Fara í efni

Sveitarstjórn

449. fundur 04. september 2026 kl. 16:30 - 17:45 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3 - Upptaka byrjar á 51. mínútu
Nefndarmenn
  • Haraldur Benediktsson oddviti
  • Guðrún Sigríður Gísladóttir aðalmaður
  • Guðbjartur Þór Stefánsson aðalmaður
  • Einar Þórarinsson aðalmaður
  • Brynhildur Stefánsdóttir aðalmaður
  • Þóra Margrét Júlíusdóttir aðalmaður
  • Baldur Þór Ketilsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Björn Bjarki Þorsteinsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri
Dagskrá
Haraldur Benediktsson oddviti bauð fundarmenn velkomna og setti fund skv. fyrirliggjandi dagskrá auk þess að óska eftir, með vísan til c.liðar 16. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar, að bæta með afbrigðum eftirfarandi málum á dagskrá:

Mál nr. 2608006F, fundargerð umhverfis-,skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar frá 67. fundi nefndarinnar sem haldinn var 3. september sl. Mál verð nr. 5 á dagskrá verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0

Mál nr. 2608021 - Beitistaðir L188429 - Beiðni um aðalskipulagsbreytingu. Málið verður nr. 5.2 á dagskránni verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0

Mál nr. 2504025 - Katanesvegur, Grundartanga - aðalskipulagsbreyting. Málið verður nr. 5.4 á dagskránni verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0

Mál nr. 2602035 - Fellsendi L133625 - Aðalskipulagsbreyting og nýtt deiliskipulag. Málið verður nr. 5.5 á dagskránni verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0

1.Sveitarstjórn - 448

2607004F

Fundargerðin framlögð.

2.Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 93

2608002F

Fundargerðin framlögð.
Til máls tók: GÞS
  • Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 93 Verkið er unnið í samstarfi Hvalfjarðarsveitar og Faxaflóahafna. Hvalfjarðarsveit sér um framkvæmd stígagerðar í landi Fellsenda, en þar er um að ræða um 300 m langan kafla. Í landi Klafastaða er um að ræða um 1.200 m langan kafla sem Faxaflóahafnir greiða fyrir. Faxaflóahafnir hafa nú þegar látið leggja um 650 m af stígnum og hafa jafnframt gefið vilyrði fyrir því að ljúka þeim hluta stígsins sem fellur undir þeirra verkhluta og hefur sá hluti verið unninn af Þrótti ehf.

    Fyrir liggur verklýsing vegna framkvæmdarinnar, þar sem m.a. er gert ráð fyrir uppbyggingu stígsins með styrktarlagi og malarslitlagi.

    Mannvirkja- og framkvæmdarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samið verði við Þrótt ehf. um framkvæmd verkhluta Hvalfjarðarsveitar í landi Fellsenda.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn samþykkir tillögu mannvirkja- og framkvæmdanefndar um að samið verði við Þrótt ehf. um framkvæmd verkhluta Hvalfjarðarsveitar í landi Fellsenda.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. 

    Til máls tók: ÞMJ

3.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 66

2607005F

Fundargerðin framlögð.
Til máls tók:EÞ
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 66 Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 þar sem ábendingar sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar hafa eftir atvikum verið hafðar til hliðsjónar.
    Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir reit S13 í Melahverfi á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Verður tillagan og forsendur hennar kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir reit S13 í Melahverfi á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Verður tillagan og forsendur hennar kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Velferðar- og fræðslunefnd - 13

2608003F

Fundargerðin framlögð.
Til máls tók: GSG

5.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 67

2608006F

Fundargerðin framlögð.
Til máls tók: EÞ
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 67 Skv. almennum skilmálum fyrir íbúðarbyggð í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 segir m.a. að ekki sé gert ráð fyrir nýjum íbúðarsvæðum í dreifbýli á skipulagstímanum.
    Fulltrúar Hvalfjarðarsveitar áttu í ágúst sl., fund með fulltrúum Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar breikkunar (2 plús 1) hringvegs / þjóðvegar 1 um Hvalfjarðarsveit og þar kom fram að unnið er með nokkrar sviðsmyndir varðandi staðsetningu nýju veglínunnar og kom á fundinum fram að vænta mætti frekari niðurstaðna varðandi framtíðar veglínu um Hvalfjarðarsveit, síðar á þessu ári.
    Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir í því ljósi að hafna erindinu vegna ákvæða í aðalskipulagi um að ekki sé gert ráð fyrir nýjum íbúðarsvæðum á skipulagstímanum og vegna óvissu um framtíðar legu þjóðvegar 1 um Hvalfjarðarsveit.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar og hafnar erindinu.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

    Til máls tóku: EÞ og HB
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 67 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Katanesveg á Grundartanga og leggur til að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til afgreiðslu að nýju skv. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Samþykkt með 4 atkvæðum, 1 á móti (ÞMJ).

    Bókun frá ÞMJ: Þær breytingar sem gerðar hafa verið á aðalskipulagsbreytingunni eru að mínu mati nauðsynlegar til að standa betur vörð um möguleg neikvæð áhrif fyrirhugaðrar landeldisstöðvar. Umhverfisáhrifin eru eftir sem áður metin nokkuð neikvæð á vatnshlot, gróður og fuglalíf á svæðinu. Að auki eru áhrifin á nærliggjandi byggð og starfsemi ekki metin sem skyldi. Ég mótmæli því enn þessari aðalskipulagsbreytingu.


    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Katanesveg á Grundartanga og leggur til að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til afgreiðslu að nýju skv. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum. Á móti 2 (ÞMJ og BÞK).

    Til máls tók: ÞMJ
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 67 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að heimila landeiganda að vinna tillögu að breytingu á aðalskipulagi með hliðsjón af þeim athugasemdum og ábendingum sem komið hafa fram og í samræmi við framlagða tillögu að úrvinnslu umsagna.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar og heimilar landeiganda að vinna tillögu að breytingu á aðalskipulagi með hliðsjón af þeim athugasemdum og ábendingum sem komið hafa fram og í samræmi við framlagða tillögu að úrvinnslu umsagna.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.

2505008

Framlagðar tillögur að Viðaukum við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026 nr. 20 - 36.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 20 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 2.120.000 kr. vegna kaupa á tölvubúnaði og húsgögnum og samnings um langtímaleigu á bifreið. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 21 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 0 kr. vegna breytinga á reglugerð 1212/2015 um að sundlaugar og íþróttahús verði að vera sjálfstæðar einingar. Breytingin felur í sér færslu á fjárheimildum á milli deilda."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 22 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 0 kr. vegna breytinga á reglugerð 1212/2015 á málaflokkum 02 og 01. Breytingin felur í sér færslu á fjárheimildum á nýjar deildir."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 23 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 0 kr. vegna breytinga á reglugerð 1212/2015 um úrgangsmál. Breytingin felur í sér færslu á fjárheimildum á nýjar deildir."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.


Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 24 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 21.470.523 kr. vegna breytinga á reglugerð 1212/2015 varðandi skólaskrifstofu, vegna hækkunar á skólaakstri samkvæmt útboði, kostnaði við útboð og önnur vörukaup. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 25 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 0 kr. vegna niðurfellingu á málaflokki 13 í reglugerð 1212/2015. Breytingin felur í sér færslu á fjárheimildum á nýjar deildir undir málaflokki 11."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 26 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 0 kr. vegna niðurfellingu á málaflokk 03 í reglugerð 1212/2015. Breytingin felur í sér færslu á fjárheimildum á nýjar deildir."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 27 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 0 kr. vegna niðurfellingu á málaflokk 10 í reglugerð 1212/2015. Breytingin felur í sér færslu á fjárheimildum á nýjar deildir undir málaflokki 09."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 28 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 774.066 kr. vegna breytinga á launum fyrstu varamanna í sveitarstjórn, hækkun á styrk til tölvukaupa og breytinga á þjónustugjöldum. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 29 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 0. kr. þar sem fjárheimildir eru fluttar á milli deilda. Lögfræðikostnaður er áætlaður á einni deild 21048 í upphafi árs, hann er nú færður með viðauka á þær deildir sem hafa þurft að nýta sér lögfræðiþjónustu það sem af er árinu."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 30 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 28.463.341 kr. vegna launakostnaðar. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 31 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 4.559.780 kr. vegna launakostnaðar á deildum 05002 og 06002. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 32 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 1.236.062 vegna fjölgunar funda hjá Menningar og markaðsnefnd, Ungmennaráði og Öldungaráði. Ástæðan er annars vegna vanáætlaður fjöldi funda í upphaflegri fjárhagsáætlun og hins vegar breytinga á reglum sveitarfélagsins um fundarlaun. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 33 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 1.420.246 kr. vegna þjóðaratkvæðagreiðslu og sveitarstjórakosninga. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 34 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 0 kr. vegna breytinga á deildum í málaflokki 02 samkvæmt reglugerð 1212/2015. Breytingin felur í sér færslu á fjárheimildum á nýjar deildir."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 35 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 14.530.953 kr. vegna aukins launakostnaðar í leikskólanum Skýjaborg. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 36 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 0 kr. vegna tilfærslu á frístundarstarfi barna eftir skóla samkvæmt reglugerð 1212/2015. Breytingin felur í sér færslu á fjárheimildum á nýja deild."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Reglur Hvalfjarðarsveitar um laun sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna.

2204048

Framlagðar til afgreiðslu sveitarstjórnar uppfærðar reglur.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir tillögu að uppfærðum reglum um laun sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Tímasetningar sveitarstjórnarfunda á næstunni.

2608005

Tímasetning næsta sveitarstjórnarfundar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar, nr. 450, verði haldinn þriðjudaginn 29. september kl. 15:00."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg

2509011

Velferðar- og fræðslunefnd Hvalfjarðarsveitar bókaði eftrfarandi á 13. fundi sínum:



"Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir að fela velferðar- og fræðsludeild að uppfæra gjaldskrá Heiðarborgar, ásamt drögum að útleigureglum og öryggis- og umgengnisreglum, í samræmi við umræður á fundinum. Uppfærð gögn verði í framhaldinu lögð fyrir sveitarstjórn til samþykktar."



Sveitarstjórn tekur til afgreiðslu tillögu að gjaldskrá Heiðarborgar og fyrirliggjandi tillögur að útleigureglum og öryggis- og umgengnisreglum.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá ásamt tillögum að útleigureglum og öryggis- og umgengnisreglum.
Þar sem ekki var gert ráð fyrir tekjum af rekstri mannvirkisins á yfirstandandi ári, og jafnframt er um að ræða nýtt mannvirki og nýja starfsemi að verulegu leyti, samþykkir sveitarstjórn að aðgangur að aðstöðunni verði gjaldfrjáls til áramóta.
Tímabilið verði nýtt til sérstaks átaksverkefnis þar sem íbúar Hvalfjarðarsveitar, sumarhúsaeigendur og aðrir sem dvelja í sveitarfélaginu eða heimsækja verði hvattir til að kynna sér og nýta hina nýju aðstöðu. Markmiðið er að stuðla að virkri notkun mannvirkisins frá upphafi, skapa jákvæða menningu í kringum starfsemina og efla hreyfingu, samfélagsþátttöku og lýðheilsu. Er forstöðumanni falið í samstarfi við velferðar- og fræðsludeild að útfæra hvernig skráningu verði best háttað þannig að notkun á mannvirkinu og aðstöðunni verði skráð frá fyrsta degi.
Samþykkt gjaldskrá taki gildi 2. janúar 2027.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að fela velferðar- og fræðsludeild að þróa og útfæra tillögu að heilsupassa í Heiðarborg fyrir starfsfólk sveitarfélagsins. Málinu er vísað til umfjöllunar í velferðar- og fræðslunefnd.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.


Til máls tóku: GSG, BS, BBÞ, BKÞ og HB

10.Skammtímadvöl á Vesturlandi

2501005

Framlögð tillaga að rekstrarformi og rekstrarfyrirkomulagi Skammtímadvalar á Vesturlandi. Samskonar erindi liggur fyrir hjá öðrum sveitarfélögum á Vesturlandi og er óskað eftir formlegri afstöðu sveitarfélaganna til þátttöku og stofnunar sjálfseignarstofnunar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir aðild Hvalfjarðarsveitar að rekstri Skammtímadvalar á Vesturlandi og þá tillögu sem fyrir liggur að rekstrarformi og rekstrarfyrirkomulagi.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Til máls tóku: GSG, BBÞ og BS

11.Barnaverndarþjónusta Vesturlands

2605004

Lagður er fram til staðfestingar viðauki við samning Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar um barnaverndarþjónustu. Samningur hefur verið birtur í Stjórnartíðindum, nr.121/2024. Með viðauka þessum verða Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundafjarðarbær, Snæfellsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur aðili að samningnum. Samstarf sveitarfélaganna verður nefnt Barnaverndarþjónusta Vesturlands.

Einnig fylgir hér með í fundargögnum aðalsamningur sá sem viðauki er gerður við.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar veitir samþykki sitt á viðauka við samning Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar um barnaverndarþjónustu. Með viðauka þessum verða Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundafjarðarbær, Snæfellsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur aðili að samningnum. Samstarf sveitarfélaganna verður nefnt Barnaverndarþjónusta Vesturlands.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Til máls tóku: GSG, BS og BBÞ

12.Farsældarráð Vesturlands.

2509021

Hvalfjarðarsveit ber að tilnefna einn aðalmann og einn varamann í ráðið.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að aðalfulltrúi Hvalfjarðarsveitar í Farsældarráði Vesturlands verði Guðrún Sigríður Gísladóttir og varamaður Andrea Ýr Arnarsdóttir."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

13.Beiðni um gerð samnings í tengslum við starf ungmenna- og íþróttafélags Hvalfjarðarsveitar í Heiðarborg.

2608011

Erindi frá Ungmenna-og íþróttafélagi Hvalfjarðarsveitar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að Ungmenna- og íþróttafélag Hvalfjarðarsveitar fái endurgjaldslaus afnot af íþróttaaðstöðu í Heiðarborg eftir að mannvirkið verður tekið í notkun á næstu vikum og fram til næstu áramóta. Í millitíðinni verði unnið að gerð samkomulags við félagið um afnot af mannvirkinu og samvinnu við sveitarfélagið á komandi tímum. Afnotin verði bókuð til tekna hjá Íþrótta- og samfélagsmiðstöðinni Heiðarborg og til gjalda sem styrkveiting til íþrótta- og æskulýðsmála. Sama fyrirkomulag verði viðhaft við önnur ungmenna- og íþróttafélög á umræddu tímabili. Fyrirkomulagið verði endurskoðað á nýju ári eða þegar reynsla hefur fengist af starfsemi Heiðarborgar.
Málinu er vísað til kynningar í Velferðar- og fræðslunefnd.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

14.Dynskógar 4 - umsagnarbeiðni - gistileyfi.

2608019

Erindi frá Sýslumanninum á Vesturlandi varðandi umsagnarbeiðni.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu að fengnu áliti umhverfis- og skipulagsdeildar:
Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi: Lóðin sem um ræðir er innan svæðis frístundabyggðar (F49) skv. aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og er svæðið deiliskipulagt að hluta.
Í lýsingu og skilmálum fyrir „Frístundabyggð“ segir í almennum skilmálum aðalskipulagsins:
„Almennt er ekki heimilt að stunda atvinnurekstur á frístundasvæði.
Komi fram ósk um atvinnurekstur, t.d. gisting í flokki I og II, gallery eða annað, þarf að skoða aðstæður á hverjum stað.
Áður en starfsemi er heimiluð þarf að liggja fyrir samþykki landeiganda og allra lóðarhafa á svæðinu.
Aðstæður þurfa að bjóða uppá aðgengi sem veldur sem minnstri truflun.
Gera skal ráð fyrir starfsemi í gildandi deiliskipulagi.“

Líkt og kemur fram í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 er ekki gert ráð fyrir þessari starfsemi í aðalskipulagi sveitarfélagsins nema að undangenginni skoðun aðstæðna á hverjum stað, öflun samþykkis landeiganda og allra lóðarhafa á svæðinu og gerð breytingar á deiliskipulagi svæðisins þar sem gert verði ráð fyrir fyrirhugaðri starfsemi. Umsögn sveitarfélagsins er því neikvæð á grundvelli aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og tilkynnist hér með.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

15.Ósk um fjárstuðning vegna haustferðar 2026.

2608017

Erindi frá Félagi eldri borgara í Hvalfjarðarsveit varðandi stuðning við Haustferð félagsins, óskað er eftir kr. 100.000,-
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Félagi eldri borgara í Hvalfjarðarsveit stuðning upp á kr. 100.000,-vegna Haustferðar árið 2026.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

16.Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum.

2608020

Erindi frá faghópi 3 í Háskólanum á Akureyri þar sem óskað er viðbragða frá sveitarstjórnum á vindorkuhugmyndum. Um er að ræða hugmyndir um Mosfellsheiðarvirkjanir I og II, sem yrðu með staðsetningu í Grímsnes- og Grafningshreppi og í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að beina erindinu til umsagnar og afgreiðslu í Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Til máls tóku: GÞS, BS og BÞK

17.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Heilbrigðisnefnd Vesturlands.

2602042

Fundargerð 203. fundar.

Fundi slitið - kl. 17:45.

Efni síðunnar