Fara í efni

Sveitarstjórn

436. fundur 11. febrúar 2026 kl. 15:42 - 16:08 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti
  • Helga Harðardóttir varaoddviti
  • Helgi Pétur Ottesen ritari
  • Elín Ósk Gunnarsdóttir vararitari
  • Birkir Snær Guðlaugsson aðalmaður
  • Inga María Sigurðardóttir aðalmaður
  • Ása Hólmarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Andrea Ýr Arnarsdóttir, oddviti, bauð fundarfólk velkomið og setti fund skv. fyrirliggjandi dagskrá.

1.Sveitarstjórn - 435

2601008F

Fundargerðin framlögð.

2.Menningar- og markaðsnefnd - 62

2601005F

Fundargerðin framlögð.
BSG fór yfir helstu atriði fundarins.
  • Menningar- og markaðsnefnd - 62 Menningar- og markaðsnefnd leggur til við sveitarstjórn að gengið verði til samnings við Tónlistarfélag Hvalfjarðarsveitar um skipulagningu og framkvæmd hátíðarhaldanna á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2026. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að gengið verði til samnings við Tónlistarfélag Hvalfjarðarsveitar um skipulagningu og framkvæmd hátíðarhaldanna á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2026. Sveitarstjóra falið að ganga frá framlögðum samningi."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 88

2601004F

Fundargerðin framlögð.
HPO fór yfir helstu atriði fundarins.
  • Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 88 Mannvirkja- og framkvæmdanefnd hefur farið yfir reglur um lóðaúthlutun í Hvalfjarðarsveit frá árinu 2021 og leggur til við sveitastjórn að þær standi óbreyttar.
    Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitarstjórn að nýjar lóðir í fyrsta áfanga Melahverfis III verði auglýstar til úthlutunar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að reglur um lóðaúthlutun í Hvalfjarðarsveit frá árinu 2021 standi óbreyttar. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að nýjar lóðir í fyrsta áfanga Melahverfis III verði auglýstar til úthlutunar."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Velferðar- og fræðslunefnd - 8

2602001F

Fundargerðin framlögð.
IMS fór yfir helstu atriði fundarins.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 8 Velferðar- og fræðslunednd leggur til við sveitastjórn að samið verði við Fjársýslu ríkisins um útboðsgerð vegna skólaaksturs í Hvalfjarðarsveit. Nefndin leggur einnig til við sveitarstjórn að skipa vinnuhóp til að halda utan um verkefnið. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að samið verði við Fjársýslu ríkisins um útboðsgerð vegna skólaaksturs í Hvalfjarðarsveit. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að skipa vinnuhóp til að halda utan um verkefnið. Vinnuhópurinn verði skipaður af fulltrúa frá Velferðar- og fræðsludeild, sveitarstjóra og formanni Velferðar- og fræðslunefndar."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 8 Farið var yfir reglur um íþrótta- og tómstundastyrki Hvalfjarðarsveitar. Gerðar voru efnislegar breytingar.

    Nefndin vísar uppfærðum reglum til samþykktar hjá sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir uppfærðar reglur um íþrótta- og frístundastyrki Hvalfjarðarsveitar."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 8 Farið var yfir breytingar á reglum um Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar.

    Nefndin vísar uppfærðum reglum til samþykktar hjá sveitarstjórn.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir uppfærðar reglur um Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 8 Farið var yfir breytingar á reglum um niðurgreiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum ásamt hækkun á upphæðum.

    Nefndin vísar uppfærðum reglum til samþykktar hjá sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir uppfærðar reglur um niðurgreiðslu vegna dvalar barna hjá dagforeldrum ásamt hækkun á fjárhæðum. Fyrir foreldra í sambúð fer fjárhæðin úr 8.750 kr. fyrir hverja klst. í 11.875 kr. Hámarksgreiðsla á mánuði fer úr 70.000.- í 95.000 kr. Fyrir einstæða foreldra fer fjárhæð fyrir hverja klst. úr 10.000 kr. í 13.125 kr. Hámarksgreiðsla á mánuði fer úr 80.000 kr. í 105.000 kr."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 8 Farið var yfir breytingar á reglum um Afrekssjóð Hvalfjarðarsveitar.

    Nefndin vísar uppfærðum reglum til samþykktar hjá sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir uppfærðar reglur um Afrekssjóð Hvalfjarðarsveitar."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Afmælisár Hvalfjarðarsveitar - 20 ára þann 1. júní 2026.

2602019

Í ár fagnar sveitarfélagið 20 ára afmæli. Hvalfjarðarsveit varð til 1. júní 2006 með sameiningu fjögurra hreppa, oft kallaðir „hrepparnir sunnan Skarðsheiðar“. Þetta voru Hvalfjarðarstrandarhreppur, Skilmannahreppur, Leirár- og Melahreppur og Innri-Akraneshreppur.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa skipulagi á afmælishátíð til Menningar- og markaðsnefndar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg

2509011

Samantekt frá ráðgjafa.
Í september 2025 samþykkti sveitarstjórn að semja við Guðmundu Ólafsdóttur um verkefnastjórn um mótun heildarsýnar fyrir Heiðarborg sem Samfélagsmiðstöð. Ráðgjafi hefur nú skilað inn samantekt og tillögum að nýtingu mannvirkja Heiðarborgar, sem er byggð á minnisblöðum og gögnum sem aflað var í ferlinu. Gögnum var aflað með íbúakönnun, fundum með hagsmunaðilum, nefndum, ráðum og sveitarstjórn. Skýr rauður þráður er að Heiðarborg verði miðja samfélagsins í Hvalfjarðarsveit, samkomustaður fyrir unga sem aldna.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa málinu til kynningar hjá Mannvirkja- og framkvæmdanefnd og Velferðar- og fræðslunefnd. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að samantektin fari til frekari úrvinnslu hjá Velferðar- og fræðsludeild, sem annist gerð kynningarefnis, um niðurstöður til kynningar fyrir íbúa, sem birt verði á heimasíðu sveitarfélagsins, öllum til upplýsinga."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar - Úttekt á starfsemi.

2111040

Erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að óska eftir að samstarfsnefnd sveitarfélaganna um Slökkviliðið komi saman til umfjöllunar og úrvinnslu erindisins og í kjölfarið verði drög að svari til HMS send inn til sveitarstjórnar til afgreiðslu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Styrkbeiðni vegna kaupa á björgunarskipinu Gísla Jóns frá Ísafirði.

2512006

Erindi frá Björgunarfélagi Akraness.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að styrkja Björgunarfélag Akraness um kr. 2.000.000 vegna kaupa á björgunarskipinu Gísla Jóns frá Ísafirði. Sveitarstjórn samþykkir vegna þess viðauka nr. 1. við fjárhagsáætlun ársins 2026 að fjárhæð kr. 2.000.000 á deild 07083 en auknum útgjöldum verður mætt með lækkun á handbæru fé."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Ósk um endurgjaldslaus afnot af Miðgarði.

2602002

Erindi frá Félagi eldri borgara í Hvalfjarðarsveit.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að veita Félagi eldri borgara í Hvalfjarðarsveit endurgjaldslaus afnot af Miðgarði 24. febrúar nk. vegna fundar með stjórn Landssambands eldri borgara. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til íþrótta- og æskulýðsmála."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

10.Umsagnarbeiðni - Þorrablót í Miðgarði.

2602004

Erindi frá Sýslumanni Vesturlands.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar gerir ekki athugasemdir við veitingu tækifærisleyfisins."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

11.Athugasemdir við málsmeðferð og afgreiðslu breytinga á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.

2602003

Erindi frá Axel Helgasyni.
Í erindi Axels Helgasonar, dags. 1. febrúar 2026 og birt er með fundargerðinni sbr. beiðni þar um, er þess óskað að sveitarstjórn fari yfir málsmeðferð vegna tillagna um breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins, svo sem þar nánar greinir og óskað svara vegna þess.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir eftirfarandi bókun vegna erindisins:

Aðalskipulagstillögurnar sem um ræðir lúta að breytingu á almennum skilmálum í 4 landnotkunarflokkum. Allar þessar tillögur hafa tilheyrt sama málsnúmeri 2206043 í kerfum sveitarfélagsins og sama málsheiti frá upphafi. Um þær hefur verið fjallað undir þessu málsnúmeri í bókunum og afgreiðslum Umhverfis-, skipulags-, náttúrverndar og landbúnaðarnefndar (hér eftir nefndin) og sveitarstjórnar.

Afgreiðsla sveitarstjórnar á skipulagsmálum:
Gerð var sameiginleg skipulagslýsing í Skipulagsgáttinni fyrir breytingar á þessum landnotkunarflokkum vegna hagræðis og hagkvæmis sem í því fólst, t.d. áttu sömu upplýsingar við í hverjum landnotkunarflokki sem óþarfi var að endurtaka mörgum sinnum, auk þess sem það var hagræði í því vegna t.d. auglýsinga. Á næsta stigi í Skipulagsgáttinni „tillaga á vinnslustigi“ voru málin sundurgreind. Upphafsstigið „Skipulagslýsing“, var tengt undir við hvert og eitt mál, þannig að þeir sem gerðu athugasemdir við „Tillögu á vinnslustigi“ gátu séð athugasemdir sem gerðar voru við „Lýsinguna“. Þannig var hægt að rekja sig í gegnum skipulagsferlið.

Skipulagstillögurnar hlutu málsmeðferð í samræmi við 30. gr. skipulagslaga með lýsingu, kynningu og samráði. Með umræddri bókun sveitarstjórnar var samþykkt að auglýsa tillögu að skilmálabreytingum í tveimur landnotkunarflokkum, landbúnaðarland (L3) og frístundabyggð (F) samkvæmt 31. gr. laganna. Sá munur er á málsmeðferð annars vegar tillögu á vinnslustigi og hinsvegar tillögu sem auglýsa á eftir að vinnslustigi er lokið, að ekki er gert ráð fyrir því að sveitarstjórn taki afstöðu til athugasemda sem berast á vinnslustigi, eins og sveitarstjórn ber að gera við umfjöllun um afgreiðslu tillögu, að liðnum athugasemdafresti, samkvæmt 32. gr. laganna.

Ekki verður séð að sá háttur sem hafður var á við að samþykkja að auglýsa skipulagstillögurnar á fundi sveitarstjórnar, hafi gengið í berhögg við skipulagslög eða sveitarstjórnarlög eða málsmeðferð að öðru leyti. Verður einnig ekki séð hvernig framangreint girði fyrir eða skerði úrræði íbúa samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Til þess er að líta að íbúar og aðrir munu eiga kost á því að koma að athugasemdum við tillögu þegar hún verður auglýst.

Samkvæmt framanrituðu er málsmeðferð ekki talin haldin annmörkum og ekki er talin ástæða til að vísa málinu til nefndarinnar til nýrrar málsmeðferðar eins og óskað er eftir. Sveitarstjórn þakkar hins vegar fyrir ábendinguna.

Tími til yfirferðar umsagna fyrir afgreiðslu o.fl.:
Vegna athugasemda varðandi skamman tíma til yfirferðar athugasemda vegna fundar nefndarinnar miðvikudaginn 21. janúar 2026. Fundarboð var sent föstudaginn 16. janúar sl. ásamt tilvísun á gagnagátt, þar sem nefndarmenn gátu kynnt sér umsagnir sem komnar voru og komu síðar. Voru flestar umsagnir komnar á þessum tíma. Hinn skammi tímafrestur skýrist af því að frestur til að skila athugasemdum í Skipulagsgátt var lengdur, vegna beiðni þess efnis á íbúafundi sem var haldinn í vikunni á undan þeirri viku sem fundur nefndarinnar var haldinn. Flestar umsagnir voru komnar í tæka tíð og aðgengilegar nefndarmönnum. Þess skal getið að engar athugasemdir hafa komið frá nefndarmönnum varðandi fundarboðun, gögn eða tímafresti. Var málið tekið fyrir á fundinum og afgreitt af nefndinni. Það skal áréttað að ekki er gert ráð fyrir í skipulagslögum að tekin sé afstaða til umsagna á kynningartíma vinnslutillögu og þegar ákveðið er að auglýsa tillögu skv. 1. mgr. 31. gr. laganna en tryggja skal að athugasemdir verði hafðar til hliðsjónar við vinnslu aðalskipulagstillögu á síðari stigum.

Með vísan til framanritaðs verður ekki talið að málsmeðferð hafi brotið í bága við skipulagslög eða sveitarstjórnarlög.

Sveitarstjórn þakkar ábendinguna og áfram verður lögð áhersla á að tryggja eins og kostur er nægan tíma til yfirferðar gagna fyrir fundi."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

12.Styrktarsjóður EBÍ 2026.

2601042

Erindi frá Styrktarsjóði EBÍ.
Erindi framlagt, sótt verður um styrk líkt og undanfarin ár, sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.

13.Frumvörp, reglur og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026.

2601036

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.

Frumvarp til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.
Erindi framlögð, send verður inn umsögn.

14.Frumvörp, reglur og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026.

2601036

Réttindavernd fatlaðs fólks - umsagnarbeiðni.

Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir - umsagnarbeiðni.

Framkvæmd öryggisráðstafana skv. dómsúrlausn - umsagnarbeiðni.

Frumvarp til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga - umsagnarbeiðni.
Erindi framlögð og vísað í viðeigandi nefndir.

15.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Samband íslenskra sveitarfélaga.

2602001

Fundargerð 992. fundar.
Fundargerðin framlögð.

16.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Faxaflóahafnir sf.

2602017

Fundargerð 264. fundar.
Fundargerðin framlögð.

Fundi slitið - kl. 16:08.

Efni síðunnar