Fara í efni

Mannvirkja- og framkvæmdanefnd

94. fundur 22. september 2026 kl. 15:30 - 17:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Guðjón Jónasson formaður
  • Inga María Sigurðardóttir aðalmaður
  • Vignir Már Sigurjónsson aðalmaður
  • Jón Þór Marinósson Varamaður
  • Bergþór Helgason Varamaður
Starfsmenn
  • Hlynur Sigurdórsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Hlynur Sigurdórsson Verkefnastjóri framkvæmda og eigna
Dagskrá
Róbert Eyvar Ólafsson og Guðbjartur þór Stefánsson boða forföll.

1.Íþróttahús - Heiðarborg

2001042

Verkstaða íþróttahússins við Heiðarborg.
Fundarmenn fóru í vettvangsskoðun í íþróttamiðstöðina Heiðarborg og kynntu sér stöðu framkvæmda, sem nú eru á lokametrunum. Áætlað er að vígsla íþróttamiðstöðvarinnar fari fram 3. október 2026.

2.Leikskólahúsnæði - Skýjaborg

2202016

Útboð leikskólans Skýjaborgar.
Farið var yfir stöðu útboðs vegna byggingar leikskólans Skýjaborgar. Útboðsgögn voru afhent 1. september og fyrirspurnarfrestur rennur út 27. september. Tilboð verða opnuð 6. október 2026 kl. 15:00. Áætluð verklok eru 30. apríl 2028.

3.Melahverfi III - Gatnaframkvæmd

2409030

Verkstaða gatnaframkvæmda Melahverfis III.
Gatnaframkvæmdum í Melahverfi III er lokið. Lokið hefur verið við malbikun gatna og stíga ásamt uppsetningu lýsingar og lagningu allra veitulagna. Framkvæmdin var samstarfsverkefni Hvalfjarðarsveitar, Veitna og RARIK. EFLA annaðist aðalhönnun verksins og Borgarverk ehf. var aðalverktaki.

4.Krossland - Opin svæði leiksvæði.

2409033

Staða framkvæmda leiksvæðis í Krosslandi.
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdir við leiksvæðið í Krosslandi hefjist sem fyrst. Fyrir liggur tilboð frá Fagurverki ehf. í framkvæmd verksins sem er umfram fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun.
Nefndin óskar því eftir viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð 2.000.000 kr. Jafnframt leggur nefndin til að verkefnastjóra framkvæmda og eigna verði falið að ganga frá verksamningi við Fagurverk ehf.
Ofangreindu er vísað til staðfestingar í sveitarstjórn.

5.Viðhalds- og framkvæmdaáætlun 2026 - 2029.

2601026

Verkefnastjóri framkvæmda og eigna fer yfir verkstöðu framkvæmda og undirbúning fjárhagsáætlunargerðar 2027-2030.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Efni síðunnar