Velferðar- og fræðslunefnd
Dagskrá
1.Trúnaðarmál Velferðar- og fræðslunefndar
2504003
Trúnaðarmál tekin fyrir.
Trúnaðarmál tekin fyrir í Velferðar- og fræðslunefnd.
2.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.
2505008
Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun á deild 5911 - Fjárhagsaðstoð fyrir árið 2026. Þörf fyrir fjárhagsaðstoð hefur reynst meiri en áætlað var og því er fyrirséð að fjárheimildir deildarinnar dugi ekki til að mæta útgjöldum ársins.
Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja viðaukabeiðni á deild 5911 vegna fjárhagsaðstoðar. Erindinu vísað til samþykktar sveitarstjórnar.
3.Íþrótta- og æskulýðssjóður 2026.
2602039
Markmið og hlutverk Íþrótta- og æskulýðssjóðs Hvalfjarðarsveitar er að styðja við íþrótta- og æskulýðsmál í Hvalfjarðarsveit.
Alls bárust níu umsóknir í Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar.
Alls bárust níu umsóknir í Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar.
Velferðar- og fræðslunefnd þakkar öllum umsækjendum kærlega fyrir áhugann á sjóðnum og þær 9 umsóknir sem bárust, sem sýna vel þann kraft og frumkvæði sem býr í samfélaginu.
Nefndin ákvað að styrkja eftirfarandi verkefni:
Fótboltanámskeið fyrir 1-4 bekk haustið 2026, upphæð - 250.000.-
Litahlaup á Hvalfjarðardögum, upphæð - 250.000.-
Fjölskyldudagur á Hlöðum í sundlauginni á Hlöðum, upphæð - 50.000.-
Dansnámskeið fyrir 18 ára og eldri, upphæð - 200.000.-
Inga María Sverrisdóttir vék af fundi.

4.Starfsreglur Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar
2102009
Starfsreglur ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar uppfærðar með hliðsjón af barnvænu sjónarmiði.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærðar starfsreglur ungmennaráðs. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar.
5.Skammtímadvöl á Vesturlandi
2501005
Lagt er fram til umfjöllunar tillaga um uppbyggingu og rekstur sameiginlegrar skammtímadvalar fyrir börn og ungmenni með fötlun og umfangsmiklar stuðningsþarfir á Vesturlandi. Verkefnið er unnið í samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi og Þroskahjálpar á Vesturlandi og miðar að því að tryggja jafnt aðgengi að lögbundinni þjónustu óháð búsetu.
Gert er ráð fyrir að skammtímadvölin starfi í húsnæðinu að Holti í Borgarbyggð, rekin af sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri. Lagt er til að sveitarfélög á Vesturlandi stofni sjálfseignarstofnunina, en hún sjái um rekstur þjónustunnar og leigi fasteignina að Holti. Fyrir liggur ítarlegt minnisblað ásamt fylgigögnum: Drög að samþykktum fyrir skammtímadvöl Vesturlands ses., Tillaga að rekstrarmódeli og fjárhagsáætlun, þarfagreining á húsnæði Holts og drög að leigusamningi.
Ráðum sveitarfélaganna er ætlað að taka afstöðu til
Val á sviðsmynd: Hvort stefnt skuli að sviðsmynd 1 eða 2 við fulla opnun, eða hvort útfærslan eigi að vera með öðrum hætti.
Verkefnastjórn leggur til að sviðsmynd 1 verði fylgt fram að áramótum og sviðsmynd 2, eða full opnun, verði langtímamarkmiðið.
Útfærsla tekjumódels: Val milli valkosts A (skipt eftir íbúafjölda) og valkosts B (50% fastur kostnaður eftir íbúafjölda og 50% breytilegur eftir keyptum sólarhringum).
Verkefnastjórn leggur til að valkosti B verði fylgt, á grundvelli jafnræðissjónarmiða barna á svæðinu.
Fjöldi fulltrúa í fulltrúaráði: Stofnaðilar þurfa að taka afstöðu til þess hve margir fulltrúar eigi að sitja í fulltrúaráði og hvernig tilnefningu þeirra verði háttað.
Verkefnastjórn leggur til að einn fulltrúi, frá hverju sveitarfélagi, komi úr röðum notendaráðs.
Framlag stofnenda: Ákvörðun um skiptingu stofnfjár milli sveitarfélaga.
Verkefnastjórn leggur til jafna skiptingu milli sveitarfélaga.
Tímasetning stofnunar opnunar: Staðfesting á að formleg skráning fari fram tímanlega fyrir áformaða opnun haustið 2026.

Nefndin lýsir yfir ánægju með þá faglegu og umfangsmiklu vinnu sem verkefnastjórn hefur lagt í undirbúning verkefnisins og þakkar jafnframt fyrir aðkomu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi að verkefninu. Nefndin telur afar brýnt að skammtímavistun verði að veruleika og fagnar áformaðri opnun á árinu 2026.
Nefndin tekur undir þau sjónarmið sem fram koma hjá verkefnastjórn og samþykkir fyrir sitt leyti eftirfarandi:
Að sviðsmynd 1 verði lögð til grundvallar í upphafi, fram að áramótum, en stefnt verði að sviðsmynd 2, þ.e. fullri opnun, sem langtímamarkmiði.
Að tekjumódel byggi á valkosti B, þar sem 50% kostnaðar skiptist eftir íbúafjölda og 50% eftir nýtingu (keyptum sólarhringum), með hliðsjón af jafnræði barna á svæðinu.
Að í fulltrúaráði sitji einn fulltrúi frá hverju sveitarfélagi og að þeir fulltrúar komi úr röðum notendaráðs.
Að stofnfé verði jafnt skipt milli þátttökusveitarfélaga.
Að formleg skráning og stofnun verði tryggð tímanlega með það að markmiði að opnun geti átt sér stað haustið 2026.
MáLinu vísað til sveitastjórnar til samþykktar.

6.Kennslustundaúthlutun 2026-2027 í Heiðarskóla
2605003
Úthlutun kennslustunda til skólastarfs skólaárið 2026-2027.
Úthlutun kennslustunda til skólastarfs skólaárið 2026-2027 hefur verið kynnt og er samþykkt af velferðar- og fræðslunefnd. Unnið hefur verið að breytingum í samráði við MSHA - Miðstöð menntunar og skólaþróunar. Ekki hefur tekist að fullvinna þau gögn en Velferðar- og fræðsludeild er falið að fullvinna málið í samráði við skólastjórnendur.
7.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg
2509011
Unnið hefur verið að undirbúningi að heildarskipulagi á uppbyggingu í Heiðarborg sem samfélagsmiðstöð fyrir íbúa Hvalfjarðarsveitar. Í þeirri vinnu hefur verið horft til aukins aðgengis, opnunar og fjölbreyttrar nýtingar hússins fyrir ólíka aldurshópa.
Nýtt og bætt húsnæði Heiðarborgar verður tekið í gagnið haustið 2026. Taka þarf afstöðu til opnunartíma, mönnunar og stjórnunar á Heiðarborg.
Nýtt og bætt húsnæði Heiðarborgar verður tekið í gagnið haustið 2026. Taka þarf afstöðu til opnunartíma, mönnunar og stjórnunar á Heiðarborg.
Velferðar- og fræðslunefnd hefur tekið til umfjöllunar fyrirliggjandi tillögu um frekari uppbyggingu Heiðarborgar sem samfélagsmiðstöðvar fyrir íbúa Hvalfjarðarsveitar. Í tillögunni er horft til aukins aðgengis, heilsársopnunar og fjölbreyttrar nýtingar hússins fyrir ólíka aldurshópa, auk þess sem fjallað er um opnunartíma, mönnun og starfsemina í heild.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögur þar sem gert er ráð fyrir að Heiðarborg verði rekin sem samfélagsmiðstöð. Lagt er til að Heiðarborg verði með heilsársopnun og að auki verði opnunartími rýmkaður með það að markmiði að styðja við heilsueflingu, samveru og fjölbreytta þjónustu fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Velferðar- og fræðslunefnd leggur einnig til við sveitastjórn að með hliðsjón af þessum breytingum verði settur forstöðumaður yfir samfélagsmiðstöðinni Heiðarborg. Starfið er lykilstarf í uppbyggingu og daglegri stýringu starfseminnar og hefði það hlutverk að samræma rekstur sundlaugar, líkamsræktar, félags- og frístundastarfs og annarrar þjónustu sem fram fer í húsinu. Málinu er vísað til afgreiðslu í sveitastjórn.

8.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.
2505008
Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun Heiðarskóla fyrir árið 2026.
Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja viðaukabeiðni vegna tækjakaupa í Heiðarskóla. Erindinu vísað til samþykktar sveitarstjórnar.
9.Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning í Hvalfjarðarsveit
1909004
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur uppfært leiðbeiningar um sérstakan húsnæðisstuðning og gert breytingar á viðmiðunarfjárhæðum vegna mats á áhrifum tekna og vegna mats á áhrifum eigna. Fjárhæðir vegna mats á áhrifum tekna hafa verið hækkaðar um 6,5% frá síðustu útgáfu leiðbeininganna (júlí 2025) og er sú hækkun í samræmi við þær breytingar sem tóku gildi um síðustu áramót á fjárhæðum húsnæðisbóta. Að baki þeirri hækkun eru breytingar sem gerðar hafa verið á fjárhæðum í almannatryggingakerfinu, m.a. vegna innleiðingar á nýju örorku- og endurhæfingarkerfi og að teknu tilliti til orlofs- og desemberuppbóta.
Þá er viðmiðunarfjárhæð um áhrif eigna færð til samræmis við þá fjárhæð sem reiknað er með í húsnæðisbótakerfinu, þ.e. 13,9 m.kr. frá og með 1. janúar 2026. Byggist breytingin á því að sömu viðmið eigi að gilda í þessu efni um opinberan húsnæðisstuðning, enda standi rök ekki til annars en að viðtakendur sérstaks húsnæðisstuðnings séu almennt í jafnmikilli þörf og aðrir á leigumarkaði að geta safnað sér fyrir útborgun til kaupa á hóflegri fyrstu eign.
Drög að uppfærðum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning í Hvalfjarðarsveit út frá nýjum leiðbeiningum frá Félag- og húsnæðismálaráðuneytinu.

Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir breyttar viðmiðunarfjárhæðir skv. uppfærðum leiðbeiningum frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um sérstakan húsnæðisstuðning.
10.Starfsreglur vinnuskólans
2605006
Uppfærðar starfsreglur vinnuskólans lagðar fram.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærðar starfsreglur vinnuskólans.
11.Reglur um garðslátt
2511005
Drög að breytingum um reglur um garðslátt. Helstu breytingar eru að skilgreina betur hverjir eiga rétt á garðslætti, fjöldi slátta yfir sumartímann, ekki verður hægt að óska eftir slætti á frístundalóðum, breytt gjaldskrá út frá stærð garðsins og fast komugjald. Skilgreina betur reglur um niðurgreiðslu á garðslætti.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærðar reglur um garðslátt í Hvalfjarðarsveit.
12.Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi og SSV
2406001
Lagðar fram fundargerðir Samráðshóps stjórnenda í Velferðarþjónustu á Vesturlandi.
Lagt fram.
13.Fréttir úr skólastarfinu
2602011
Fréttir úr skólastarfinu kynntar.
Diljá Marín kynnti fyrir nefndinni verkefnið Náttúrufrelsi sem hefur verið að þróað í Skýjaborg í vetur með elstu tveimur árgöngunum í leikskólanum.
Katrín Rós kynnti fyrir nefndinni lífsleikni í Heiðarskóla.
Nefndin þakkar þeim kærlega fyrir og lýsir ánægju með öflugt og flott starf í leik- og grunnskóla sveitarfélagsins.
Katrín Rós kynnti fyrir nefndinni lífsleikni í Heiðarskóla.
Nefndin þakkar þeim kærlega fyrir og lýsir ánægju með öflugt og flott starf í leik- og grunnskóla sveitarfélagsins.
14.Skólapúlsinn - Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar 2026
2605001
Helstu niðurstöður úr könnun um starfsánægju starfsmanna leiks- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.
Lagt fram.
15.Stöðugildi í leikskólanum Skýjaborg 2026-2027
2605002
Stöðugildaþörf í Skýjaborg skólaárið 2026-2027 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
16.Vinnuskóli Hvalfjarðarsveitar
2401027
Skipulag vinnuskóla 2026 til kynningar.
Skipulag vinnuskóla 2026 er nú að verða fullklárt þrátt fyrir áskoranir vegna mönnunar. Opnað verður fyrir umsóknir fyrir börn vikuna 11. - 15. maí. Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður ekki unnt að bjóða upp á vinnuskóla í Skýjaborg líkt og undanfarin ár.
17.Höfði, hjúkrunar- og dvalarheimili - stækkun.
2410008
Til kynningar var fundargerð stjórnar Höfða nr. 170. Til kynninga eru fyrirhuguð stækkun á Höfða.
Lagt fram til kynningar.
18.Skólapúlsinn - foreldrakönnun.
2605001
Til kynninga eru niðurstöður á skólapúls foreldrakönnun hjá bæði leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.
Lagt fram til kynningar.
19.Barnaverndarþjónusta Vesturlands
2605004
Lagt fram til kynningar verklagsreglum barnaverndarþjónustu Vesturlands varðandi eftirlit með börnum í fóstri. Verklagsreglur þessar um eftirlit með börnum í fóstri byggja á barnaverndarlögum nr. 80/2002, reglugerð um fóstur nr. 804/2004 og handbók um vinnslu barnaverndarmála frá Barna- og fjölskyldustofu. Einnig er byggt á samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna. Verklagsreglurnar taka mið af réttindum barns, faglegum viðmiðum og þeirri meginreglu að hagsmunir barns skuli ávallt hafðir að leiðarljósi. Þær gilda um eftirlit með öllum börnum sem Barnaverndarþjónustan hefur ráðstafað í fóstur, óháð því hvar fósturheimili er staðsett. Þær taka til undirbúnings eftirlits, framkvæmdar heimsókna, samtals við barn, skráningar, faglegs mats, viðbragða við áhyggjum og endurskoðunar fósturráðstöfunar þegar þess gerist þörf.
Lagt fram.
20.Fundargerðir Ungmennaráðs
2310003
Til kynningar 19. fundur ungmennaráðs.
Lagt fram.
21.Barnaverndarþjónusta Vesturlands
2605004
Við umdirbúning á stofnun barnaverndarþjónustu Vesturlands hefur verið komið á fót sameiginlegri bakvakt fyrir Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Byggðasamlag Snæfellinga. Frá og með 1. maí 2025 hefur verið rekin sameiginleg bakvakt fyrir öll þessi sveitarfélög og er nú til endurskoðunar. Á 170. fundi Velferðarnefnar Borgarbyggðar var bókað "Velferðarnefnd telur nauðsynlegt að greiðslur vegna bakvakta hjá barnaverndarþjónustu Vesturlands taki mið af kjarasamningum, af því gefnu að öll þau sveitarfélög er standa að þjónustunni samþykki slíkar breytingar". Málinu var vísað til Byggðarráðs til afgreiðslu og hefur sveitastjóra Borgarbyggðar verið falið að fullvinna kostnaðarmat á þeim tillögum sem lagðar eru fram.
Lagt fram.
22.Barnvæn sveitarfélög-Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
2002048
Sveitarfélagið vinnur að innleiðingu á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með það að markmiði að verða Barnvænt sveitarfélag. Aðgerðaáætlun hefur verið samþykkt af sveitarstjórn og kynnt af ungmennaráði fyrir öllum nemendum í Heiðarskóli. Unnið hefur verið að þeim aðgerðum sem þar koma fram og stefnir í að sveitarfélagið fái viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag, á 20 ára afmælisdegi sveitarfélagsins, þann 1 júní 2026.
Velferðar- og fræðslunefnd lýsir yfir ánægju með þennan mikilvæga áfanga og sendir íbúum sínar bestu hamingjuóskir.
Velferðar- og fræðslunefndar þessa kjörtímabils vill þakka fyrir ánægjulegt og gott samstarf á kjörtímabilinu.
Fundi slitið - kl. 17:30.
Samþykkt 5:0
Marie Greve Rasmussen, Ásta Jóna Ásmundsdóttir, Hildur Jónsdóttir og Sigurbjörg Friðriksdóttir boðuðu forföll.
Anna Guðrún Alexandersdóttir sat undir lið nr. 10, 16 og 22.
Áheyrnarfulltrúar sátu undir lið nr. 13, 18 og 22.
Leik- og grunnskólastjórar sátu undir lið nr. 6, 8, 13, 14,18 og 22