ýr Arnarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Freyja Þöll Smáradóttir Deildarstjóri Velferðar- og fræðsludeildar
Dagskrá
Formaður bauð fundarmenn velkomna og setti fund skv. fyrirliggjandi dagskrá auk þess að óska eftir, með vísan til c.liðar 16. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar, að bæta með afbrigðum eftirfarandi málum á dagskrá:

Mál nr. 2509011 - Samfélagsmiðstöð í Heiðaborg

Mál nr. 2608011 - Beiðni um gerð samnings í tengslum við starf ungmenna- og íþróttafélags Hvalfjarðarsveitar í Heiðarborg.

Samþykkt 5:0

Leikskólastjóri og áheyrnarfulltrúi sátu undir lið nr. 4,5,6,7 og 9.
Undir þessum lið sátu Brynhildur Stefánsdóttir, Ásdís Björg Björgvinsdóttir og Baldur Ketilsson, nefndarmenn Menningar- og markaðsnefndar.

1.Félagsheimilið Hlaðir, tjaldsvæði og sundlaugin að Hlöðum

2609004

Menningar- og markaðsnefnd kemur á fund nefndarinnar undir þessum lið til umræðu um málefni Hlaða.
Farið var yfir stöðu samninga sem varða Hlaðir. Leigusamningur við Hernámssetrið ehf. um félagsheimilið Hlaðir rennur út um næstu áramót samkvæmt ákvæðum samningsins. Jafnframt var farið yfir rekstrarsamning vegna sundlaugarinnar að Hlöðum við Guðmund Júlíusson og Valdimar Inga Brynjarsson, sem rann út 31. ágúst sl.

Velferðar- og fræðslunefnd og Menningar- og markaðsnefnd fela Velferðar- og fræðsludeild, í samstarfi við formenn nefndanna, að vinna tillögur að framtíðarnotkun Hlaða. Tillögurnar verða í kjölfarið lagðar fyrir nefndirnar að nýju.

2.Reglur um Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar

2602014

Uppfærðar reglur Íþrótta- og æskulýðssjóðs Hvalfjarðarsveitar.
Á síðasta fundi Velferðar- og fræðslunefndar var ákveðið að endurskoða reglur um Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar. Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærðar reglur og vísar þeim til samþykktar hjá sveitarstjórn.

3.Fjárhagsáætlun velferðar- og fræðslunefnar 2027

2609011

Fjárhagsáætlun fyrir velferðar- og fræðslunefnd til umræðu fyrir fjárhagsáætlunargerð 2027.
Umræður á fundi um komandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027. Velferðar- og fræðsludeild er falið að nýta umræður á fundi við gerð fjárhagsáætlunar.

4.Gjaldskrá leikskóla

2609007

Umræða um endurskoðun á gjaldskrá Skýjaborgar.
Velferðar- og fræðslunefnd fór yfir erindi frá leikskólastjóra Skýjaborgar og Velferðar- og fræðsludeild um endurskoðun á gjaldskrá Skýjaborgar. Gjaldskráin hefur ekki verið endurskoðuð í lengri tíma og því samþykkir nefndin að samhliða fjárhagsáætlunargerð verði reglur um gjaldskrá Skýjaborgar endurskoðuð.

5.Beiðni um aukningu á stöðugildi í Skýjaborg.

2609008

Beiðni frá leikskólastjóra Skýjaborgar um að skoðað verði aukin starfsmannaþörf í mötuneyti Skýjaborgar.
Velferðar- og fræðslunefnd tók til umfjöllunar erindi Skýjaborgar um aukna starfsmannaþörf í Skýjaborg. Nefndin vísar erindinu til frekari vinnslu hjá verkefnastjóra Velferðar- og fræðsludeildar og leikskólastjóra Skýjaborgar.

6.Barngildi í Skýjaborg.

2609008

Beiðni frá Skýjaborg um endurskoðun á barngildisviðmiði leikskólans.
Velferðar- og fræðslunefnd felur verkefnastjóra velferðar- og fræðsludeildar og leikskólastjóra að taka til frekari skoðunar barngildisviðmið leikskólans.

7.Skýjaborg - fjárhagsáætlun 2027

2609010

Beiðni vegna fjárhagsáætlunar fyrir Skýjaborg árið 2027.



Velferðar- og fræðslunefnd fór yfir erindi frá leikskólastjóra. Nefndin felur verkefnastjóra velferðar- og fræðsludeildar og leikskólastjóra að vinna málið áfram og verður skoðað útfrá fjárhagsáætlunargerð SKýjarborgar fyrir árið 2027.

8.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg

2509011

Farið yfir verkstöðu íþróttahússins við Heiðarborg og næstu skref. Einnig til kynningar dagatal Heiðarborgar 2026-2027.
Starfsmenn velferðar- og fræðsludeildar fóru yfir verkstöðu í Heiðarborg. Stefnt er að því að opna Heiðarborg fyrir almenning 3. október. Dagatal Heiðarborgar fyrir árið 2026-2027 kynnt.

9.Árskýrsla Leik - og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar 2025-2026 - tilkynningar

2608006

Ársskýrsla Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar 2025-2026
Leikskólastjóri kynnti ársskýrslu leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar 2025-2026. Velferðar- og fræðslunefnd þakkar fyrir vel unna skýrslu.

10.Fundargerðir Ungmennaráðs

2310003

Fundargerð Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar frá fundi ráðsins nr. 21.
Lagt fram til kynningar.

11.Vinnuskóli Hvalfjarðarsveitar

2401027

Skýrsla um vinnuskóla sumarið 2026 lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

12.Barnaverndarþjónusta Vesturlands

2605004

Á síðasta fundi sveitastjórnar var lagður er fram til staðfestingar viðauki við samning Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar um barnaverndarþjónustu. Sveitastjórn veitti samþykki á viðauka við samnning Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar um barnaverndarþjónustu. Með viðaukanum verða Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundafjarðarbær, Snæfellsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur aðili að samningnum. Samstarf sveitarfélaganna verður nefnt Barnaverndarþjónusta Vesturlands.

Bókun sveitastjórnar lögð fram til kynningar. Velferðar- og fræðslunefnd fagnar þessum áfanga.

13.Skammtímadvöl á Vesturlandi

2501005

Á 449. fundi sveitastjórnar var lögð fram tillaga að rekstrarformi og rekstrarfyrirkomulagi Skammtímadvalar á Vesturlandi. Sveitastjórn samþykkti aðild Hvalfjarðarsveitar að rekstri Skammtímadvalar á Vesturlandi og þá tillögu sem fyrir liggur að rekstrarformi og rekstrarfyrirkomulagi.
Velferðar- og fræðslunefnd tekur undir bókun sveitastjórnar og fagnar þessum áfanga og að skammtímadvöl á Vesturlandi geti orðið að veruleika fyrir börn á vesturlandi.

14.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg

2509011

Á fundi sveitarstjórnar nr. 449 þann 4. september sl. var eftirfarandi bókað:



"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá ásamt tillögum að útleigureglum og öryggis- og umgengnisreglum.

Þar sem ekki var gert ráð fyrir tekjum af rekstri mannvirkisins á yfirstandandi ári, og jafnframt er um að ræða nýtt mannvirki og nýja starfsemi að verulegu leyti, samþykkir sveitarstjórn að aðgangur að aðstöðunni verði gjaldfrjáls til áramóta.

Tímabilið verði nýtt til sérstaks átaksverkefnis þar sem íbúar Hvalfjarðarsveitar, sumarhúsaeigendur og aðrir sem dvelja í sveitarfélaginu eða heimsækja verði hvattir til að kynna sér og nýta hina nýju aðstöðu. Markmiðið er að stuðla að virkri notkun mannvirkisins frá upphafi, skapa jákvæða menningu í kringum starfsemina og efla hreyfingu, samfélagsþátttöku og lýðheilsu. Er forstöðumanni falið í samstarfi við velferðar- og fræðsludeild að útfæra hvernig skráningu verði best háttað þannig að notkun á mannvirkinu og aðstöðunni verði skráð frá fyrsta degi.

Samþykkt gjaldskrá taki gildi 2. janúar 2027.

Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að fela velferðar- og fræðsludeild að þróa og útfæra tillögu að heilsupassa í Heiðarborg fyrir starfsfólk sveitarfélagsins. Málinu er vísað til umfjöllunar í velferðar- og fræðslunefnd."
Velferðar- og fræðslunefnd fagnar því að aðgangur að hinni nýju aðstöðu í Heiðarborg verði gjaldfrjáls til áramóta og að tímabilið verði nýtt til sérstaks átaksverkefnis. Íbúar Hvalfjarðarsveitar, sumarhúsaeigendur og aðrir sem dvelja í sveitarfélaginu eða sækja það heim verði hvattir til að kynna sér og nýta aðstöðuna.

Umræða fór fram um átaksverkefnið, fyrirkomulag skráninga og heilsupassa fyrir starfsfólk sveitarfélagsins. Velferðar- og fræðsludeild mun vinna áfram að útfærslu þessara þátta.

15.Beiðni um gerð samnings í tengslum við starf ungmenna- og íþróttafélags Hvalfjarðarsveitar í Heiðarborg.

2608011

Á fundi sveitarstjórnar nr. 449 þann 4. september sl. var eftirfarandi bókað:



"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að Ungmenna- og íþróttafélag Hvalfjarðarsveitar fái endurgjaldslaus afnot af íþróttaaðstöðu í Heiðarborg eftir að mannvirkið verður tekið í notkun á næstu vikum og fram til næstu áramóta. Í millitíðinni verði unnið að gerð samkomulags við félagið um afnot af mannvirkinu og samvinnu við sveitarfélagið á komandi tímum. Afnotin verði bókuð til tekna hjá Íþrótta- og samfélagsmiðstöðinni Heiðarborg og til gjalda sem styrkveiting til íþrótta- og æskulýðsmála. Sama fyrirkomulag verði viðhaft við önnur ungmenna- og íþróttafélög á umræddu tímabili. Fyrirkomulagið verði endurskoðað á nýju ári eða þegar reynsla hefur fengist af starfsemi Heiðarborgar.

Málinu er vísað til kynningar í Velferðar- og fræðslunefnd.“

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:30.

Efni síðunnar