Fara í efni

Stóri Plokkdagurinn

Rúmlega sjöþúsund og áttahundruð manns tilheyra samfélaginu Plokk á Íslandi á Facebook og þessi hópur er kominn á fullt í að plokka í sínu nær umhverfi. Eftir vindasaman vetur er plast og rusl útum allt í kringum þéttbýli og áríðandi að það komist úr umhverfinu áður en það hverfur á haf út eða grefst í náttúruna.

Stóri Plokkdagurinn er hugsaður sem upphaf plokk tímabilsins, vitundarvakning og hvatning. Fegurðin í plokkinu fellst einna helst í því hversu einfalt og sjálfbært það er í raun og veru að taka þátt. Því fylgir góð og heilbrigð hreyfing, útivera og félagskapur.
Plokk á Íslandi hvetur fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklinga að láta plokkið sig varða, taka þátt og hvetja aðra til þátttöku.

Á facebook svæðinu Plokk á Íslandi má gjarnan deila sigrum okkar á ruslinu með jákvæðum fréttum af árangri baráttunnar allt árið um kring.  Vertu með á stóra plokk deginum 30. apríl nk.