Fara í efni

Sveitarstjórn

442. fundur 13. maí 2026 kl. 15:23 - 15:58 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti
  • Helga Harðardóttir varaoddviti
  • Elín Ósk Gunnarsdóttir vararitari
  • Birkir Snær Guðlaugsson aðalmaður
  • Inga María Sigurðardóttir aðalmaður
  • Ása Hólmarsdóttir aðalmaður
  • Sæmundur Víglundsson 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Helga Harðardóttir varaoddviti
Dagskrá
Helgi Pétur Ottesen boðaði lögmæt forföll.

Oddviti óskar eftir, með vísan til c.liðar 16. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar, að bæta með afbrigðum eftirfarandi málum á dagskrá:

Mál nr. 2603016 - Hlíðarbær 10 - lóðarleigusamningur. Málið verður nr. 10 á dagskránni, verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0

Mál nr. 2605019 - Rekstraryfirlit janúar til mars 2026. - Málið verður nr. 17 á dagskránni, verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0

1.Sveitarstjórn - 441

2604004F

Fundargerðin framlögð.

2.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 62

2604003F

Fundargerðin framlögð.
EÓG fór yfir helstu atriði fundarins.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 62 Rætt um stöðu mála vegna sorpmóttökustöðvar.
    Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd leggur til að leitað verði eftir tímabundnu samstarfi við Akraneskaupstað um aðgengi íbúa Hvalfjarðarsveitar að móttökustöð Gámu á Akranesi.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að leitað verði eftir tímabundnu samstarfi við Akraneskaupstað um aðgengi íbúa Hvalfjarðarsveitar að móttökustöð Gámu á Akranesi. Umhverfis- og skipulagsdeild falið að vinna málið áfram og leggja það síðan fyrir sveitarstjórn að nýju."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 62 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti grenndarkynningu framkvæmdaleyfis vegna nýs leiksvæðis í landi Kross.
    Skv. 5. grein reglugerðar um framkvæmdaleyfi geta verulegar framkvæmdir við breytingar lands með jarðvegi svo sem efnislosun eða landmótun (t.d. manir), verið háðar framkvæmdaleyfi. Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd telur þó ekki að hér sé um verulegar framkvæmdir að ræða sem hafi veruleg áhrif á umhverfið og ásýnd þess.

    Skv. 8. grein reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 segir að þegar sótt er um framkvæmdaleyfi án þess að deiliskipulag liggi fyrir og framkvæmdin sé í þegar byggðu hverfi í þéttbýli eða í byggðakjarna utan þéttbýlis, í samræmi við meginforsendur í aðalskipulagi svo sem landnotkun, byggðamynstur og sé ekki líkleg til að valda verulegum umhverfisáhrifum, skuli skipulagsnefnd láta fara fram grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en ákvörðun um veitingu leyfis er tekin.
    Fyrir liggur skoðun á fornleifum á svæðinu og skýrsla sem gerð var af Fornleifastofnun Íslands (sjálfseignarstofnun) og gerir Minjastofnun Íslands ekki athugasemd við hana.
    Samþykkt að grenndarkynna fyrirhugaða framkvæmd meðal húseigenda / lóðarhafa við Garðavelli 8, 10, 9 og 11, og Krossvelli 4.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að grenndarkynningu framkvæmdaleyfis vegna nýs leiksvæðis í landi Kross. Skv. 5. grein reglugerðar um framkvæmdaleyfi geta verulegar framkvæmdir við breytingar lands með jarðvegi svo sem efnislosun eða landmótun (t.d. manir), verið háðar framkvæmdaleyfi. Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd telur þó ekki að hér sé um verulegar framkvæmdir að ræða sem hafi veruleg áhrif á umhverfið og ásýnd þess. Skv. 8. grein reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 segir að þegar sótt er um framkvæmdaleyfi án þess að deiliskipulag liggi fyrir og framkvæmdin sé í þegar byggðu hverfi í þéttbýli eða í byggðakjarna utan þéttbýlis, í samræmi við meginforsendur í aðalskipulagi svo sem landnotkun, byggðamynstur og sé ekki líkleg til að valda verulegum umhverfisáhrifum, skuli skipulagsnefnd láta fara fram grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en ákvörðun um veitingu leyfis er tekin. Fyrir liggur skoðun á fornleifum á svæðinu og skýrsla sem gerð var af Fornleifastofnun Íslands (sjálfseignarstofnun) og gerir Minjastofnun Íslands ekki athugasemd við hana. Sveitarstjórn samþykkir að grenndarkynna fyrirhugaða framkvæmd meðal húseigenda / lóðarhafa við Garðavelli 8, 10, 9 og 11, og Krossvelli 4."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 62 Skv. 5. grein reglugerðar um framkvæmdaleyfi geta verulegar framkvæmdir við stígagerð verið háðar framkvæmdaleyfi.
    Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti veitingu framkvæmdaleyfis til eins árs frá staðfestingu sveitarstjórnar, vegna stígagerðar í landi Fellsenda og Klafastaða, á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Stígur meðfram Eiðisvatni verði unnin 1. ágúst 2026 eða síðar vegna varptíma fugla á svæðinu.
    Fornleifastofnun Íslands vann aðalskráningu (grunnskráningu) fornleifa í Hvalfjarðarsveit (Hvalfjarðarstrandahreppi, Leirár- og Melasveit, Skilmannahreppi og Innri-Akraneshreppi) á árunum 2000-2003. Ekki er vitað um fornminjar á framkvæmdasvæðinu en framkvæmdaleyfið verði með fyrirvara um umsögn Minjastofnunar Íslands, en stofnuninni hefur þegar verið send ósk um umsögn.
    Gerð verði úttekt af hálfu sveitarfélagsins, þar sem þess verði gætt að framkvæmd sé í samræmi við umsókn framkvæmdaleyfis og hjálagðra gagna hennar. Kostnaður við framkvæmdaleyfi er skv. gjaldskrá sveitarfélagsins.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis til eins árs frá staðfestingu sveitarstjórnar, vegna stígagerðar í landi Fellsenda og Klafastaða, á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Stígur meðfram Eiðisvatni verði unnin 1. ágúst 2026 eða síðar vegna varptíma fugla á svæðinu. Fornleifastofnun Íslands vann aðalskráningu (grunnskráningu) fornleifa í Hvalfjarðarsveit (Hvalfjarðarstrandahreppi, Leirár- og Melasveit, Skilmannahreppi og Innri-Akraneshreppi) á árunum 2000-2003. Ekki er vitað um fornminjar á framkvæmdasvæðinu en framkvæmdaleyfið verði með fyrirvara um umsögn Minjastofnunar Íslands, en stofnuninni hefur þegar verið send ósk um umsögn. Gerð verði úttekt af hálfu sveitarfélagsins, þar sem þess verði gætt að framkvæmd sé í samræmi við umsókn framkvæmdaleyfis og hjálagðra gagna hennar. Kostnaður við framkvæmdaleyfi er skv. gjaldskrá sveitarfélagsins."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 62 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að láta vinna og auglýsa skipulagslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, fyrir stækkun á reit S13 í Melahverfi, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samhliða breytingu á deiliskipulagi Melahverfis I og II.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að láta vinna og auglýsa skipulagslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, fyrir stækkun á reit S13 í Melahverfi, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samhliða breytingu á deiliskipulagi Melahverfis I og II."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 62 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd felur Umhverfis- og skipulagsdeild að vinna breytingar á greinargerð skv. umræðum á fundinum og setja breytingartillöguna í auglýsingaferli skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sem samþykkt var 28. janúar s.l.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir og samþykkir bókun nefndarinnar."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 62 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að deiliskipulagstillagan verði auglýst með áorðnum breytingum skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að deiliskipulagstillagan verði auglýst með áorðnum breytingum skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 62 Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagstillöguna með áorðnum breytingum í samræmi við framkomnar umsagnir og viðbrögð við þeim, og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu HMS.
    Nefndin samþykkir einnig að í deiliskipulaginu verði bætt við upplýsingum um hvernig spornað verði við óhreinindum sem berast út á þjóðveg af flutningabílum.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir deiliskipulagstillöguna með áorðnum breytingum í samræmi við framkomnar umsagnir og viðbrögð við þeim, og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu HMS. Sveitarstjórn samþykkir einnig að í deiliskipulaginu verði bætt við upplýsingum um hvernig spornað verði við óhreinindum sem berast út á þjóðveg af flutningabílum."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 62 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti merkjalýsinguna með áorðnum breytingum og þær breytingar sem í henni felast.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir merkjalýsinguna með áorðnum breytingum og þær breytingar sem í henni felast."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 62 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að grenndarkynna erindið skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir aðliggjandi lóðarhöfum og landeiganda þ.e. Kúhalla 7 L133539, Kúhalla 6 L133538, Kúhalla 4 L133536, Kúhalla 2 L133534, Kúhalla 3 L133535 og Þórisstöðum 2 L233003.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að grenndarkynna erindið skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir aðliggjandi lóðarhöfum og landeiganda þ.e. Kúhalla 7 L133539, Kúhalla 6 L133538, Kúhalla 4 L133536, Kúhalla 2 L133534, Kúhalla 3 L133535 og Þórisstöðum 2 L233003."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

3.Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 91

2604006F

Fundargerðin framlögð.
  • Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 91 Fundarmenn fóru í skoðunarferð á verkstað. Farið yfir verkstöðu framkvæmda við íþróttahúsið.
    Lögð fram kostnaðaráætlun fyrir áfanga 4, hönnunargögn og verklýsingar liggja fyrir.
    Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitarstjórn að viðauki verði gerður fyrir framkvæmdinni að undangenginni verðkönnun.
    Mannvirkja- og framkvæmdanefnd fór yfir tillögu Ask arkitekta að uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar og gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir viðauka nr. 17 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 10.000.000 kr. vegna lagfæringa á eldra íþróttahúsi í Heiðarborg. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé. Sveitarstjórn felur verkefnastjóra framkvæmda- og eigna og oddvita að vinna málið áfram."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

4.Menningar- og markaðsnefnd - 65

2605001F

Fundargerðin framlögð.
BSG fór yfir helstu atriði fundarins.

5.Velferðar- og fræðslunefnd - 11

2605002F

Fundargerðin framlögð.
HH fór yfir helstu atriði fundarins.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 11 Velferðar- og fræðslunefnd þakkar öllum umsækjendum kærlega fyrir áhugann á sjóðnum og þær 9 umsóknir sem bárust, sem sýna vel þann kraft og frumkvæði sem býr í samfélaginu.

    Nefndin ákvað að styrkja eftirfarandi verkefni:

    Fótboltanámskeið fyrir 1-4 bekk haustið 2026, upphæð - 250.000.-
    Litahlaup á Hvalfjarðardögum, upphæð - 250.000.-
    Fjölskyldudagur á Hlöðum í sundlauginni á Hlöðum, upphæð - 50.000.-
    Dansnámskeið fyrir 18 ára og eldri, upphæð - 200.000.-

    Inga María Sverrisdóttir vék af fundi.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir og staðfestir bókun nefndarinnar."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum

    IMS vék af fundi undir umræðu og afgreiðslu málsins.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 11 Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærðar starfsreglur ungmennaráðs. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir uppfærðar starfsreglur ungmennaráðs."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 11 Nefndin lýsir yfir ánægju með þá faglegu og umfangsmiklu vinnu sem verkefnastjórn hefur lagt í undirbúning verkefnisins og þakkar jafnframt fyrir aðkomu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi að verkefninu. Nefndin telur afar brýnt að skammtímavistun verði að veruleika og fagnar áformaðri opnun á árinu 2026. 

    Nefndin tekur undir þau sjónarmið sem fram koma hjá verkefnastjórn og samþykkir fyrir sitt leyti eftirfarandi:

    Að sviðsmynd 1 verði lögð til grundvallar í upphafi, fram að áramótum, en stefnt verði að sviðsmynd 2, þ.e. fullri opnun, sem langtímamarkmiði.

    Að tekjumódel byggi á valkosti B, þar sem 50% kostnaðar skiptist eftir íbúafjölda og 50% eftir nýtingu (keyptum sólarhringum), með hliðsjón af jafnræði barna á svæðinu.

    Að í fulltrúaráði sitji einn fulltrúi frá hverju sveitarfélagi og að þeir fulltrúar komi úr röðum notendaráðs.

    Að stofnfé verði jafnt skipt milli þátttökusveitarfélaga.

    Að formleg skráning og stofnun verði tryggð tímanlega með það að markmiði að opnun geti átt sér stað haustið 2026.

    MáLinu vísað til sveitastjórnar til samþykktar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir og tekur undir bókun nefndarinnar. Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi: Að sviðsmynd 1 verði lögð til grundvallar í upphafi, fram að áramótum, en stefnt verði að sviðsmynd 2, þ.e. fullri opnun, sem langtímamarkmiði. Að tekjumódel byggi á valkosti B, þar sem 50% kostnaðar skiptist eftir íbúafjölda og 50% eftir nýtingu (keyptum sólarhringum), með hliðsjón af jafnræði barna á svæðinu. Að í fulltrúaráði sitji einn fulltrúi frá hverju sveitarfélagi og að þeir fulltrúar komi úr röðum notendaráðs. Að stofnfé verði jafnt skipt milli þátttökusveitarfélaga. Að formleg skráning og stofnun verði tryggð tímanlega með það að markmiði að opnun geti átt sér stað haustið 2026."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 11 Velferðar- og fræðslunefnd hefur tekið til umfjöllunar fyrirliggjandi tillögu um frekari uppbyggingu Heiðarborgar sem samfélagsmiðstöðvar fyrir íbúa Hvalfjarðarsveitar. Í tillögunni er horft til aukins aðgengis, heilsársopnunar og fjölbreyttrar nýtingar hússins fyrir ólíka aldurshópa, auk þess sem fjallað er um opnunartíma, mönnun og starfsemina í heild.

    Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögur þar sem gert er ráð fyrir að Heiðarborg verði rekin sem samfélagsmiðstöð. Lagt er til að Heiðarborg verði með heilsársopnun og að auki verði opnunartími rýmkaður með það að markmiði að styðja við heilsueflingu, samveru og fjölbreytta þjónustu fyrir íbúa sveitarfélagsins.

    Velferðar- og fræðslunefnd leggur einnig til við sveitastjórn að með hliðsjón af þessum breytingum verði settur forstöðumaður yfir samfélagsmiðstöðinni Heiðarborg. Starfið er lykilstarf í uppbyggingu og daglegri stýringu starfseminnar og hefði það hlutverk að samræma rekstur sundlaugar, líkamsræktar, félags- og frístundastarfs og annarrar þjónustu sem fram fer í húsinu. Málinu er vísað til afgreiðslu í sveitastjórn.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir fyrirliggjandi tillögur þar sem gert er ráð fyrir að Heiðarborg verði rekin sem samfélagsmiðstöð. Heiðarborg verði með heilsársopnun og að auki verði opnunartími rýmkaður með það að markmiði að styðja við heilsueflingu, samveru og fjölbreytta þjónustu fyrir íbúa sveitarfélagsins. Sveitastjórn samþykkir að með hliðsjón af þessum breytingum verði settur forstöðumaður yfir samfélagsmiðstöðinni Heiðarborg. Starfið er lykilstarf í uppbyggingu og daglegri stýringu starfseminnar og hefði það hlutverk að samræma rekstur sundlaugar, líkamsræktar, félags- og frístundastarfs og annarrar þjónustu sem fram fer í húsinu."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 11 Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir breyttar viðmiðunarfjárhæðir skv. uppfærðum leiðbeiningum frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um sérstakan húsnæðisstuðning. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir breyttar viðmiðunarfjárhæðir skv. uppfærðum leiðbeiningum frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um sérstakan húsnæðisstuðning."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 11 Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærðar starfsreglur vinnuskólans. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir uppfærðar starfsreglur vinnuskólans."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
  • 5.11 2511005 Reglur um garðslátt
    Velferðar- og fræðslunefnd - 11 Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærðar reglur um garðslátt í Hvalfjarðarsveit. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir uppfærðar reglur um garðslátt í Hvalfjarðarsveit."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

6.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.

2505008

Viðaukar nr. 15 og 16.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 15 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 2.020.336 kr. vegna ófyrirséðar aukningar á fjárhagsaðstoð. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 16 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 1.166.124 kr. vegna kaupa á fartölvum og borðum. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

7.Skipurit Hvalfjarðarsveitar.

2006036

Skipurit maí 2026
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir uppfært skipurit þar sem gert er ráð fyrir tveimur verkefnastjórum undir deildarstjóra Velferðar- og fræðsludeildar, í stað frístunda- og menningarfulltrúa. Einnig er bætt við forstöðumanni íþrótta- og frístundamála, vísað er til afgreiðslu á máli 5.7 á dagskrá fundarins, málsnúmer 2509011. Starfsheiti aðalbókara er breytt í fjármálastjóra, sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar nr. 433.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

8.Upplýsingaöryggisstefna Hvalfjarðarsveitar.

2605007

Upplýsingaöryggisstefna til samþykktar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir upplýsingaöryggisstefnu Hvalfjarðasveitar.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

9.Áhættustefna Hvalfjarðarsveitar.

2605008

Áhættustefna til samþykktar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir áhættustefnu Hvalfjarðasveitar.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

10.Mannauðsstefna Hvalfjarðarsveitar.

2605012

Mannauðsstefna til samþykktar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir mannauðsstefnu Hvalfjarðasveitar.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum

HH vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins.

11.Sumarlokun skrifstofu Hvalfjarðarsveitar.

2605010

Erindi frá oddvita.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að skrifstofa Hvalfjarðarsveitar verði lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks frá og með 20. júlí nk. til og með 3. ágúst nk.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

12.Hlíðarbær 10 - lóðarleigusamningur.

2603016

Endurnýjun lóðarsamnings.
Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagðan lóðarleigusamning vegna lóðar nr. 10 við Hlíðarbæ."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

13.Ársreikningur Höfða 2025.

2604019

Ársreikningur Höfða 2025 ásamt fylgigögnum.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn samþykkir, fyrir sitt leyti, framlagðan ársreikning 2025 fyrir Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

14.Umsókn um úthlutun lóða í Melahverfi.

2605005

Erindi frá Sigurði Eiríkssyni.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir úthlutun á lóðunum við Lyngmel 5 og 9 og Háamel 2 til Sigurðar Eiríkssonar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

15.Réttarhagi I og II - Umsókn um óverulega deiliskipulagsbreytingu

2605009

Erindi frá Landlínum.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir umsókn Landlína um óverulega breytingu á deiliskipulagi Réttarhaga I og II í landi Leirár, enda víkur tillagan að mati sveitarstjórnar að óverulegu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis. Sveitarstjórn samþykkir að grenndarkynnt verði meðal aðliggjandi lóðarhafa og landeiganda. Þ.e. Skólastíg 1 L219900, Leirá L133774, Skólastíg 5 L221405, Leirárlandi L221405 og Eystri-Leirárgörðum L133737 og felur Umhverfis- og skipulagsdeild að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna í B-deild stjórnartíðinda, berist engar athugasemdir á kynningartíma tillögunnar.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum

SV vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins.

16.Samkomulag um breytt fyrirkomulag vegna stækkunar á hjúkrunarheimilinu Höfða.

2605013

Á 170. fundi stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis, var tekin fyrir stækkun Höfða (mál 1.). Sjá fundargerð undir máli 18.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn Hvalfjarðasveitar samþykkir framlagt samkomulag frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um breytt fyrirkomulag vegna stækkunar á Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili, þar sem ráðuneytið og eigendur Höfða lýsa yfir vilja til að stækka Höfða um allt að 60 rými."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

17.Rekstraryfirlit janúar til mars 2026.

2605019

Framlagt rekstraryfirlit janúar til mars 2026.

Fyrstu þrjá mánuði ársins er heildar rekstrarniðurstaðan 15,5 m.kr. betri en áætlun ársins gerði ráð fyrir. Betri rekstrarniðurstaða helgast fyrst og fremst af hærri útsvarstekjum, fasteignaskatti og framlögum frá Jöfnunarsjóði umfram það sem áætlað var.

18.Leiðrétting sóknargjalda - Ályktun.

2604028

Ályktun frá héraðsfundi Vesturlansprófastsdæmis.
Erindi framlagt.

19.Frumvörp, reglur og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026.

2601036

Frumvarp til loftslagslaga - umsagnarbeiðni.
Erindi framlagt.

20.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili.

21.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Samband íslenskra sveitarfélaga.

2602001

Fundargerð 997. fundar.
Fundargerðin framlögð.

22.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Faxaflóahafnir sf.

2602017

Fundargerð 266. fundar.
Fundargerðin framlögð.

Fundi slitið - kl. 15:58.

Efni síðunnar