Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd
Dagskrá
Þorsteinn Ólafsson boðaði lögmæt forföll.
1.Úrgangsmál í Hvalfjarðarsveit.
2210038
Staða móttökustöðvar fyrir íbúa Hvalfjarðarsveitar.
Rætt um stöðu mála vegna sorpmóttökustöðvar.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd leggur til að leitað verði eftir tímabundnu samstarfi við Akraneskaupstað um aðgengi íbúa Hvalfjarðarsveitar að móttökustöð Gámu á Akranesi.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

2.Umferðaröryggismál í Krosslandi.
2604020
Erindi frá hússtjórn húsfélagsins að Fögruvöllum 3,ABC í landi Kross.
Erindið barst einnig til slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar.
Í erindinu kemur fram sú beiðni hússtjórnar húsfélagsins um að skoðað verði hvort ekki sé þörf á að setja upp skilti sem banni lagningu ökutækja við Fögruvelli þar sem gatan sé þröng og erfiðleikum sé bundið að mæta bílum þegar lagt sé við götuna. Þessu fylgi óþægindi og snúist einnig um öryggismál þar sem slökkvilið og sjúkrabílar gætu átt í vandræðum ef bregðast þurfi við í neyðartilfellum.
Þrengsli vegna bíla gætu átt við um fleiri götur í hverfinu en fram kemur í erindinu að húsfélagið hafi ekki skoðað það sérstaklega.
Með erindinu fylgdu myndir til glöggvunar.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd tekur undir þær áhyggjur sem fram koma í erindinu og samþykkir að beina því til Mannvirkja- og Framkvæmdanefndar að skoða hvort ástæða sé til að setja upp skilti til áréttingar á hvort og e.t.v. hvar heimilt sé að leggja bílum. Jafnframt hvort ástæða sé til að setja lögreglusamþykkt í Hvalfjarðarsveit en skv. lögum um lögreglusamþykktir nr. 18/1988 má í hverju sveitarfélagi setja lögreglusamþykktir en sé hún ekki til staðar, gildir reglugerð um lögreglusamþykktir nr. 1127/2007, og kemur hún í stað lögreglusamþykktar í þeim sveitarfélögum þar sem lögreglusamþykkt er ekki sett.
3.Framkvæmdaleyfi - Krossland, leiksvæði.
2604026
Nýtt leiksvæði í landi Kross.
Sveitarfélagið hyggst setja upp nýtt leiksvæði við íbúðarhverfið í landi Kross og er áætlað að framkvæmdir hefjist í byrjun sumars.
Landslagshönnun svæðisins miðar að því að skapa fjölbreytt leiksvæði sem nýtist breiðum hópi notenda.
Áhersla er lögð á að nýta þau náttúrulegu gæði sem svæðið býr yfir, svo sem hæðarmismun, gróður, göngustíga og að leiksvæðið falli sem best að umhverfi sínu.
Leikvöllurinn er staðsettur við enda Garðavalla og við sjávarsíðuna.
Á svæðinu er brekka sem nýta má undir sleða yfir vetrartímann og gefur svæðinu skemmtilegt yfirbragð.
Efla verkfræðistofa sá um hönnun leiksvæðisins.
Verkefnastjóri framkvæmda og eigna hjá Umhverfis- og skipulagsdeild Hvalfjarðarsveitar mun annast umsjón og eftirlit með framkvæmd verksins.
Verklok eru áætluð haustið 2026.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti grenndarkynningu framkvæmdaleyfis vegna nýs leiksvæðis í landi Kross.
Skv. 5. grein reglugerðar um framkvæmdaleyfi geta verulegar framkvæmdir við breytingar lands með jarðvegi svo sem efnislosun eða landmótun (t.d. manir), verið háðar framkvæmdaleyfi. Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd telur þó ekki að hér sé um verulegar framkvæmdir að ræða sem hafi veruleg áhrif á umhverfið og ásýnd þess.
Skv. 8. grein reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 segir að þegar sótt er um framkvæmdaleyfi án þess að deiliskipulag liggi fyrir og framkvæmdin sé í þegar byggðu hverfi í þéttbýli eða í byggðakjarna utan þéttbýlis, í samræmi við meginforsendur í aðalskipulagi svo sem landnotkun, byggðamynstur og sé ekki líkleg til að valda verulegum umhverfisáhrifum, skuli skipulagsnefnd láta fara fram grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en ákvörðun um veitingu leyfis er tekin.
Fyrir liggur skoðun á fornleifum á svæðinu og skýrsla sem gerð var af Fornleifastofnun Íslands (sjálfseignarstofnun) og gerir Minjastofnun Íslands ekki athugasemd við hana.
Samþykkt að grenndarkynna fyrirhugaða framkvæmd meðal húseigenda / lóðarhafa við Garðavelli 8, 10, 9 og 11, og Krossvelli 4.

4.Framkvæmdaleyfi - Eiðisvatn, göngustígur.
2604025
Hvalfjarðarsveit f.h. Hvalfjarðarsveitar og Faxaflóahafna óska eftir framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðrar lagningar göngu-, reið og hjólastígs við Eiðisvatn að Grundartangavegi.
Áformað er að ljúka gerð göngustígs meðfram Eiðisvatni á árinu 2026.
Verkefnið hefur á undanförnum árum verið unnið í áföngum frá Melahverfi og meðfram Eiðisvatni í átt að Grundartanga, og er áformað að ljúka síðasta áfanganum og þeim lengsta, síðar á árinu.
Um er að ræða áframhaldandi uppbyggingu göngustígs á svæðinu.
Gert er ráð fyrir að stígurinn verði malarstígur.
Áætluð heildarlengd nýs stígs er um 1.500 m auk yfirborðsfrágangs á hluta núverandi vegar innan skógræktarsvæðis sem tengist við Grundartangaveg / Leynisveg.
Framkvæmdinni er skipt í eftirfarandi hluta:
Land Fellsenda: Um er að ræða um 300 m kafla. Um er að ræða L2 skv. aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Fyrir liggur leyfi landeiganda.
Land Klafastaða að skógræktarsvæði: Um er að ræða um 1.200 m kafla. Um er að ræða Skógræktar- og landgræðslusvæði SL4 og skv. skipulagsákvæðum í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar og segir "Stefnt er að aukinni skógrækt og að leggja göngustíga sem nýst geti bæði starfsmönnum og gestum." Fyrir liggur leyfi landeiganda Faxaflóahafna.
Skógræktarsvæði, yfirborðsfrágangur á núverandi vegi: Á um 310 m kafla er þegar lagður vegur og þar er eingöngu fyrirhugaður yfirborðsfrágangur með malarslitlagi.
Skv. aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 segir m.a. um Eiðisvatn: "Gert er ráð fyrir lagningu göngu-, reið og- og hjólastígs meðfram Eiðisvatni. Svæðið verður fyrst og fremst nýtt til útivistar auk þess sem gert er ráð fyrir að stígurinn nýtist íbúum til atvinnusóknar."
Efla verkfræðistofa sér um verkfræðihönnun.
Verklok eru áætluð haustið 2026.
Verkefnastjóri framkvæmda og eigna hjá Umhverfis- og skipulagsdeild Hvalfjarðarsveitar annast umsjón og eftirlit með framkvæmd verksins.
Með erindinu fylgja yfirlitsmyndir af fyrirhugaðri stígaleið.

Skv. 5. grein reglugerðar um framkvæmdaleyfi geta verulegar framkvæmdir við stígagerð verið háðar framkvæmdaleyfi.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti veitingu framkvæmdaleyfis til eins árs frá staðfestingu sveitarstjórnar, vegna stígagerðar í landi Fellsenda og Klafastaða, á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Stígur meðfram Eiðisvatni verði unnin 1. ágúst 2026 eða síðar vegna varptíma fugla á svæðinu.
Fornleifastofnun Íslands vann aðalskráningu (grunnskráningu) fornleifa í Hvalfjarðarsveit (Hvalfjarðarstrandahreppi, Leirár- og Melasveit, Skilmannahreppi og Innri-Akraneshreppi) á árunum 2000-2003. Ekki er vitað um fornminjar á framkvæmdasvæðinu en framkvæmdaleyfið verði með fyrirvara um umsögn Minjastofnunar Íslands, en stofnuninni hefur þegar verið send ósk um umsögn.
Gerð verði úttekt af hálfu sveitarfélagsins, þar sem þess verði gætt að framkvæmd sé í samræmi við umsókn framkvæmdaleyfis og hjálagðra gagna hennar. Kostnaður við framkvæmdaleyfi er skv. gjaldskrá sveitarfélagsins.

5.Melahverfi S13 - Aðalskipulagsbreyting
2604024
Erindi frá Hvalfjarðarsveit.
Gera þarf breytingu á reit S13 í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og samsvarandi svæðis í gildandi deiliskipulagi.
Vegna lóðahönnunar nýs leikskóla og leikskólalóðar Skýjaborgar, liggur fyrir að ytri mörk lóðarinnar að Innrimel nr. 7, fara útfyrir reit S13 sem afmarkaður var í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir nýjan leikskóla, og hefur breytingin einnig sömu áhrif á deiliskipulag Melahverfis I og II frá árinu 2025.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að láta vinna og auglýsa skipulagslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, fyrir stækkun á reit S13 í Melahverfi, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samhliða breytingu á deiliskipulagi Melahverfis I og II.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.

6.Endurskoðun aðalskipulags - Skilmálabreytingar Landbúnaðarlands L3
2206043
Á fundi sveitarstjórnar 28. janúar 2026 var samþykkt að auglýsa tillögu að skilmálabreytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, fyrir Landbúnaðarland (L3) skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingartillagan var send í athugun fyrir auglýsingu í Skipulagsgátt og er niðurstaðan lögð hér fram í bréfi HMS dags. 24. apríl 2026, þar bendir stofnunin á atriði sem skoða þurfi áður en tillagan verði auglýst.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd felur Umhverfis- og skipulagsdeild að vinna breytingar á greinargerð skv. umræðum á fundinum og setja breytingartillöguna í auglýsingaferli skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sem samþykkt var 28. janúar s.l.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
7.Litla-Botnsland Ferðaþjónusta, L 224375 - Deiliskipulag
2604021
Lagt er fram deiliskipulag fyrir fyrirhugaða uppbyggingu á hótelstarfsemi og ferðaþjónustu í landi Litla-Botnslands 1 (L224375) í Hvalfirði. Áformuð er uppbygging á hóteli og tengdri ferðaþjónustu þar sem lögð er áhersla
á náttúruupplifun og endurheimt vistkerfa. Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 200 gesti, bæði á hóteli og í smærri gestahúsum, auk veitingareksturs, náttúrubaða og útivistar og annarri tengdri þjónustu.
Heildarstærð svæðisins er um 12 ha og heildar byggingarmagn undir ferðaþjónustu allt að 5.000 m2. Skipulagssvæðið er innan C-hluta náttúruminjaskrár og jafnframt innan hverfisverndarsvæðis Botns í Hvalfirði samkvæmt Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar. Talsverð útbreiðsla birkitrjáa er innan svæðisins. Hönnun og skipulag uppbyggingarinnar tekur mið af náttúrulegu umhverfi þar sem leitast er við að lágmarka rask á núverandi birkiskógi og stuðla að endurheimt hans og eflingu innan skipulagssvæðisins.
Skipulagið er í samræmi við breytt aðalskipulag, en svæðið var áður skilgreint sem frístundabyggð. Með breyttu aðalskipulagi (VÞ20) var heimiluð uppbygging fyrir allt að 200 gesti en í aðalskipulagi er einnig heimiluð uppbygging hótels á 3 ha svæði við Botnsskála (VÞ4). Samhliða gerð deiliskipulags er unnið að matstilkynningu til HMS, í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2024.
Fyrirhuguð uppbygging ferðaþjónustu á Litla Botnslandi miðar að því að styrkja stoðir ferðamennsku í Hvalfirði með hliðsjón af þeim náttúru- og menningargæðum sem svæðið hefur upp á að bjóða. Lögð er sérstök áhersla á að stuðla að endurheimt og uppgræðslu birkiskógar innan deiliskipulagssvæðisins og að uppbygging verði í sátt við náttúru og landslag. Útfærsla mannvirkja og skipulagsskilmála hefur verið unnin með það að markmiði að lágmarka rask með því að staðsetja byggingarsvæði utan núverandi útbreiðslu birkiskógarins. Markvisst verður unnið að verndun og endurheimt skógarins til að efla vistkerfi svæðisins og skapa aðlaðandi og fjölbreytt útivistasvæði fyrir gesti. Gert er ráð fyrir uppbyggingu náttúrulegra útivistarsvæða, þar á meðal náttúrulegra baðstaða og göngustíga um svæðið. Verkefnið mun jafnframt styrkja atvinnulíf á svæðinu og bæta þjónustu við ferðamenn með því að bjóða upp á fjölbreytta gistimöguleika ásamt ýmiss konar afþreyingu og útivist í nánum tengslum við sérstöðu svæðisins.
Samhliða er unnið með dreifiveitum að uppbyggingu öryggisþátta s.s. öruggari nettengingum, rafveitu og eftir atvikum neysluvatni sem kann að nýtast aðliggjandi svæðum.
Fyrir liggur greinargerð og uppdráttur.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að deiliskipulagstillagan verði auglýst með áorðnum breytingum skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
8.Hólabrú - Deiliskipulag
2601017
Á 58. fundi nefndarinnar var lagt fyrir nýtt deiliskipulag fyrir Hólabrúarnámu. Tillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Deiliskipulagið nær til efnistöku- og athafnasvæðis í landi Innra-Hólms L133691, Kirkjubóls L133697 og nær yfir Hólabrú 1 L223440. Þjóðvegurinn er með staðfangið Vegsvæði V11 L191605 og ná skipulagsmörkin einnig inn á það svæði. Í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 er svæðið merkt E13 Innri-Hólmur (Hólabrú) og nær einnig yfir athafnasvæði AT9 fyrir verkstæði, starfsmannaaðstöðu og aðstöðu vegna námuvinnslu.
Deiliskipulagið var auglýst í Skipulagsgátt frá 06.02.2026 til 20.03.2026 og bárust 7 umsagnir á auglýsingatímanum.
Lögð er fram samantekt umsagna og tillaga að breytingum á greinargerð til samræmis við viðbrögð vegna umsagna.

Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagstillöguna með áorðnum breytingum í samræmi við framkomnar umsagnir og viðbrögð við þeim, og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu HMS.
Nefndin samþykkir einnig að í deiliskipulaginu verði bætt við upplýsingum um hvernig spornað verði við óhreinindum sem berast út á þjóðveg af flutningabílum.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Nefndin samþykkir einnig að í deiliskipulaginu verði bætt við upplýsingum um hvernig spornað verði við óhreinindum sem berast út á þjóðveg af flutningabílum.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
9.Þórisstaðir, L133217 og Þórisstaðir 2, L233003 - Deiliskipulag
2604022
Lagt fram nýtt deiliskipulag sem nær til 84 ha svæðis fyrir frístundabyggð og smávirkjun að Þórisstöðum II og Þórisstöðum, Hvalfjarðarsveit.
Svæðið er skilgreint sem frístundabyggð F52 og landbúnaðarland í flokki ll í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.
Aðkoma að svæðinu er frá Dragavegi (520).
Afmörkun svæðisins nær til frístundabyggðarinnar og legu fallpípu smávirkjunar milli stöðvarhúss, inntaks og miðlínu árfarvegar.
Lóðirnar að Þórisstöðum II skiptast í tvö svæði. Vestari hlutinn er nefndur Kúhalli og eystri hlutinn Hjallholt.
Jörðin liggur vestan undir Glámu, sem markar vesturbrún Botnsheiðar og suðaustan við Þórisstaðavatn, til móts við land Saurbæjar, að vestan um Kúhallará (Kúvallará), sem rennur einnig á merkjum Þórisstaða að sunnan
á móti löndum Ferstiklu, Hrafnabjarga og Bjarteyjarsands. Að austan á Brekka land að Þórisstöðum, en að norðan er Geitaberg og handan Þverár og Þórisstaðavatns er Glammastaðaland.
Þórisstaðavatn (einnig nefnt Glammastaðavatn) er eitt þriggja vatna í Svínadal, sem öll eru hluti vatnasvæðis Laxár í Leirársveit. Jörðin Þórisstaðir, þar með talið Þórisstaðir II, er í einkaeigu sama aðila.
Skv. skipulaginu er m.a. fjallað um virkjun Kúhallarár, frístundabyggð og skógrækt vegna 78 lóða, atvinnurekstur/útleigu- eða gististarfsemi ofl.
Fram kemur að gert sé ráð fyrir undanþáguheimildum frá fjarlægðarreglum þjóðvega og gert ráð fyrir að sleppa skipulagslýsingu.

Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd fór yfir framlögð gögn og voru umræður um málið.
Í ljósi þess að hér er um umfangsmikið svæði að ræða þar sem saman fer margskonar starfsemi, samþykkir nefndin að fela Umhverfis- og skipulagsdeild að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum með það að markmiði að hægt verði að fjalla aftur um málið að lokinni þeirri yfirferð.
Afgreiðslu málsins frestað.

10.Hafnarskógar 81 - Umsókn um óverulega deiliskipulagsbreytingu
2602006
Á 59. fundi Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar þann 18.2.2026, var fjallað um óverulega deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Hafnar II fyrir Hafnarskóga 81. Breyting deiliskipulagsins felur í sér breytingu á skipulagsuppdrætti og byggingarskilmálum. Breytingin er í samræmi við Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Í gildi er deiliskipulag í landi Hafnar II nr. 877/2008 í B-deild stjórnartíðinda, en síðan þá hafa verið gerðar tvær breytingar árin 2014 og 2011. Umsóknin tekur til færslu á lóð til suð vesturs, færslu og stækkun á byggingarreit, breyttrar mænisstefnu, breytts þakhalla í 0-45°. Lagður er fram uppdráttur með lýsingu á breytingum. Umhverfis- og skipulagsdeild var falið að afla ferkari upplýsinga og afgreiðslu málsins frestað.
Á 60. fundi nefndarinnar voru lögð fram uppfærð gögn og samþykki til grenndarkynningar á óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Hafnarskógar 81 skv. fyrr greindum atriðum.
Grenndarkynnt var í Skipulagsgátt frá 30. mars - 27. apríl og bárust 2 athugasemdir frá landeigendum Hafnar II.

Umhverfis- og skipulagsdeild hefur rætt við landeigendur og farið yfir þær athugasemdir sem þeir gera við breytingartillöguna.
Í ljósi athugasemda þeirra telur Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd sér ekki fært um að samþykkja tillöguna til staðfestingar í B-deild og felur Umhverfis- og skipulagsdeild að ræða við lóðarhafa.
Afgreiðslu erindisins er því frestað.

11.Umsókn um stofnun lóðar - Móhóll 3a Merkjalýsing
2604015
Lögð fram umsókn um stofnun nýrrar lóðar úr upprunalandinu Höfn, L133742. Lóðin liggur að Móhól 3 og fær staðfangið Móhóll 3a er að stærð 13.137,3 m2. Lóðin er að hluta innan deiliskipulags fyrir Móhól, að hluta innan F24 - Frístundabyggðar skv. Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og L2-Landbúnaðarlands.
Upprunalandið Höfn L133742 er 1.819,6 ha og verður eftir breytingu 1.818,2 ha.
Engin mannvirki eru á lóðinni.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti merkjalýsinguna með áorðnum breytingum og þær breytingar sem í henni felast.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
12.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Kúhalli 5 - Flokkur 1
2604010
Mál af afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
Sótt erum byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóðinni Kúhalli 5, L133537. Stærð lóðar er 10.930 m2 og frístundahús 122,3 m2. Húsið er timburhús á einni hæð með millilofti, reist á staðsteyptum sökkli með steyptri botnplötu.
Ekkert deiliskipulag er gildi.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að grenndarkynna erindið skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir aðliggjandi lóðarhöfum og landeiganda þ.e. Kúhalla 7 L133539, Kúhalla 6 L133538, Kúhalla 4 L133536, Kúhalla 2 L133534, Kúhalla 3 L133535 og Þórisstöðum 2 L233003.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
13.Málstefna Hvalfjarðarsveitar
2604011
Lögð eru fram drög að Málstefnu Hvalfjarðarsveitar.
Lagt fram til kynningar.
Í ljósi þess að hér er um að ræða síðasta fund nefndarinnar á þessu kjörtímabili vill Umhverfis- og skipulagsdeild þakka nefndarfólki fyrir ánægjulegt og gott samstarf á kjörtímabilinu.
Fundi slitið - kl. 18:15.