Fara í efni

Sveitarstjórn

438. fundur 11. mars 2026 kl. 15:26 - 16:01 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti
  • Helga Harðardóttir varaoddviti
  • Helgi Pétur Ottesen ritari
  • Elín Ósk Gunnarsdóttir vararitari
  • Birkir Snær Guðlaugsson aðalmaður
  • Ása Hólmarsdóttir aðalmaður
  • Sæmundur Víglundsson 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Helga Harðardóttir varaoddviti
Dagskrá
Andrea Ýr Arnarsdóttir, oddviti, bauð fundarfólk velkomið.

Oddviti óskar eftir, með vísan til c.liðar 16. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar, að bæta með afbrigðum eftirfarandi máli á dagskrá:

Mál nr. 2509017 - Breytt tímasetning næsta sveitarstjórnarfundar. Málið verður nr. 7 á dagskránni verði það samþykkt.

Samþykkt 7:0

Inga María Sigurðardóttir boðaði forföll.

1.Sveitarstjórn - 437

2602006F

Fundargerðin framlögð.

2.Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 89

2602008F

Fundargerðin framlögð.
HPO fór yfir helstu atriði fundarins.
  • Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 89 Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja framlagða tillögu að lausri kennslustofu við leikskólann Skýjaborg. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir framlagða tillögu að lausri kennslustofu við leikskólann Skýjaborg."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 89 Lögð var fram tillaga að líkamsræktarsal í Heiðarborg frá ASK arkitektum og Technogym. Mannvirkja- og framkvæmdanefnd samþykkir tillöguna og tekur undir tilmæli ráðgjafa um að núverandi parketgólf verði fjarlægt.

    Samkvæmt tillögunni verði parketgólfið fjarlægt og steypt ílögn í gólfið (um 10 cm) þar sem gert er ráð fyrir lögnum og rafmagnsrennum fyrir tæki. Yfirborð verði lagt vínylflísum. Með þessari framkvæmd er tryggt að gólfið þoli tæki og það punktálag sem verður í rýmum af þessu tagi þar sem lyftingar og hopp eiga sér stað.

    Jafnframt er samþykkt að loka hurð inn í þvottahús/tæknirými í samræmi við framlagða tillögu.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir og staðfestir bókun nefndarinnar. Frumkostnaðaráætlun vegna endurbótanna er kr. 29.273.250 og samþykkir sveitarstjórn vegna þess viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2026 á deild 31060, ýmsa lykla en auknum útgjöldum verður mætt með lækkun á handbæru fé."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Menningar- og markaðsnefnd - 63

2603001F

Fundargerðin framlögð.
BSG fór yfir helstu atriði fundarins.
  • Menningar- og markaðsnefnd - 63 Menningar- og markaðsnefnd leggur til við sveitastjórn að gengið verði til samnings við Valdimar Inga Brynjarsson og Hjörvar Gunnarsson og sveitarstjóra verði falið að undirrita samninginn. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að fela sveitarstjóra að undirrita framlagðan samning við Valdimar Inga Brynjarsson og Hjörvar Gunnarsson um skipulag og framkvæmd Hvalfjarðardaga 2026. Í ár verða Hvalfjarðardagar með afmælisþema í tilefni af 20 ára afmæli sveitarfélagsins á árinu."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Velferðar- og fræðslunefnd - 9

2603002F

Fundargerðin framlögð.
HH fór yfir helstu atriði fundarins.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 9 Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir erindisbréf um sameiginlegt móttöku- og matsteymi Hvalfjarðarsveitar, Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða og HVE. Málinu er vísað til sveitarstjórnar til samþykktar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir erindisbréf um sameiginlegt móttöku- og matsteymi Hvalfjarðarsveitar, Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða og HVE."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 9 Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja viðaukabeiðni vegna Heiðarskóla. Erindinu vísað til samþykktar sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun ársins 2026, á deild 04022, að fjárhæð 903.000 kr. vegna skólabúða fyrir 7. og 9. bekk Heiðarskóla. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 9 Velferðar- og fræðslunefnd þakkar verkefnahópnum fyrir vel unnin störf. Nefndin samþykkir nýja samræmda gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi og vísar málinu til afgreiðslu til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir og tekur undir bókun nefndarinnar. Sveitarstjórn samþykkir nýja samræmda gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi.
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 9 Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja viðaukabeiðni samhliða afgreiðslu Mannvirkja- og framkvæmdanefndar vegna færanlegrar kennslustofu við Skýjaborg. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun ársins 2026, á deild 04012, að fjárhæð 3.232.296 kr. vegna búnaðar í færanlega kennslustofu fyrir leikskólann Skýjaborg. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2026, deild 04012, að fjárhæð 15.011.261 kr. vegna aukningu á stöðugildum vegna barnafjölgunar á Skýjaborg, sem fyrirséð er að vari út skólaárið. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 9 Velferðar- og fræðslunefnd tekur undir og leggur áherslu á að Heiðarborg verði miðja samfélagsins í Hvalfjarðarsveit og að þar verði byggður upp íþrótta-/hreyfisalur með fjölbreyttri notkun og gildi fyrir ólíka aldurshópa. Í samantektinni er hreyfing og lýðheilsa skilgreind sem kjarnaþjónusta og lagt til að efla aðstöðu með skipulögðum tímum og betri nýtingu rýma.

    Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tilboð frá Technogym. Tækin bjóða upp á meiri möguleika fyrir sveitarfélagið hvað varðar notkunarmöguleika og öryggi í sal.

    Velferðar- og fræðslunefnd vísar kynningu á niðurstöðum ráðgjafa til öldungaráðs og ungmennaráðs.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir kaup á tækjum frá Technogym."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 9 Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærðar reglur um styrki til nema í leikskólakennarafræðum í Hvalfjarðarsveit. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir uppfærðar reglur um styrki til nema í leikskólakennarafræðum í Hvalfjarðarsveit."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Ársreikningur Hvalfjarðarsveitar 2025.

2603011

Fyrri umræða.
Ársreikningur vegna ársins 2025 lagður fram til fyrri umræðu.

Rekstrartekjur Hvalfjarðarsveitar árið 2025 námu rúmum 1.675mkr. samkvæmt rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en þar af námu rekstrartekjur A hluta tæpum 1.687mkr.

Rekstrargjöld sveitarfélagsins á árinu 2025 voru 1.423,6mkr. fyrir A og B hluta en 1.416,1mkr. fyrir A hluta. Fjármagnsliðir voru jákvæðir og námu 220,4mkr. og aðrar tekjur og gjöld voru 4,8mkr. gjöld.

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 467,1mkr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 5.243,7mkr. samkvæmt efnahagsreikningi. Veltufé frá rekstri var 31,90%, veltufjárhlutfall 9,03% og eiginfjárhlutfall 96%.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa ársreikningi vegna ársins 2025 til síðari umræðu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.

2505008

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitarsamþykkir viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun ársins 2026, ýmsar deildir, að fjárhæð 4.421.547 kr. vegna tölvubúnaðar sem bókaðist ekki úr vinnubókum í fjárhagsáætlun. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Breytt tímasetning næsta sveitarstjórnarfundar.

2509017

Erindi frá oddvita.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að næsti fundur sveitarstjórnar sem haldinn verður miðvikudaginn 25. mars nk. og hefjast ætti kl. 15 verði seinkað og hefjist ekki fyrr en kl. 17 þann dag vegna aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem fram fer kl. 14:30 á Hótel Borgarnesi."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Óbindandi viðhorfskönnun meðal kjörgengra íbúa.

2603012

Mál frá 432. sveitarstjórnarfundi.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum nr. 432 að samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum, þann 16. maí nk., yrði lögð fyrir óbindandi viðhorfskönnun meðal kjörgengra íbúa, þar sem spurt yrði um afstöðu til sameiningar við önnur sveitarfélög. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar felur oddvita að vinna málið áfram og leggja fyrir tillögu á næsta fundi sveitarstjórnar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Skýjaborg - laus kennslustofa.

2512022

Grenndarkynningu lokið.

Kynningartími í Skipulagsgátt var frá 21. janúar til og með 18. febrúar 2026 og lauk kynningartíma án athugasemda en alls bárust umsagnir frá 3 aðilum/lóðarhöfum.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar sem framkvæmd var skv. 2. mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, gerir sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar fyrir sitt leyti ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis fyrir lausa kennslustofu við lóð leikskólans Skýjaborgar, Innrimel 1 í Melahverfi."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

10.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Leynir - Grenndarkynning

2512008

Grenndarkynningu lokið.

Kynningartími í Skipulagsgátt var frá 2. febrúar til og með 2. mars 2026 og lauk kynningartíma án athugasemda.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar sem framkvæmd var skv. 2. mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, gerir sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar fyrir sitt leyti ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis fyrir skemmu á lóðinni Leynir L221536."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

11.Birkihlíð 35 - Byggingarleyfi - Breyting á skilmálum deiliskipulags Birkihlíðar

2508023

Grenndarkynningu lokið.

Kynningartími í Skipulagsgátt var frá 30.01.2026 - 27.02.2026 og lauk kynningartíma án athugasemda, en umsögn barst frá einum aðila.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir deiliskipulagstillöguna á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi fyrir frístundabyggð Birkihlíðar í landi Kalastaða sem framkvæmd var skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

12.Torfholt, L 240669 - deiliskipulagsbreyting.

2602031

Kynningartími í Skipulagsgátt var frá 3.03.2026 - 31.03.2026 og bárust tvær umsagnir. Í ljósi þess að þeir aðilar sem hagsmuna höfðu að gæta og grenndarkynningin beindist að, hafa lýst yfir skriflega, áður en kynningartími var liðinn, að þeir geri ekki athugasemdir við fyrirhuguð áform. Því hefur verið tímabil grenndarkynningar verið stytt.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir deiliskipulagstillöguna á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Torfholts úr landi Leirár sem framkvæmd var skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

13.Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati.

2603013

Umsögn Hvalfjarðarsveitar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Umsögn sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar framlögð, hún var send inn í samráðsgátt stjórnvalda þann 5.mars sl. Sveitarstjórn ítrekar beiðni um fund með Innviðaráðherra til að ræða málið nánar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

14.Aðalfundur SSV árið 2026.

2603004

Aðalfundarboð.
Aðalfundur SSV verður haldinn miðvikudaginn 25. mars nk. á Hótel Borgarnesi. Sama dag eru jafnframt aðalfundir Starfsendurhæfingar Vesturlands, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Heilbrigðisnefndar Vesturlands og Sorpurðunar Vesturlands.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn samþykkir að fulltrúar Hvalfjarðarsveitar á aðalfundi SSV verði Andrea Ýr Arnarsdóttir, Birkir Snær Guðlaugsson og Inga María Sigurðardóttir. Til vara verði Helgi Pétur Ottesen, Helga Harðardóttir og Ása Hólmarsdóttir. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að sveitarstjóri fari með atkvæðisrétt Hvalfjarðarsveitar á aðalfundi Heilbrigðisnefndar Vesturlands, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands og Sorpurðunar Vesturlands.

Aðalfundur SSV fellur undir reglur sveitarstjórnar og ákvörðun sveitarstjórnar um fundi eða ráðstefnur utan Hvalfjarðarsveitar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

15.Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands hf. 2026.

2603008

Aðalfundarboð ásamt fylgigögnum.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn vísar í afgreiðslu 13. dagskrárliðs, þar sem sveitarstjóra er falið að fara með atkvæðisrétt Hvalfjarðarsveitar á aðalfundi Sorpurðunar Vesturlands.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.


Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi skipan fulltrúa í stjórn Sorpurðunar Vesturlands. Aðalfulltrúi Andrea Ýr Arnarsdóttir og varafulltrúi Helgi Pétur Ottesen.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

16.Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2026.

2603002

Aðalfundarboð.
Aðalfundur Lánsjóðs sveitarfélaga ohf. verður haldinn föstudaginn 20. mars nk. á Grand Hótel í Reykjavík.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn samþykkir að oddviti fari með atkvæðisrétt Hvalfjarðarsveitar á aðalfundi Lánasjóðs sveitarfélaga."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

17.Verkefnaráð vegna Holtavörðuheiðarlínu 1.

2206050

Erindi frá ráðuneytinu í kjölfar tilnefningar Hvalfjarðarsveitar í raflínunefnd.
Sveitarstjórn samþykkti á 437. sveitarstjórnarfundi að tilnefna Sæmund Víglundsson sem fulltrúa Hvalfjarðarsveitar í raflínunefnd. Ráðuneytið óskaði eftir, með tölvupósti 27.febrúar sl., að Hvalfjarðarsveit tilnefni einnig konu í nefndina skv. 28. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, en þar er meðal annars kveðið á um að þegar tilnefnt er í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli tilnefna bæði karl og konu.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn samþykkir að tilnefna Helgu Harðardóttur og Sæmund Víglundsson sem fulltrúa Hvalfjarðarsveitar í raflínunefnd."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

18.Ósk um endurgjaldslaus afnot af Miðgarði.

2603006

Erindi frá Félagi eldri borgara í Hvalfjarðarsveit.
Félag eldri borgara í Hvalfjarðarsveit hefur afturkallað beiðni um afnot af Miðgarði.

19.Afskriftabeiðni.

2603009

Erindi frá Sýslumanni Vesturlands.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagða afskriftarbeiðni frá Sýslumanninum á Vesturlandi að fjárhæð kr. 4.192.403."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

20.Strandlengja landsins - áskorun til sveitarstjórna.

2603007

Erindi frá Siglingasambandi Íslands.
Erindi framlagt.

21.Frumvörp, reglur og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026.

2601036

Frumvarp til sveitarstjórnarlaga - umsagnarbeiðni.

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og lögum um Vegagerðina - umsagnarbeiðni.

Erindi framlögð.

Sveitarstjórn samþykkir að senda inn umsögn vegna frumvarps til sveitarstjórnarlaga, sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.

22.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Samband íslenskra sveitarfélaga.

2602001

Fundargerð 993. fundar.
Fundargerðin framlögð.

Fundi slitið - kl. 16:01.

Efni síðunnar