Fara í efni

Velferðar- og fræðslunefnd

9. fundur 05. mars 2026 kl. 15:30 - 17:30 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Helga Harðardóttir formaður
  • Ásta Jóna Ásmundsdóttir varaformaður
  • Berglind Ósk Jóhannesdóttir ritari
  • Diljá Marín Jónsdóttir áheyrnafulltrúi
  • Sigurbjörg Friðriksdóttir áheyrnafulltrúi
  • Katrín Rós Sigvaldadóttir áheyrnafulltrúi
  • Hildur Jónsdóttir áheyrnafulltrúi
  • Helgi Pétur Ottesen Varamaður
  • Sæmundur Rúnar Þorgeirsson 1. varamaður
Starfsmenn
  • Freyja Þöll Smáradóttir embættismaður
  • Eyrún Jóna Reynisdóttir embættismaður
  • Sigríður Lára Guðmundsdóttir embættismaður
  • Svala Ýr Smáradóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Freyja Þöll Smáradóttir Deildarstjóri Velferðar- og fræðsludeildar
Dagskrá
Inga María Sverrisdóttir, Sólrún Jörgensdóttir og Marie Greve Rasmussen boðuðu forföll.

Áheyrnarfulltrúar sátu undir lið nr. 3, 4, 7, 8, 9, 11, 18 og 19.
Diljá Marín Jónsdóttir sat fundir í fjarbúnaði.
Leik- og grunnskólastjórar sátu undir lið nr. 3, 4, 5, 7, 8, 9, 11, 18 og 19.

1.Styrkumsókn - Verkefnið sterkari út í lífið.

2602044

Erindi frá Sálfræðistofunni.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir að styrkja Sálfræðistofuna Höfðabakka úr forvarnarsjóði um 50.000 kr. fyrir verkefnið Sterkari út í lífið.

2.Gott að eldast - samþætt þjónusta

2306006

Erindisbréf um sameiginlegt móttöku- og matsteymi Hvalfjarðarsveitar, Hjúkrunarheimilisins Höfða og HVE.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir erindisbréf um sameiginlegt móttöku- og matsteymi Hvalfjarðarsveitar, Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða og HVE. Málinu er vísað til sveitarstjórnar til samþykktar.

3.Skóladagatal leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar 2026 - 2027.

2602012

Skóladagatal fyrir Skýjaborg 2026-2027 lagt fram.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir framlagt skóladagatal Skýjaborgar fyrir skólaárið 2026-2027.

4.Skóladagatal leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar 2026 - 2027.

2602012

Skóladagatal Heiðarskóla 2026-2027 lagt fram.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir framlagt skóladagatal Heiðarskóla fyrir skólaárið 2026-2027.

5.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.

2505008

Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun Heiðarskóla fyrir árið 2026.
Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja viðaukabeiðni vegna Heiðarskóla. Erindinu vísað til samþykktar sveitarstjórnar.

6.Reglur um greiðslur til stuðningsfjöskyldna

2602049

Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi tilnefndi árið 2025 í hóp fagaðila, frá hverju sveitarfélagi, til að yfirfara greiðslur til stuðningsfjölskyldna á svæðinu og leggja fram tillögu að samræmdri gjaldskrá. Verkefnahópurinn fundaði í átta skipti tímabilið október - desember 2025 og hefur nú lagt fram tillögu að samræmdri gjaldskrá sem lögð er fram til kynningar og umræðu.
Velferðar- og fræðslunefnd þakkar verkefnahópnum fyrir vel unnin störf. Nefndin samþykkir nýja samræmda gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi og vísar málinu til afgreiðslu til sveitarstjórnar.

7.Skýjaborg - laus kennslustofa.

2512022

Á 6. fundi Velferðar- og fræðslunefndar lagði nefndin til við sveitarstjórn að sett yrði færanleg kennslustofa við leikskólann Skýjaborg til að mæta fyrirliggjandi og fyrirsjáanlegri þörf fyrir auknum barnafjölda.



Á fundi sveitastjórnar þann 10.des.sl. var farið yfir stöðu dvalarrýma og starfsaðstæður í Skýjaborg. Sveitarstjórn tók jákvætt í hugmynd um færanlega kennslustofu, við leikskólann, á grundvelli framlagðs minnisblaðs og fól Velferðar- og fræðsludeild að fullvinna útfærslu framkvæmdarinnar í samstarfi við leikskólastjóra og verkefnastjóra framkvæmda og eigna.



Á fundi Mannvirkja- og framkvæmdanefndar þann 3. mars sl. var lögð fram endanleg tillaga að færanlegri kennslustofu við leikskólann Skýjaborg og bókun vísað til afgreiðslu sveitastjórnar.



Samhliða afgreiðslu Mannvirkja- og framkvæmdanefndar þarf að huga að rekstrarkostnaði og aðbúnaði vegna færanlegrar kennslustofu við Skýjaborg og er því framlögð beiðni um viðauka í samræmi við meðfylgjandi kostnaðaráætlun vegna innanstokksmuna og kostnaðar Skýjaborgar.

Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja viðaukabeiðni samhliða afgreiðslu Mannvirkja- og framkvæmdanefndar vegna færanlegrar kennslustofu við Skýjaborg.

8.Skólanámskrá leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveit

2603005

Skólanámskrá leik- og grunnskóla í Hvalfjarðarsveit. Um er að ræða fyrri hluta sem er sameiginlegur fyrir Skýjaborg og Heiðarskóla.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir fyrri hluta skólanámskrár leik- og grunnskóla í Hvalfjarðarsveit.

9.Skólanámskrá leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveit

2603005

Skólanámskrá leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveit lagt fram. Um er að ræða seinni hluta sem snýr að Skýjaborg.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir seinni hluta skólanámskrár leik- og grunnskóla í Hvalfjarðarsveit sem snýr að Skýjaborg.

10.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg

2509011

Í september 2025 samþykkti sveitarstjórn að semja við Guðmundu Ólafsdóttur um verkefnastjórn um mótun heildarsýnar fyrir Heiðarborg sem Samfélagsmiðstöð. Ráðgjafi hefur nú skilað inn samantekt og tillögum að nýtingu mannvirkja Heiðarborgar, sem er byggð á minnisblöðum og gögnum sem aflað var í ferlinu. Gögnum var aflað með íbúakönnun, fundum með hagsmunaðilum, nefndum, ráðum og sveitarstjórn. Skýr rauður þráður er að Heiðarborg verði miðja samfélagsins í Hvalfjarðarsveit, samkomustaður fyrir unga sem aldna.



Sveitastjórn vísaði málinu til kynningar til Velferðar- og fræðslunefnd.



Í samantektinni er hreyfing og lýðheilsa skilgreind sem kjarnaþjónusta og lagt til að bæta nýtingu þreksalar.
Velferðar- og fræðslunefnd tekur undir og leggur áherslu á að Heiðarborg verði miðja samfélagsins í Hvalfjarðarsveit og að þar verði byggður upp íþrótta-/hreyfisalur með fjölbreyttri notkun og gildi fyrir ólíka aldurshópa. Í samantektinni er hreyfing og lýðheilsa skilgreind sem kjarnaþjónusta og lagt til að efla aðstöðu með skipulögðum tímum og betri nýtingu rýma.

Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tilboð frá Technogym. Tækin bjóða upp á meiri möguleika fyrir sveitarfélagið hvað varðar notkunarmöguleika og öryggi í sal.

Velferðar- og fræðslunefnd vísar kynningu á niðurstöðum ráðgjafa til öldungaráðs og ungmennaráðs.

11.Reglur um styrki til nema í leikskólakennarafræðum í Hvalfjarðarsveit

2103104

Á síðasta fundi Velferðar- og fræðslunefndar í Hvalfjarðarsveit voru drög að breytingum á reglum um styrki til nema í leikskólakennarafræðum í Hvalfjarðarsveit kynnt og verkefnastjóra á velferðar- og fræðsludeild ásamt leikskólastjóra falið að vinna málið áfram út frá umræðum á fundinum.



Lögð fram lokadrög að reglum um styrki til nema í leikskólakennarafræðum í Hvalfjarðarsveit til samþykktar.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærðar reglur um styrki til nema í leikskólakennarafræðum í Hvalfjarðarsveit. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar.

12.Frumvörp, reglur og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026.

2601036

Réttindavernd fatlaðs fólks - umsagnarbeiðni.

Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir - umsagnarbeiðni.

Framkvæmd öryggisráðstafana skv. dómsúrlausn - umsagnarbeiðni.
Lagt fram.

13.Hlutverk SIS-mats við framkvæmd þjónustu skv. lögum nr. 38/2018

2602053

Árið 2025 samþykkti Alþingi ný heildarlög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Meðal þeirra breytinga sem ný lög fela í sér er að framlög sjóðsins vegna málefna fatlaðs fólks.
Lagt fram.

14.Skammtímadvöl á Vesturlandi

2501005

Staðan á uppbyggingu skammtímadvalar á Vesturlandi kynnt.
Lagt fram.

15.Farsældarráð Vesturlands.

2509021

Fyrsti fundur farsældarráðs var haldin 22. janúar 2026 á Akranesi.
Lagt fram.

16.Rekstur á sundlauginni á Hlöðum - 2025

2503014

Yfirlit yfir rekstur sundlaugar að Hlöðum sumarið 2025.
Lagt fram.

17.Taktu þátt í að einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga

2602052

Mál til kynningar.
Lagt fram.

18.SumarGaman

2402037

SumarGaman sumarið 2026.
Lagt fram.

19.Fundargerðir skólaráðs

2309030

Skólaráðsfundur dags. 11.02.2026 til kynningar.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 17:30.

Efni síðunnar