Fara í efni

Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd

67. fundur 03. september 2026 kl. 13:30 - 18:05 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Bjarki Borgdal Magnússon formaður
  • Einar Þórarinsson varaformaður
  • Ása Hólmarsdóttir aðalmaður
  • Þóra Margrét Júlíusdóttir aðalmaður
  • Erna Elvarsdóttir Varamaður
Starfsmenn
  • Jökull Helgason embættismaður
  • Helga Harðardóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Jökull Helgason Deildarstjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar
Dagskrá

1.Námskeið fyrir nýja skipulagsnefnd

2206023

Námskeið um skipulagsmál frá kl. 13:30 fyrir nýja USNL-nefnd, aðal- og varamenn.

Námskeiðið er sniðið fyrir kjörna fulltrúa og nefndarmenn, einkum í skipulagsnefnd (USNL-nefnd). Farið verður yfir tilgang og markmið skipulagsgerðar, helstu hugtök í skipulagi, mismunandi gerðir skipulags, tímalínu skipulagsgerðar og skipulagsferlið með áherslu á ábyrgð sveitarfélagsins ofl.
Erla Bryndís Kristjánsdóttir og Gunnar Páll Eydal hjá Verkís fóru yfir skipulagsmál í víðu samhengi og ýmis viðfangsefni sem að skipulagsmálum lúta. Námskeiði lauk kl. 16:30.

2.Beitistaðir L188429 - Beiðni um aðalskipulagsbreytingu

2608021

Erindi frá Kristmundi Einarssyni f.h. Snóks ehf c/o Einars Péturs Harðarsonar.

Sótt er um að breyta landnotkun úr landi Beitistaða úr frístundabyggð F4 skv. aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 í íbúðabyggð.

Um er að ræða fasteignina Beitistaðaland L188429. Skv. fasteignaskrá HMS er svæðið skráð 35,6 ha.

Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.

Skv. aðalskipulagi er svæðið talið vera 37 ha.

Skv. aðalskipulagi kemur fram að svæðið sé óbyggt, en innan lóðarinnar er fasteignin Beitistaðir veiðihús L196600, skráð stærð skv. fasteignaskrá er 3.500 m2.

Við undirbúning málsins hitti deildarstjóri/skipulagsfulltrúi aðila málsins á fundi í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar, Kristmund Einarsson þann 26.08.2026 og Einar Harðarson þann 28.08.2026.
Skv. almennum skilmálum fyrir íbúðarbyggð í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 segir m.a. að ekki sé gert ráð fyrir nýjum íbúðarsvæðum í dreifbýli á skipulagstímanum.
Fulltrúar Hvalfjarðarsveitar áttu í ágúst sl., fund með fulltrúum Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar breikkunar (2 plús 1) hringvegs / þjóðvegar 1 um Hvalfjarðarsveit og þar kom fram að unnið er með nokkrar sviðsmyndir varðandi staðsetningu nýju veglínunnar og kom á fundinum fram að vænta mætti frekari niðurstaðna varðandi framtíðar veglínu um Hvalfjarðarsveit, síðar á þessu ári.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir í því ljósi að hafna erindinu vegna ákvæða í aðalskipulagi um að ekki sé gert ráð fyrir nýjum íbúðarsvæðum á skipulagstímanum og vegna óvissu um framtíðar legu þjóðvegar 1 um Hvalfjarðarsveit.

3.Aðkomuskilti við Hvalfjarðargöng

2606008

Sótt er um leyfi fyrir aðkomuskilti við Hvalfjarðargöng sem er 2,1 m á hæð, 5 m á breidd og ca. 25 cm að breidd, á skiltinu stendur: „Velkomin í Hvalfjarðarsveit“ ásamt með merki Hvalfjarðarsveitar.

Stærð steypta hluta skiltisins fyrir utan merki Hvalfjarðarsveitar er um 10,5 m2. Staðsetning skiltisins er á lítt grónu og þegar röskuðu svæði utan veghelgunarsvæðis Vegagerðarinnar.

Aðkomuskiltið verður staðsteypt eða forsteypt á steinsteyptri undirstöðu, merking verður útfræst plastefni með undirlýsingu. Nánari staðsetning kemur fram í umsóknargögnum og er nánar tiltekið í landi Kirkjubóls við enda slóða sem liggur frá bílaplani við Hringveg 1.



Á svæðinu er í gildi deiliskipulag Holtaflatar í landi Kirkjubóls og Innri-Hólms frá árinu 1995, ásamt síðari breytingu frá árinu 2025 vegna þjónustu- eða tækjahúss.

Umrætt svæði er skv. deiliskipulaginu skilgreint sem Þjónustusvæði. Skv. aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 er svæðið skilgreint sem landbúnaðarland L2 ásamt með Verslun- og þjónustusvæði VÞ6: Holtaflöt í landi Kirkjubóls, stærð svæðis um 1 ha.



Skv. 4. gr. reglna Hvalfjarðarsveitar um skilti, er óheimilt að setja upp skilti nema með leyfi byggingarfulltrúa (sbr. einnig byggingarreglugerð) og ber byggingarfulltrúa að leggja umsóknina fyrir Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd (USNL) til staðfestingar.



Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 9. júlí 2026 að grenndarkynna skuli fyrirhugaða framkvæmd meðal landeigenda Kirkjubóls og Innra-Hólms og sækja umsagnir til Umhverfis- og Orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar. Fyrir liggur samþykki Vegagerðarinnar dags. 16.04.2026. Einnig var grenndarkynnt hjá Olís, sem leigir landið af landeiganda.



Kynningartími grenndarkynningar í Skipulagsgátt var frá 30.07.2026 - 27.08.2026.

Umsögn barst frá Náttúruverndarstofnun dags. 20.08.2026, Vegagerðinni dags. 25.08.2026.

Skv. samtali deildarstjóra / skipulagsfulltrúa við Hallgrím Rögnvaldsson f.h. landeiganda Kirkjubóls og Innra-Hólms, þann 27. ágúst, og þann 5. ágúst sl., gerir hann f.h. landeigenda ekki athugasemd við umrætt skilti.

Þá gerir Olís ekki athugasemd við uppsetningu skiltisins, sem er á leigulóð Olís, og samþykkja uppsetningu á skiltinu en með þeim áskilnaði að framkvæmdin verði afturkræf ef áform Olís breytast með notkun á lóðinni. M.ö.o. er samþykkið bundið því skilyrði að skiltið þurfi að víkja komi til framkvæmda af hálfu Olís í framtíðinni. Þá staðfestir Olís að þeir muni ekki óska eftir leigugjaldi (landleigu) frá Hvalfjarðarsveit, vegna skiltisins.



Umsagnartíma grenndarkynningar er lokið í Skipulagsgátt í máli nr. 0906/2026, "Aðkomuskilti við Hvalfjarðargöng".



Skv. gr. 2.5.1 byggingarreglugerðar nr. 112/2012 skal sækja um byggingarleyfi fyrir öllum frístandandi skiltum sem eru yfir 1,5 m² að flatarmáli. Skiltið er um 10,5 m² að stærð, auk sveitarfélagsmerkis sem stendur lítillega uppúr fletinum og er því leyfisskylt. Byggingarfulltrúi gefur leyfið út skv. gr. 2.3.2 reglugerðarinnar og 9. gr. mannvirkjalaga.
Umhverfis-, skipulag, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulags- og byggingarfulltrúi veiti Hvalfjarðarsveit leyfi fyrir uppsetningu skiltisins.

4.Katanesvegur, Grundartanga- aðalskipulagsbreyting.

2504025

Hvalfjarðarsveit hefur, með erindi dags. 13. ágúst 2026, sent Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) til staðfestingar breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 samkvæmt 32. gr. skipulagslaga. Aðalskipulagsbreytingin var samþykkt í sveitarstjórn 9. júlí 2026.

Aðalskipulagsbreytingin er sett fram í greinargerð með umhverfismatsskýrslu og gildandi og breyttum aðalskipulagsuppdrætti í mkv. 1:50.000, dags. 15. apríl 2026 með seinni breytingum 29. júní 2026.

Með erindinu bárust umsagnir frá almenningi og umsagnaraðilum.

HMS hefur farið yfir framlögð gögn og bendir í bréfi sínu frá 21. ágúst sl., á nokkur atriði sem lagfæra þarf áður en stofnunin staðfestir aðalskipulagsbreytinguna.



Lagðar fram lagfæringar á greinargerð eftir athugasemdir HMS dags. 21.08.2026.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Katanesveg á Grundartanga og leggur til að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til afgreiðslu að nýju skv. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Samþykkt með 4 atkvæðum, 1 á móti (ÞMJ).

Bókun frá ÞMJ: Þær breytingar sem gerðar hafa verið á aðalskipulagsbreytingunni eru að mínu mati nauðsynlegar til að standa betur vörð um möguleg neikvæð áhrif fyrirhugaðrar landeldisstöðvar. Umhverfisáhrifin eru eftir sem áður metin nokkuð neikvæð á vatnshlot, gróður og fuglalíf á svæðinu. Að auki eru áhrifin á nærliggjandi byggð og starfsemi ekki metin sem skyldi. Ég mótmæli því enn þessari aðalskipulagsbreytingu.


5.Fellsendi L133625 - Aðalskipulagsbreyting og nýtt deiliskipulag.

2602035

Landeigandi Fellsenda L133625, stefnir að upplifunarmiðstöð þar sem fornbílasafn er miðpunktur auk annarrar þjónustu, s.s. veitingarreksturs, gistingar og fjölbreyttrar afþreyingar, á um 16 ha svæði. Jafnframt er gert ráð fyrir göngu- og hjólaleið milli Eiðisvatns og Akrafjalls. Landið er skilgreint sem landbúnaðarland í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og er innan varúðarsvæðis/þynningarsvæðis stóriðjuveranna á Grundartanga. Framkvæmdin kallar á breytingu á aðalskipulaginu þar sem skilgreint verður nýtt verslunar- og þjónustusvæði og gert ráð fyrir nýrri göngu- og hjólaleið. Samhliða breytingu á aðalskipulagi er unnið deiliskipulag fyrir svæðið. Unnin er sameiginleg umhverfismatsskýrsla fyrir bæði verkefnin. Eftir atvikum hafa umsagnir sem bárust á skipulagslýsingartímabili verið hafðar til hliðsjónar við gerð vinnslutillögu.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á 445. fundi sínum þann 25.06.2026 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Var tillagan og forsendur hennar kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum í Skipulagsgátt sbr. mál nr. 220/2026, Fellsendi L133625 - Upplifunarmiðstöð, bílasafn ofl. Kynningartími var frá 8.07.2026 til 19.08.2026.

Íbúafundur/kynningarfundur var haldinn á auglýsingartíma tillögunnar í Stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar þann 10.08.2026.

Alls bárust 9 umsagnir / athugasemdir á kynningartíma tillögunnar.



1) Veðurstofa Íslands dags. 14.07.2026, gerir ekki athugasemd.

2) Náttúruverndarstofnun dags. 16.07.2026, mun ekki veita umsögn um verkefnið á kynningarstigi, en stofnunin áskilur sér rétt á að veita umsögn á síðari stigum. Stofnunin bendir á jafnframt að hún hafi þegar veitt umsögn á fyrri stigum, svo sem á lýsingarstigi, og ber að leggja þá umsögn til grundvallar við gerð og afgreiðslu tillögunnar.

3) Vegagerðin dags. 20.07.2026, gerir m.a. athugasemdir við vegtengingu.

4) Landsnet dags. 11.08.2026, og segir í umsögn þeirra að um sé að ræða aðalskipulagsbreytingu í landi vestan við Klafastaði, þar sem mannvirki Landsnets, bæði tengivirki og flutningslínur séu staðsettar og að Landsnet fái ekki séð að fyrirhuguð upplifunarmiðstöð muni hafa áhrif á mannvirki eða rekstur þeirra, en óskar eftir að vera umsagnaraðili í frekari skipulagstillögum verkefnisins.

5) Borgarbyggð dags. 12.08.2026, gerir ekki athugasemd.

6) Minjastofnun Íslands dags. 17.08.2026, mun ekki veita umsögn um verkefnið á kynningarstigi, en stofnunin áskilur sér rétt á að veita umsögn á síðari stigum. Stofnunin bendir á jafnframt að hún hafi þegar veitt umsögn á fyrri stigum, svo sem á lýsingarstigi, og ber að leggja þá umsögn til grundvallar við gerð og afgreiðslu tillögunnar.

7) Heilbrigðiseftirlit Vesturlands dags. 18.08.2026, mun ekki veita umsögn um verkefnið á kynningarstigi, en áskilur sér rétt á að veita umsögn á síðari stigum. HeV bendir jafnframt á að það hafi þegar veitt umsögn á lýsingarstigi og ber að leggja þá umsögn til grundvallar við gerð og afgreiðslu tillögunnar.

8) Akraneskaupstaður dags. 18.08.2026. Í umsögn kemur fram að Skipulags- og umhverfisráð hafi kynnt sér vinnslutillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á Fellsenda, L133625. Ráðið vísar til fyrri umsagnar sinnar um skipulagslýsingu, dags. 19. mars 2026, og telur að fyrirliggjandi vinnslutillaga gefi ekki tilefni til frekari athugasemda af hálfu Akraneskaupstaðar. Að mati ráðsins snertir fyrirhuguð skipulagsgerð ekki beint hagsmuni Akraneskaupstaðar og gerir ráðið

því ekki athugasemdir á þessu stigi málsins en áskilur sér rétt til að koma á framfæri umsögn á síðari stigum skipulagsferlisins ef tilefni þykir til.

9) Náttúrufræðistofnun dags. 18.08.2026, vísar til fyrri umsagnar sinnar um málið, dags. 20. mars 2026, og ítrekar þau sjónarmið sem þar koma fram. Stofnunin telur ekki tilefni til frekari athugasemda.



Lögð er fram samantekt umsagna.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að heimila landeiganda að vinna tillögu að breytingu á aðalskipulagi með hliðsjón af þeim athugasemdum og ábendingum sem komið hafa fram og í samræmi við framlagða tillögu að úrvinnslu umsagna.

6.Innri Hólmur L133691 - Merkjalýsing - Stofnun lóðar

2608023

Sótt er um stofnun lóðar í landi Innri Hólms L133691, stærð 4.809 m2, sem fær nafnið Álafesti.

Tryggt er aðgengi að lóðinni um slóða/túnveg þann sem liggur frá vegi 51-509, Akrafjallsvegur/Akranesvegur.

Vatnsöflun úr vatnsbóli innan jarðarnnar, VB55 á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.

Meðfylgjandi eru gögn skv. lögum nr. 6/2001 og reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024.



Niðurstöður úr staðbundnu hættumati Veðurstofu Íslands eru að á byggingarreitnum, eins og hefur verið skilgreint í samráði við viðtakanda og afmarkað á korti, sé ofanflóðahætta talin ásættanleg. Því stenst byggingarreiturinn hættumat.



Fyrirhuguð lóð er á Landbúnaðarlandi L1 skv. Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.



Almennir skilmálar í aðalskipulagi:

- Ný íbúðarhús skulu vera innan við 1.500 m frá stofn- og tengivegum eða innan við 500 m frá núverandi héraðsvegum.

- Þar sem er föst búseta, er heimilt að stunda frístundabúskap eða minniháttar atvinnustarfsemi ótengda landbúnaði, m.a. með gistingu fyrir allt að 15 gesti. Tryggja skal aðkomu og að næg bílastæði séu innan lóðar til að anna starfsemi. Byggingar fyrir ótengda atvinnustarfsemi geta verið allt að 1.200 m².



Í skilmálum fyrir landbúnaðarland L1 segir:

Land sem er skilgreint sem úrvals landbúnaðarland (flokkur I sbr. kortlagningu), sléttlendi, frjósamur jarðvegur og nær grjótlaust og hentar því vel til akuryrkju. Að jafnaði er eingöngu heimilt að byggja til landbúnaðar eða í tengslum við rekstur búsins s.s. minni háttar rekstur með landbúnaði, til að auðvelda kynslóðaskipti eða byggingar til landbúnaðar. Lóðastærðir fara eftir umfangi framkvæmdar.

- Heimilt er að byggja upp í tengslum við núverandi bæjartorfur eða í jaðri svæða.

- Ekki er heimilt að rjúfa samfellu á góðu landbúnaðarlandi með mannvirkjum eða samfelldri skógrækt. Í einhverjum tilfellum getur mannvirkjagerð verið heimil í jaðri svæða.



Í kafla um landskipti í aðalskipulagi segir eftirfarandi:

Heimilt er að skipta út stökum lóðum og/eða skipta jörðum. Með umsókn um landskipti til sveitarstjórnar skulu fylgja upplýsingar um fjölda og stærð lóða/spildna, áform um uppbyggingu, aðkomu og tímaáætlun uppbyggingar, sé um slík áform að ræða. Við afgreiðslu umsókna um landskipti verður einkum litið til eftirtalinna þátta:

- Nýjar spildur séu í tengslum við og nýti þau veitu- og samgöngukerfi sem fyrir eru. Ekki verða heimiluð landskipti nema aðgengi að spildum frá þjóðvegi sé tryggt.

- Tekið sé tillit til hættusvæða, verndarsvæða og hvort um um gott landbúnaðarland sé að ræða.

- Fyrirhuguð uppbygging miði að því að halda í dreifbýlisyfirbragð í sveitarfélaginu.

- Með landskiptum verði almennum göngu- og reiðleiðum ekki lokað né aðgengi takmarkað að áhugaverðum stöðum eða svæðum takmarkað á nokkurn máta.



Markmiðið með takmörkun á landskiptum er að leitast við að tryggja sem best hagkvæma nýtingu veitukerfa og að gott landbúnaðarland verði áfram nýtt til landbúnaðar og matvælaframleiðslu.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að óska eftir mati á landbúnaðarlandi frá ráðunaut í ljósi þess að svæðið er á landbúnaðarlandi L1.
Afgreiðslu málsins frestað.

7.Stjórnsýslukæra nr. UUA2608005 - Ytri-Hólmur 1.

2608009

Lagt fram til kynningar.

Þann 25. ágúst sl., tók formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fyrir mál nr. UUA2608005, kæru á ákvörðunum skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar frá 16. júlí og 12. ágúst 2026 um að hafna kröfu um stöðvun á yfirstandandi framkvæmdum við endurnýjun vatnslagnar og niðurrif/byggingu lokahúss við Berjadalsá í landi Ytra-Hólms. Í úrskurðarorðum segir: "Kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda við endurnýjun vatnslagnar og niðurrif/byggingu lokahúss við Berjadalsá í landi Ytra-Hólms er vísað frá úrskurðarnefndinni."
Lagt fram.

8.Frumathugun á skipulagi vegna leikskóla á Innnesi

2607011

Á 447. fundi sveiarstjórnar þann 9. júlí 2026 var samþykkt undir lið 3.3 að fela Umhverfis- og skipulagsdeild að hefja greiningarvinnu og frumathugun á skipulagi vegna leikskóla á Innnesi / við Krossland.

Á 65. fundi USNL-nefndar þann 16. júlí sl., fól nefndin Umhverfis- og skipulagsdeild að vinnna að sviðsmyndum varðandi framtíðarsýn á svæðinu.
Rætt um mögulegar sviðsmyndir að staðsetningu leikskóla á svæðinu og voru umræður um málið.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd felur Umhverfis- og skipulagsdeild að vinna áfram að málinu til samræmis við umræður á fundinum.

9.Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 129

2608004F

Lagt fram til upplýsinga.
  • 9.1 2607006 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Sólarhóll (Narfastaðal. 4 no.2A) - Flokkur 1
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 129 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
  • 9.2 2608015 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Hafnarskógar 79 - Flokkur 1
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 129 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.

10.Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 130

2608007F

Lagt fram.
  • 10.1 2602043 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Birkihlíð 19 - Flokkur 1
    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 130 Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og samræmist skipulagsáætlunum. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. 2.3.8. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.

Fundi slitið - kl. 18:05.

Efni síðunnar