Mannvirkja- og framkvæmdanefnd
Dagskrá
1.Íþróttahús - Heiðarborg
2001042
Verkstaða framkvæmda við Íþróttahúsið, lögð fram hönnunargögn fyrir þreksal gamla íþróttahússins og tillaga að uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar frá Ask arkitektum.
2.Leikskólahúsnæði - Skýjaborg
2202016
Verkfræðihönnun nýs leikskóla Skýjaborgar er lokið. Andrúm arkitektar og Efla verkfræðistofa hafa sett öll hönnunargögn inn á ACC verkefnavef verkefnisins til yfirferðar.
Hönnunargögn fyrir leikskólann liggja fyrir og tekin fyrir á fundinum. Rýni gagna fara í áframhaldandi yfirferð hjá Hvalfjarðarsveit og hönnuðum.
3.Melahverfi III - Gatnaframkvæmd
2409030
Verkstaða gatnaframkvæmda Melahverfis III
Farið yfir verkstöðu framkvæmda.
4.Umferðaröryggismál í Krosslandi.
2604020
Erindi frá hússtjórn húsfélagsins að Fögruvöllum 3,ABC í landi Kross.
Erindið barst einnig til slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar.
Í erindinu kemur fram sú beiðni hússtjórnar húsfélagsins um að skoðað verði hvort ekki sé þörf á að setja upp skilti sem banni lagningu ökutækja við Fögruvelli þar sem gatan sé þröng og erfiðleikum sé bundið að mæta bílum þegar lagt sé við götuna. Þessu fylgi óþægindi og snúist einnig um öryggismál þar sem slökkvilið og sjúkrabílar gætu átt í vandræðum ef bregðast þurfi við í neyðartilfellum. Þrengsli vegna bíla gætu átt við um fleiri götur í hverfinu en fram kemur í erindinu að húsfélagið hafi ekki skoðað það sérstaklega.

Mannvirkja- og framkvæmdanefnd felur Umhverfis- og skipulagsdeild að skoða málið frekar.
5.Viðhalds- og framkvæmdaáætlun 2026 - 2029.
2601026
Verkefnastjóri framkvæmda og eigna fer yfir verkstöðu framkvæmda.
Þar sem þetta er síðasti fundur Mannvirkja- og framkvæmdarnefndar á þessu kjörtímabili vil ég, fyrir hönd Umhverfis- og skipulagsdeildar, þakka ykkur kærlega fyrir frábært samstarf og góða samvinnu á tímabilinu.
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd vill þakka verkefnastjóra framkvæmda og eigna sérstaklega fyrir einstaklega gott og gefandi samtarf á kjörtímabilinu. Einnig vill nefndin hrósa Hlyni fyrir frábært starf á liðnum árum.

Fundi slitið - kl. 18:00.
Lögð fram kostnaðaráætlun fyrir áfanga 4, hönnunargögn og verklýsingar liggja fyrir.
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitarstjórn að viðauki verði gerður fyrir framkvæmdinni að undangenginni verðkönnun.
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd fór yfir tillögu Ask arkitekta að uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar og gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu.