Fara í efni

Sumarstörf fyrir námsmenn laus til umsóknar

Auglýst eru laus til umsóknar 2 sumarstörf fyrir námsmenn, á 18. ári og eldri, með lögheimili í Hvalfjarðarsveit.  Námsmenn þurfa að vera á skráðir í nám að hausti 2021 eða verið skráðir í nám á vorönn 2021.  Störfin eru m.a. hluti af atvinnuátaki sveitarfélagsins í samvinnu við Vinnumálastofnun.

Leitað er eftir áhugasömu fólki með ríka þjónustulund, metnað til að skila góðu starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum.  Starfstímabil er allt að 2,5 mánuðir á tímabilinu júní til ágúst 2021.  Störfin sem um ræðir eru:

Átaksverkefni í fegrun og tiltekt í sveitarfélaginu.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stéttarfélags Vesturlands.

Umsóknarfrestur er til og með 14. maí nk.

Sótt er um í gegnum heimasíðu Hvalfjarðarsveitar, laus störf, sjá hér
Með umsókn skal fylgja vottorð um nám á vorönn 2021 eða staðfesting á skráningu í nám haustönn 2021. 

 Nánari upplýsingar um störfin eru veittar á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar í síma 433 8500 eða á netfanginu hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is