Mannvirkja- og framkvæmdanefnd
Dagskrá
1.Íþróttahús - Heiðarborg
2001042
Verkstaða íþróttahússins við Heiðarborg.
2.Melahverfi III - Gatnaframkvæmd
2409030
Verkstaða gatnaframkvæmda Melahverfis III.
Verkstaða gatnaframkvæmda kynnt og lögð fram drög að auglýsingu lóða.
3.Leikskólahúsnæði - Skýjaborg
2202016
Verkstaða hönnunar leikskólans Skýjaborgar.
Verkstaða hönnunar leikskólans kynnt.
4.Skýjaborg - laus kennslustofa.
2512022
Lögð fram tillaga að lausri kennslustofu við leikskólann Skýjaborg.
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja framlagða tillögu að lausri kennslustofu við leikskólann Skýjaborg.
5.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg
2509011
Lögð fram tillaga að líkamsræktarsal í Heiðarborg frá Ask arkitektum og Technogym.
Lögð var fram tillaga að líkamsræktarsal í Heiðarborg frá ASK arkitektum og Technogym. Mannvirkja- og framkvæmdanefnd samþykkir tillöguna og tekur undir tilmæli ráðgjafa um að núverandi parketgólf verði fjarlægt.
Samkvæmt tillögunni verði parketgólfið fjarlægt og steypt ílögn í gólfið (um 10 cm) þar sem gert er ráð fyrir lögnum og rafmagnsrennum fyrir tæki. Yfirborð verði lagt vínylflísum. Með þessari framkvæmd er tryggt að gólfið þoli tæki og það punktálag sem verður í rýmum af þessu tagi þar sem lyftingar og hopp eiga sér stað.
Jafnframt er samþykkt að loka hurð inn í þvottahús/tæknirými í samræmi við framlagða tillögu.

6.Rotþróarhreinsun - Útboð 2026
2602057
Hreinsun rotþróa í Hvalfjarðarsveit.
Lagt fram til kynningar.
7.Viðhalds- og framkvæmdaáætlun 2026 - 2029.
2601026
Verkefnastjóri framkvæmda og eigna fer yfir verkstöðu framkvæmda og önnur mál.
Verkefnastjóri framkvæmda og eigna fór yfir verkstöðu.
Fundi slitið - kl. 17:30.
Verkstaða framkvæmda við íþróttahúsið kynnt.