Fara í efni

Mannvirkja- og framkvæmdanefnd

93. fundur 18. ágúst 2026 kl. 15:30 - 17:30 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Guðjón Jónasson formaður
  • Guðbjartur Þór Stefánsson varaformaður
  • Róbert Eyvar Ólafsson aðalmaður
  • Inga María Sigurðardóttir aðalmaður
  • Vignir Már Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Hlynur Sigurdórsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Hlynur Sigurdórsson Verkefnastjóri framkvæmda og eigna
Dagskrá

1.Íþróttahús - Heiðarborg

2001042

Verkstaða íþróttahússins við Heiðarborg.
Fundarmenn fóru í vettvangsskoðun ásamt Velferðar- og fræðslunefnd á framkvæmdarsvæðið við Heiðarborg og kynntu sér stöðu framkvæmda.

2.Leikskólahúsnæði - Skýjaborg

2202016

Leikskólinn Skýjaborg - Útboð
Útboðsgögn vegna byggingar leikskólans Skýjaborgar hafa verið afhent verkfræðistofunni COWI, sem mun annast útboðsferlið fyrir hönd sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að útboðið verði auglýst á næstu dögum.
Inga María Sigurðardóttir víkur af fundi undir lið 2.

3.Göngu og reiðhjólastígar í sveitarfélaginu

2001040

Göngustígur við Eiðisvatn.
Verkið er unnið í samstarfi Hvalfjarðarsveitar og Faxaflóahafna. Hvalfjarðarsveit sér um framkvæmd stígagerðar í landi Fellsenda, en þar er um að ræða um 300 m langan kafla. Í landi Klafastaða er um að ræða um 1.200 m langan kafla sem Faxaflóahafnir greiða fyrir. Faxaflóahafnir hafa nú þegar látið leggja um 650 m af stígnum og hafa jafnframt gefið vilyrði fyrir því að ljúka þeim hluta stígsins sem fellur undir þeirra verkhluta og hefur sá hluti verið unninn af Þrótti ehf.

Fyrir liggur verklýsing vegna framkvæmdarinnar, þar sem m.a. er gert ráð fyrir uppbyggingu stígsins með styrktarlagi og malarslitlagi.

Mannvirkja- og framkvæmdarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samið verði við Þrótt ehf. um framkvæmd verkhluta Hvalfjarðarsveitar í landi Fellsenda.

4.Melahverfi III - Gatnaframkvæmd

2409030

Verkstaða gatnaframkvæmda Melahverfis III.
Verkstaða framkvæmda kynnt.

5.Torfholt - veituframkvæmdir.

2607015

Erindi frá Sigurði Arnari Sigurðssyni.
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd hafnar erindi bréfritara á grundvelli lögfræðiálits og felur verkefnastjóra framkvæmda og eigna að svara erindinu.

6.Samstarfsnefnd slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar.

2205016

Framlögð fundargerð 10. fundar Samstarfsnefndar slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar.
Fundargerð lögð fram.

7.Viðhalds- og framkvæmdaáætlun 2026 - 2029.

2601026

Verkefnastjóri framkvæmda og eigna fer yfir verkstöðu framkvæmda.

Fundi slitið - kl. 17:30.

Efni síðunnar