Menningar- og markaðsnefnd
Dagskrá
1.Afmælisár Hvalfjarðarsveitar - 20 ára þann 1. júní 2026.
2602019
Í ár fagnar sveitarfélagið 20 ára afmæli. Hvalfjarðarsveit varð til 1. júní 2006 með sameiningu fjögurra hreppa, oft kallaðir ?hrepparnir sunnan Skarðsheiðar?. Þetta voru Hvalfjarðarstrandarhreppur, Skilmannahreppur, Leirár- og Melahreppur og Innri-Akraneshreppur. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 11. febrúar sl. að vísa skipulagi á afmælishátíð til Menningar- og markaðsnefndar
Velferðar- og fræðsludeild falið að vinna málið áfram.
2.Hvalfjarðardagar 2026
2511038
Hvalfjarðardagar verða haldnir 14. - 16. ágúst 2026.
Menningar- og markaðsnefnd leggur til við sveitastjórn að gengið verði til samnings við Valdimar Inga Brynjarsson og Hjörvar Gunnarsson og sveitarstjóra verði falið að undirrita samninginn.
3.Markaðs- og kynningarátak í Hvalfjarðarsveit
1905042
Samfélagsmiðlaherferð.
Velferðar- og fræðsludeild falið að vinna málið áfram.
4.Miðgarður - félagsheimili
2212002
Málið var áður á dagskrá Menningar- og markaðsnefndar þann 3/12/25.
Umræður fóru fram um verkstöðu. Verkið er á lokastigi.
5.Bókasafnsþjónusta - samstarf sveitarfélaganna.
2502021
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 25. febrúar sl. að ganga til samningaviðræðna við Akraneskaupstað um bókasafnsþjónustu.
Umræður fóru fram um málið.
Fundi slitið - kl. 18:30.