Mannvirkja- og framkvæmdanefnd
Dagskrá
Við upphaf fundar var Ómars Arnar Kristóferssonar, sveitarstjórnarfulltrúa og aðalmanns í mannvirkja- og framkvæmdanefnd, minnst en Ómar lést þann 17. janúar sl. Nefndin sendir fjölskyldu Ómars innilegar samúðarkveðjur.
1.Íþróttahús - Heiðarborg
2001042
Verkstaða íþróttahússins við Heiðarborg.
Verkstaða framkvæmda við íþróttahúsið kynnt.
2.Melahverfi III - Gatnaframkvæmd
2409030
Verkstaða gatnaframkvæmda Melahverfis III.
Verkstaða framkvæmda kynnt, samkvæmt verkáætlun verktaka eru verklok gatnaframkvæmda 15 mars 2026, áætlað er að malbikun gatna og stíga verði framkvæmd um miðjan maí 2026.
3.Melahverfi III - úthlutun lóða.
2601043
Auglýsing og úthlutun nýstofnaðra lóða í Melahverfi III - 1. áfangi.
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd hefur farið yfir reglur um lóðaúthlutun í Hvalfjarðarsveit frá árinu 2021 og leggur til við sveitastjórn að þær standi óbreyttar.
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitarstjórn að nýjar lóðir í fyrsta áfanga Melahverfis III verði auglýstar til úthlutunar.
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitarstjórn að nýjar lóðir í fyrsta áfanga Melahverfis III verði auglýstar til úthlutunar.
4.Leikskólahúsnæði - Skýjaborg
2202016
Verkstaða hönnunar leikskólans Skýjaborgar.
Verkstaða hönnunar leikskólans kynnt.
5.Gatnahönnun að nýjum leikskóla Skýjaborgar.
2601044
Undirbúningur að gatnahönnun vegna nýs leikskóla Skýjaborgar.
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela Eflu verkfræðistofu að vinna að hönnun á verkframkvæmd nýrrar götu og samhliða því að vinna kostnaðarmat og útboðsgögn vegna verksins.
6.Krossland - Opin svæði leiksvæði.
2409033
Framlögð eru drög að hönnun leiksvæðis í Krosslandi.
Framlögð eru drög að hönnun leiksvæðis í Krosslandi. Mannvirkja- og framkvæmdanefnd óskar eftir endanlegum gögnum frá Verkfræðistofunni Eflu og að málið verði tekið upp að nýju að þeim mótteknum.
7.Göngu og reiðhjólastígar í sveitarfélaginu
2001040
Undirbúningur og leiðarval vegna nýrra verkefna á komandi árum samkv. framkvæmdaráætlun Hvalfjarðarsveitar.
Umræður fóru fram um stígagerð og önnur verkefni í Hvalfjarðarsveit. Mannvirkja- og framkvæmdanefnd samþykkir að hefja undirbúning og leiðaval vegna nýrra verkefna á komandi árum, í samræmi við framkvæmdaáætlun Hvalfjarðarsveitar. Undirbúningur verði unninn í samráði við umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd, auk annarra hagsmunaaðila.
Fundi slitið - kl. 17:30.