Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd
Dagskrá
1.Umhverfisviðurkenningar Hvalfjarðarsveitar
2504009
Viðurkenningarnar voru veittar á Vinavelli við athöfn á Hvalfjarðardögum og í ár voru þær veittar fyrir snyrtilegasta býlið ábúendum í Hlíð, en þar búa Ingibjörg Unnur Pétursdóttir og Eyjólfur Jónsson, Héðinn Eyjólfsson og Ozilene Laurindo. Fyrir snyrtilegasta garðinn hlutu viðurkenninguna íbúar að Ósi 3, Olga Magnúsdóttir og Helgi Ómar Þorsteinsson.
Nefndin þakkar öllum þeim sem sendu inn tilnefningar til sveitarfélagsins.

Til kynningar.
2.Garðavellir 2 - Umsókn um stækkun lóðar
2607008
Umsókn Garpa ehf / Þorsteins J. Hannibalssonar, Garðavöllum 2, þar sem óskað er eftir að fá að stækka lóð sína að Garðavöllum 2 um 2 metra til norðurs. Stækkunin nemur 65,5 m². Með erindinu fylgdi uppdráttur ásamt greinargerð og hnitaskrá frá EFLU dags. 10.07.2026.
Í gildi er deiliskipulag fyrir Kross, 1. áfanga, sem tók gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda í apríl 2021, og skv. því skipulagi er lóðin Garðavellir 2 tilgreind 811 m2.
Sveitarfélaginu hefur áður borist fyrirspurn þar sem lóðareigandi í landi Kross, óskaði stækkunar á lóð sinni og var ekki tekið jákvætt í þá fyrirspurn á sínum tíma. Rétt er að geta þess að íbúðarhúsalóðir í landi Kross eru eignarlóðir.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd leggur til að lóðarstækkanir í þéttbýli almennt, fái umfjöllun við endurskoðun aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar þegar þar að kemur.
Í ljósi þess deiliskipulags sem í gildi er á svæðinu og þess sem að ofan greinir, telur umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd sér ekki fært um að samþykkja erindið og er því hafnað.

3.Erindi til USNL-nefndar - Beiðni um lögfræðiálit vegna skilmála Aðalskipulags
2607012
Erindi frá Axel Helgasyni.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd þakkar erindið og þær ábendingar sem þar koma fram.
Nefndin fagnar því að lausn hafi fundist á afgreiðslu deiliskipulags fyrir Þórisstaði 2 og að tillagan sé komin í auglýsingu.
Nefndin telur þau álitaefni sem erindið lýtur að raunveruleg, annars vegar inntak ákvæðis gildandi aðalskipulags um samþykki lóðarhafa og hins vegar hvernig staðið verði að öflun slíks samþykkis þegar ekki næst í lóðarhafa eða óvissa er um fyrirsvar. Þau eiga við um fleiri frístundabyggðir í sveitarfélaginu en Þórisstaði 2.
Málefni frístundabyggða eru nú til umfjöllunar hjá sveitarfélaginu vegna fyrirliggjandi breytingar á skilmálum frístundabyggðar í aðalskipulagi. Nefndin mun hér eftir sem og hingað til, afla þeirra gagna, upplýsinga og ráðgjafar sem hún telur nauðsynlega til að ákvarðanir hennar hvíli á traustum grunni. Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd telur sér að öðru leyti ekki fært um að verða við erindinu og er því hafnað.

4.Erindi til USNL-nefndar - Beiðni um afstöðu nefndar til útgáfu byggingarheimilda að Þórisstöðum 2
2607013
Erindi frá Axel Helgasyni.
Byggingarfulltrúi leitar álits Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar sé fyrirhuguð framkvæmd á svæði sem ætlað er undir frístundabyggð og deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Um slík erindi gildir 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samkvæmt 1. mgr. getur sveitarstjórn, eða sá aðili sem heimild hefur til fullnaðarafgreiðslu mála skv. 6. gr., ákveðið að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar sé framkvæmdin í samræmi við aðalskipulag og við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu.
Ákvörðun um að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar er samkvæmt þessu ekki á forræði nefndarinnar heldur sveitarstjórnar. Þá er nefndinni skv. 3. mgr. sömu greinar heimilt að stytta kynningartíma eða falla frá grenndarkynningu, en hvort tveggja er bundið mati á fyrirliggjandi gögnum í einstökum málum og verður ekki ákveðið fyrirfram gagnvart ótilgreindum umsóknum.
Nefndin telur sér því ekki fært að verða við erindi um almenna fyrirframheimild til útgáfu byggingarheimilda án grenndarkynningar og er því hafnað.

5.Framkvæmdaleyfi - Þórisstaðavirkjun.
2606011
Erindi frá Axel Helgasyni.
Í erindinu er m.a. óskað eftir að USNL-nefnd taki afstöðu til hvort skipulagsfulltrúa verði heimilað að gefa út framkvæmdaleyfi vegna Þórisstaðavirkjunar eftir uppfærslu skipulagstillögu sem varðar frístundabyggð og smávirkjun að Þórisstöðum og Þórisstöðum 2, og vill nefndin taka fram að málið á sér forsögu en þann 12. desember 2023 var áður sótt um framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðrar vatnsaflsvirkjunar í Kúhallará í landi Þórisstaða.
Umsóknin var tekin fyrir á fundi umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar þann 17. apríl 2024 og hafnaði nefndin umsókninni með vísan til þess að ekki lægi fyrir deiliskipulag vegna fyrirhugaðra framkvæmda.
Í kjölfarið var skorað á sveitarstjórn að snúa ákvörðuninni við og urðu lyktir málsins þær að á fundi sveitarstjórnar 28. ágúst 2024 var erindinu synjað.
Þann 29. september 2024 var ákvörðunum sveitarfélagsins, m.a. um synjun framkvæmdaleyfisumsóknar, skotið til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Með úrskurði, uppkveðnum 15. apríl 2025 í máli nr. 106/2024, hafnaði nefndin kröfum um ógildingu ákvörðunar sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar frá ágúst 2024 um að synja umsókn um framkvæmdaleyfi vegna virkjunar í Kúhallará. Byggði synjunin á því að ekki lægi fyrir deiliskipulag fyrir framkvæmdinni í samræmi við skilyrði þar um í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.
Aftur var sótt um framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins 29. júní 2025 fyrir hluta af heildarframkvæmdinni m.a. fallpípu og vegslóða, þar sem áfangaskipta ætti framkvæmdinni.
Umsóknin var tekin fyrir á fundi umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar 2. júlí 2025 og hún afgreidd með þeim hætti að nefndin teldi sér ekki fært að verða við erindinu fyrr en staðfest deiliskipulag lægi fyrir. Var endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar sem á fundi sínum þann 9. júlí 2025 staðfesti bókun USNL-nefndar.
Með úrskurði uppkveðnum 31. október 2025, í máli nr. 125/2025, hafnaði úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kröfu um að ógilda ákvörðun sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar frá 9. júlí 2025 um að hafna umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir áfangaskiptri framkvæmd sem afmörkuð var við lagningu fallpípu og gerð vegslóða vegna fyrirhugaðrar virkjunar í Kúhallará. Byggði ákvörðun sveitarstjórnar á sömu sjónarmiðum og áður, þ.e. að ekki sé hægt að veita framkvæmdaleyfi fyrr en deiliskipulag virkjunarinnar liggi fyrir.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur nú auglýst tillögu að deiliskipulagi sem varðar frístundabyggð og smávirkjun að Þórisstöðum og Þórisstöðum 2, sbr. mál nr. 894/2026 í Skipulagsgátt.
Umrædd framkvæmd, skv. erindi landeiganda frá 12. júní 2026, telst þó ekki vera í samræmi við skipulag, sbr. 4. mgr. 14. gr. skipulagslaga, þótt sveitarfélagið hafi samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi og með hliðsjón af því að deiliskipulag virkjunar í Kúhallará hefur ekki tekið gildi er því að mati nefndarinnar ekki unnt að veita framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við virkjunina enda um að ræða skipulagsskylda framkvæmd, sbr. 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.
Erindið lýtur að því að nefndin heimili skipulagsfulltrúa útgáfu framkvæmdaleyfis. Ákvörðun um veitingu framkvæmdaleyfis er skv. 1. mgr. 13. gr. og 1. tölul. 1. mgr. 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á forræði sveitarstjórnar eða þess aðila sem heimild hefur til fullnaðarafgreiðslu mála skv. 2. mgr. 6. gr. sömu laga. Slík heimild verður aðeins veitt í samþykkt sveitarfélagsins, sbr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og hana er ekki að finna í samþykkt um stjórn Hvalfjarðarsveitar nr. 692/2022. Þá er hlutverk nefndarinnar samkvæmt erindisbréfi hennar að veita umsögn um framkvæmdaleyfi. Nefndin getur því hvorki veitt umbeðna heimild né framselt hana.

6.Endurskoðun aðalskipulags - Skilmálabreytingar - Varúðarsvæði / Þynningarsvæði
2206043
Kynning og staða málsins. Mál nr. 1361/2025 í Skipulagsgátt.
Með afgreiðslu 43. fundar USNL-nefndar þann 20.11.2024 samþykkti nefndin að hefja endurskoðun tiltekinna atriða í aðalskipulagi sveitarfélagsins m.a. varðandi atvinnurekstur í frístundabyggðum.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 24. september 2025 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir skilmálabreytingar á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sameiginleg skipulagslýsing var auglýst vegna breytinga á almennum skilmálum frístundabyggðar, landbúnaðarsvæða, skógræktar- og landgræðslusvæða og varúðar- og þynningarsvæðis.
Skipulagslýsing var auglýst var frá 02.10.2025-23.10.25 á skipulagsgátt.
Aðalskipulagsbreytingum var skipt upp eftir landnotkunarflokkum og voru í framhaldinu kynntar sem fjórar aðskildar breytingar.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 10. desember 2025 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
Auglýsingatími var frá 12. desember til 19. janúar 2026 og bárust 16 umsagnir.
Kynningarfundur var haldinn 13. janúar 2026 í stjórnsýsluhúsi sveitarfélagsins.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að fela Umhverfis- og skipulagsdeild að vinna minnisblað varðandi framhald málsins í samræmi við umræður á fundinum.
7.Endurskoðun aðalskipulags - Skilmálabreytingar - Frístundabyggð
2206043
Með afgreiðslu 43. fundar USNL-nefndar þann 20.11.2024 samþykkti nefndin að hefja endurskoðun tiltekinna atriða í aðalskipulagi sveitarfélagsins m.a. varðandi atvinnurekstur í frístundabyggðum og staðfesti sveitarstjórn afgreiðslu USNL-nefndar á 410. fundi sínum þann 27.11.2024.
Í umfjöllun USNL-nefndar við afgreiðslu lýsingar sbr. 53. fundur USNL-nefndar, kom eftirfarandi m.a. fram: "Aðalskipulagið tók gildi í maí árið 2023 og er því komin nokkur reynsla á að vinna eftir þeirri stefnu og skilmálum sem sett voru fram. Sveitarfélagið telur tilefni til að skerpa á skilmálum fyrir ákveðna landnotkunarflokka til að auðvelda framfylgd skipulagsins."
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti svo þann 24. september 2025 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir skilmálabreytingar á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sameiginleg skipulagslýsing var auglýst vegna breytinga á almennum skilmálum frístundabyggðar, landbúnaðarsvæða, skógræktar- og landgræðslusvæða og varúðar og þynningarsvæðis.
Auglýst var frá 02.10.2025-23.10.25 á skipulagsgátt. Aðalskipulagsbreytingum var skipt upp eftir landnotkunarflokkum og voru í framhaldinu kynntar sem fjórar aðskildar breytingar.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 10. desember 2025 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsingatími var frá 12. desember til 19. janúar.
Kynningarfundur var haldinn 13. janúar 2026 í stjórnsýsluhúsi sveitarfélagsins.
Breytingin sem hér um ræðir nær til almenna skilmála Frístundabyggðar(F). Markmið breytingarinnar er að skerpa á skilmálum sem varða atvinnurekstur innan frístundabyggðar. Óheimilt verður að vera með atvinnu starfsemi innan frístundasvæða án þess að skilgreina verslunar- og þjónustusvæði í aðalskipulagi.
Samþykkt var í sveitarstjórn 28. janúar 2026 að auglýsa tillögu að skilmálabreytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, fyrir frístundabyggð (F) með áorðnum breytingum, skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Kynningartími var frá 22. maí - 3. júlí 2026.
Sveitarfélaginu barst beiðni um lengri umsagnarfrest með tilvísun til samráðs við sumarhúsafélög í Hvalfjarðarsveit.
Vegna þess var ákveðið að framlengja frest til þess að koma að athugasemdum eða ábendingum, til 4. ágúst sl.
Fyrir fundinum liggur samantekt umsagna og viðbrögð við þeim.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að fresta afgreiðslu málsins.
8.Melahverfi S13 - Aðalskipulagsbreyting
2604024
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti auglýsingu skipulagslýsingar fyrir breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 skv. 1. mgr.36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, á fundi sínum 9. júlí s.l.
Breytingin tekur til samfélagsþjónustureits S13 í Melahverfi þar sem unnið er að hönnun leikskóla og leikskólalóðar Skýjaborgar við Innrimel 7. Fyrirhuguð breyting nær til samfélagsþjónustureits S13 sem kemur til með að breytist lítillega og til samræmis breytist afmörkun á aðliggjandi skógræktar- og landgræðslusvæðinu S18. Gerð er breyting á uppdrætti og stærð svæða í aðalskipulagi en skilmálar haldast óbreyttir. Samhliða aðalskipulagsbreytingu er gerð breyting á Deiliskipulagi fyrir Melahverfi I og II, þar sem lóðin Innrimelur 7 stækkar, byggingarmagn eykst og lega Innrimels, aðkoma, gangstétt og bílastæði eru nánar útfærð.
Kynning skipulagslýsingarinnar var frá 22. júlí - 12. ágúst í Skipulagsgátt og bárust 5 umsagnir þ.e. frá Vegagerðinni, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun ásamt Náttúruverndarstofnun.
Fyrir fundinum liggur vinnslutillaga.

Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 þar sem ábendingar sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar hafa eftir atvikum verið hafðar til hliðsjónar.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir reit S13 í Melahverfi á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Verður tillagan og forsendur hennar kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

9.Gátlistar skipulagsmála - Breytt verklag
2608003
Erindi frá Húsnæðis-, mannvirkja-, og skipulagsstofnun, dags. 6. ágúst 2026 HMS til allra skipulagsfulltrúa er varðar yfirferðar mála sem berast stofnuninni að lokinni auglýsingu. Borið hefur á því að ekki hafi öll gögn sem berast stofnunni verið fullnægjandi sem hefur m.a. leitt til þess að HMS hefur þurft að gera athugasemdir við atriði sem almennt væri æskilegt að leyst yrðu fyrr í skipulagsferlinu. Slíkt getur tafið gildistöku mála og leyfisveitingar vegna framkvæmda, með tilheyrandi óhagræði fyrir alla hagsmunaaðila.
Sem dæmi má nefna:
- Ósamræmi við gildandi aðalskipulag m.s.br.
- Fjarlægðir frá ám, vötnum og sjó ekki uppfylltar
- Fjarlægðir frá vegum ekki uppfylltar
- Framsetning og umfjöllun um minjar ófullnægjandi
- Meira en ár er liðið frá því að athugasemdafresti lauk
Allt eru þetta atriði sem mikilvægt er að fari fram ítarleg yfirferð á áður en mál eru lögð fram til lokayfirferðar hjá HMS. Þegar slík atriði koma upp við lokayfirferð HMS getur það kallað á frekari samskipti og gagnaskil sem geta haft áhrif á afgreiðslutíma mála.
Til að stuðla að skilvirkara skipulagsferli og bæta gæði þeirra gagna sem berast HMS mun stofnunin héðan í frá fara fram á að með öllum skipulagsgögnum, aðal- og deiliskipulags, fylgi útfylltir gátlistar, annars vegar frá skipulagsráðgjafa og hins vegar frá skipulagsfulltrúa. Með markvissri notkun gátlistanna við undirbúning og yfirferð skipulagsmála væntum við þess að gæði gagna aukist, athugasemdum við lokayfirferð fækki og afgreiðsla mála verði skilvirkari fyrir alla aðila.
Jafnframt er minnt á að stafræn skipulagsgögn skulu fylgja með öðrum skipulagsgögnum og mikilvægt er að tryggt sé að þau séu á viðeigandi formi samkvæmt gagnalýsingu og leiðbeiningum og séu fullnægjandi svo unnt sé að ljúka afgreiðslu án frekari tafa af þeim sökum.
Áréttað er að yfirferð mála hefst ekki fyrr en öll gögn hafa borist.

Lagt fram til kynningar.
10.Stjórnsýslukæra nr. UUA2608005 - Ytri-Hólmur 1.
2608009
Lagt fram afrit af stjórnsýslukæru, móttekin 14. ágúst 2026 ásamt fylgigögnum, þar sem kærð er ákvörðun skipulagsfulltrúa 16. júlí sl. að hafna kröfu kæranda um tafarlausa stöðvun á yfirstandi framkvæmdum Veitna ohf. við endurnýjun vatnslagnar og niðurrif/byggingu lokahúss við Berjadalsá í landi Ytri-Hólms.
Lagt fram til kynningar.
11.Kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna synjunar og svarleysis um aðgang að gögnum, ÚNU 26020002.
2602005
Úrskurður í máli nr. ÚNU26020002 frá Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, dags. 11.08.2026, lagður fram til kynningar.
Í úrskurðarorðum nefndarinnar segir: Afgreiðsla sveitarfélagsins Hvalfjarðarsveitar á beiðni kæranda, dags. 18. desember 2025, varðandi gögn um Hólabrúarnámu er staðfest. Að öðru leyti er kæru frá 1. febrúar 2026 vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

Lagt fram.
12.Endurskoðun aðalskipulags Kjósarhrepps.
2512009
Lagt fram bréf frá Kjósarhrepp.
Lagt fram til kynningar.
13.Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 127
2606008F
Lagt fram til kynningar.
- 13.1 2604003 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Réttarhagi 2 - Flokkur 1Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 127 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breitingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform er samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
- 13.2 2604010 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Kúhalli 5 - Flokkur 1Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 127
Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breitingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform er samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa. - 13.3 2508039 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Kúludalsá 4D - Flokkur 2Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 127
Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breitingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform er samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa. - 13.4 2603003 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Skorholt 133795 - Flokkur 2Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 127 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breitingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform er samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
- 13.5 2506030 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Kúludalsá 4E - Flokkur 1Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 127 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breitingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform er samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
14.Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 128
2606009F
Lagt fram til kynningar.
- 14.1 2604027 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Hafnarskógar 1 - Flokkur 2Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 128 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breitingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform er samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
- 14.2 2607002 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Ljósheimar 2 - Flokkur 1Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 128 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breitingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform er samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
- 14.3 2607001 Móar L 207256 - Umsókn um stöðuleyfi.Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 128 Erindi samræmist ekki gildandi deiliskipulagi, erindinu er hafnað.
Fundi slitið - kl. 18:30.