Fara í efni

Fjöliðjan og Búkolla

Fjöliðjan

Fjöliðjan er vinnustaður þar sem boðið er upp á verndaða vinnu og endurhæfingu fyrir þá sem þess þurfa og leita eftir þjónustu. Í Fjöliðjunni á Akranesi fer fram fjölbreytt vinna og starfsfólkið tekst á við mörg ólík verkefni. Húsinu er skipt í tvo hluta annars vegar vinnustöð þar sem framleiðsla og vinnsla fer fram auk atvinnu með stuðning og hins vegar Hæfing, þar sem einstaklingar með mikla fötlun fá einstaklingabundna leiðsögn. Fjöliðjan er staðsett á Smiðjuvöllum 9 og er hún opin alla virka daga frá kl. 8:00-11:45 og frá kl: 13:00-15:30.

Fjöliðjan tekur að sér ýmis pökkunar verkefni. Upplýsingar gefa Guðmundur Páll forstöðumaður á netfangið gpj@fjolidjan.is og Árni Jón Harðarson verk- og deildarstjóri á netfangið arni@fjolidjan.is  eða í síma 433 1722.

Markmið Fjöliðjunnar er að starfrækja verndaðan vinnustað á grundvelli laga um málefni fatlaðra:

  • Veita þeim sem ekki eiga kost á almennum vinnumarkaði atvinnu við sitt hæfi
  • Veita fötluðum þjálfun og endurhæfingu til að starfa á almennum vinnumarkaði
  • Veita starfsþjálfun sem eykur möguleika til blöndunar í samfélagi ófatlaðra á gagnkvæmum forsendum
  • Bjóða upp á næg og fjölbreytt verkefni sem taka mið af þjálfunargildi
  • Líkja sem mest eftir algengum (væntanlegum) vinnuaðstæðum og kröfum á almennum vinnumarkaði
  • Veita öllum viðskiptavinum (þjónustuþegum) góða og sveigjanlega þjónustu er fellur að mismunandi þörfum og óskum þeirra
  • Starfsemi Fjöliðjunnar verði í sem mestum tengslum við atvinnulífið og að allar aðstæður og starfskjör líkist því sem almenn gerist

Einstaklingar með lögheimili á Akranesi og Hvalfjarðarsveit geta sótt um starf hjá Fjöliðjunni. Nánari upplýsingar gefa Guðmundur Páll forstöðumaður á netfangið gpj@fjolidjan.is og í síma 433 1720 eða Ásta Pála Harðardóttir yfirþroskaþjálfi á netfangið astapala@fjolidjan.is  og í síma 433 1723.
Eftir móttöku umsóknar fær umsækjandi viðtalstíma hjá forstöðumanni og/eða yfirþroskaþjálfa og eftir atvikum atvinnumálafulltrúa atvinnu með stuðning. Í framhaldi af því er umsóknin tekin fyrir á atvinnuteymisfundi sem afgreiðir umsóknina.

Búkolla

Nytjamarkaðurinn Búkolla hefur verið starfandi á Akranesi síðan árið 2009. Starfsemi Búkollu felst í endurnýtingu fatnaðar og alls þess sem að heimilishaldi lýtur. Akurnesingar og nærsveitamenn hugsa hlýlega til Búkollu þegar þeir losa sig við fatnað, húsgögn eða annan húsbúnað sem öðlast nýtt líf á öðrum heimilum. Í Búkollu býðst fólki á örorku og endurhæfingu störf.

Búkolla er sjálfsstæð eining sem rekinn er undir Fjöliðjunni. Spurningum varðandi Búkollu svara umsjónaraðili Búkollu Erla Björk Berndsen, forstöðumaður Fjöliðjunnar Guðmundur Páll Jónsson og yfirþroskaþjálfi Fjöliðjunnar Ásta Pála Harðardóttir.

Búkolla er staðsett á Smiðjuvöllum 9 og er markaðurinn opinn fimmtu,- föstu- og laugardaga frá kl. 12-15. Vörumóttaka er þriðjudaga til föstudaga frá kl. 10-15 og laugardaga frá kl. 12-15. Einnig er fatagámar fyrir utan Smiðjuvelli 9 og nytjagámur á gámasvæði Terra á opnunartíma.
Nánari upplýsingar fást í síma 433 1726 hjá umsjónarmanni.

Facebooksíða Búkollu