Fara í efni

Velferðar- og fræðslunefnd

8. fundur 05. febrúar 2026 kl. 15:30 - 17:30 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Ásta Jóna Ásmundsdóttir varaformaður
  • Berglind Ósk Jóhannesdóttir ritari
  • Inga María Sigurðardóttir aðalmaður
  • Diljá Marín Jónsdóttir áheyrnafulltrúi
  • Sigurbjörg Friðriksdóttir áheyrnafulltrúi
  • Katrín Rós Sigvaldadóttir áheyrnafulltrúi
  • Hildur Jónsdóttir áheyrnafulltrúi
  • Sólrún Jörgensdóttir áheyrnafulltrúi
  • Sæmundur Rúnar Þorgeirsson 1. varamaður
  • Helgi Pétur Ottesen Varamaður
Starfsmenn
  • Freyja Þöll Smáradóttir embættismaður
  • Eyrún Jóna Reynisdóttir embættismaður
  • Sigríður Lára Guðmundsdóttir embættismaður
  • Svala Ýr Smáradóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Freyja Þöll Smáradóttir Deildarstjóri Velferðar- og fræðsludeildar
Dagskrá
Helga Harðadóttir og Marie Greve Rasmussen boðuðu forföll.

Áheyrnarfulltrúar sátu undir lið nr. 2, 9, 10.

Leik- og grunnskólastjórar sátu undir lið nr. 2, 4, 9 og 10

1.Trúnaðarmál Velferðar- og fræðslunefndar

2504003

Trúnaðarmál tekin fyrir í Velferðar- og fræðslunefnd.

2.Skólaakstur - útboð 2026

2602010

Samningur um skólaakstur við Skagaverk rennur út í lok skólaárs 2025-2026.
Velferðar- og fræðslunednd leggur til við sveitastjórn að samið verði við Fjársýslu ríkisins um útboðsgerð vegna skólaaksturs í Hvalfjarðarsveit. Nefndin leggur einnig til við sveitarstjórn að skipa vinnuhóp til að halda utan um verkefnið.

3.Förum alla leið-Samþætt þjónusta í heimahúsum

2306006

Kynning á erindisbréfi um sameiginlegt móttöku- og matsteymi í Hvalfjarðarsveit.
Umræður á fundi vegna erindisbréfs vegna sameiginlegs móttöku- og matsteymis í Hvalfjarðarsveit. Málinu frestað og deildarstjóra velferðar- og fræðsludeildar falið að vinna málið áfram útfrá umræðum á fundinum.

4.Reglur um styrki til nema í leikskólakennarafræðum í Hvalfjarðarsveit

2103104

Drög að breytingum á reglum um styrki til nema í leikskólakennarafræðum í Hvalfjarðarsveit.
Drög að breytingum á reglum um styrki til nema í leikskólakennarafræðum í Hvalfjarðarsveit kynntar. Verkefnastjóra á velferðar- og fræðsludeild ásamt leikskólastjóra falið að vinna málið áfram út frá umræðum á fundinum.

5.Reglur um íþrótta- og tómstundastyrki Hvalfjarðarsveitar.

2602015

Drög að breytingum á reglum um íþrótta- og tómstundastyrki Hvalfjarðarsveitar.
Farið var yfir reglur um íþrótta- og tómstundastyrki Hvalfjarðarsveitar. Gerðar voru efnislegar breytingar.

Nefndin vísar uppfærðum reglum til samþykktar hjá sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar.

6.Reglur um Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar

2602014

Drög að reglum um Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar og úthlutun styrkja úr sjóðnum til íþrótta- og æskulýðsmála í Hvalfjarðarsveit.
Farið var yfir breytingar á reglum um Íþrótta- og æskulýðssjóð Hvalfjarðarsveitar.

Nefndin vísar uppfærðum reglum til samþykktar hjá sveitarstjórn.

7.Reglur um niðurgreiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum.

1604021

Reglur um niðurgreiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum.
Farið var yfir breytingar á reglum um niðurgreiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum ásamt hækkun á upphæðum.

Nefndin vísar uppfærðum reglum til samþykktar hjá sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar.

8.Afrekssjóður Hvalfjarðarsveitar

1811041

Drög að breytingum á reglum um Afrekksjóð í Hvalfjarðarsveit.
Farið var yfir breytingar á reglum um Afrekssjóð Hvalfjarðarsveitar.

Nefndin vísar uppfærðum reglum til samþykktar hjá sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar.

9.Skóladagatal leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar 2026 - 2027.

2602012

Drög að skóladagatali Skýjaborgar 2026-2027 lögð fram til kynningar og umræðu.
Lagt fram.

10.Skóladagatal leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar 2026 - 2027.

2602012

Drög að skóladagatali Heiðarskóla 2026-2027 lögð fram til kynningar og umræðu.
Lagt fram.

11.Fréttir úr skólastarfinu

2602011

Fréttir úr skólastarfinu.
Velferðar- og fræðslunefnd þakkar bæði grunn- og leikskólastjóra fyrir yfirferð á fréttum úr skólastarfinu.

12.Skammtímadvöl á Vesturlandi

2501005

Sveitarfélög á Vesturlandi; Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Snæfellsbær, Hvalfjarðarsveit og Dalabyggð, hafa átt í samráði við Þroskahjálp á Vesturlandi um brýna þörf fyrir uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi. Með sameiginlegri viljayfirlýsingu lýsa aðilar yfir vilja sínum til að vinna saman að framgangi verkefnisins með það að markmiði að tryggja börnum og fjölskyldum þeirra örugga og faglega þjónustu á svæðinu. Hér á eftir er rakin tímalína máls, frá því að samtalið hófst og fram til dagsins í dag.



Skammtímavistun á Vesturlandi.



Það var á fyrsta fundi stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi, þann 20. nóvember 2024, þar sem rætt var um sameiginlega þörf fyrir skammtímadvöl á Vesturlandi. Líkt og fram kemur í bókun fundarins var ákveðið að hvert sveitarfélag myndi kortleggja þörfina innan síns svæðis. Í framhaldi, á fundi þann 11. desember 2024, var ákveðið að stjórnendur á hverju svæði myndu óska eftir heimild frá sínum fagráðum til áframhaldandi samtals með það að markmiði að fara saman í uppbyggingu skammtímadvalar á Vesturlandi.



Á fundi stjórnenda þann 8. janúar 2025 kom fram að stjórnendur væru í samtali við sín fagráð og hefðu fengið góðan meðbyr. Lagt var upp með að allir stjórnendur yrðu komnir með formlega heimild eða bókun til áframhaldandi vinnslu verkefnisins fyrir næsta fund.



Þann 9. janúar 2025 var málið lagt fyrir Fjölskyldu- og frístundanefnd þar sem greint var frá umræðum samráðshóps stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi um möguleika á sameiginlegri uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn og ungmenni. Með bókun nefndarinnar var núverandi deildarstjóra velferðar- og fræðsludeildar falið að vinna málið áfram með hópi stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi.



Á fundi 12. febrúar 2025 var bókað að stjórnendur hefðu farið í greiningu á þörfinni í sínum sveitarfélögum og að umræða um skammtímavistun myndi halda áfram á næsta fundi. Á fundinum var einnig rætt um hvernig húsakostur kæmi til greina undir úrræði eins og skammtímavistun. Stjórnendur sammála um að vera með augun opin fyrir húsnæði á Vesturlandi.



Á fundi þann 10. mars 2025 var ákveðið að leggja upp með að stjórnendur verði búin að kortleggja stöðuna á sínu svæði og þörf fyrir skammtímavistun fyrir næsta fund.



Á þessum tímapunkti í ferlinu fóru stjórnendur jafnframt að ræða almennt möguleika á húsnæði á Vesturlandi sem gæti hentað undir skammtímadvöl, án þess að tekin væri formleg ákvörðun um tiltekið húsnæði. Í því samhengi bárust stjórnendum upplýsingar um að húsnæði á Holti gæti hugsanlega komið til skoðunar.



Þann 19. júní 2025 fóru stjórnendur í heimsókn í skammtímadvölina Móaflöt í Garðabæ. Þar tóku fulltrúar staðarins á móti hópnum og veittu mikilvæga innsýn í rekstur og fyrirkomulag sameiginlegrar skammtímadvalar fyrir börn og ungmenni til 18 ára aldurs. Í kjölfar heimsóknarinnar var bókað að haft yrði samband við formann Þroskahjálpar á Vesturlandi með það að markmiði að óska eftir sameiginlegum fundi.



Þann 8. október 2025 var fundur með stjórnendum í velferðarþjónustu og formanni Þroskahjálpar á Vesturlandi þar sem skoðaðir voru möguleikar á samstarfi með Holt. Þar kom fram að Þroskahjálp á Vesturlandi hafði áhuga á samstarfi við sveitarfélögin á Vesturlandi. Fram kom í þessu samtali að aðrir aðilar hefðu einnig sýnt Holti áhuga og hefðu hug á að nýta húsnæðið fyrir svipaðan rekstur en Þroskahjálp hefði frekar hug á að koma á skammtímadvöl fyrir Vesturland. Þá lýsti Þroskahjálp vilja við að laga húsnæðið með það í huga að þar yrði skammtímadvöl fyrir börn og ungmenni á Vesturlandi sem mæti núgildandi kröfum. Bókað var að stjórnendur myndu kynna málið fyrir sínum fagráðum og að útbúin yrði viljayfirlýsing samhliða áframhaldandi samtali við Þroskahjálp.



Viljayfirlýsing sveitarfélaga við Þroskahjálp var lögð fyrir Velferðar- og fræðslunefnd þann 6. nóvember 2025. Þar kom fram sameiginlegur vilji aðila til að vinna saman að framgangi verkefnisins með áherslu á örugga og faglega þjónustu. Velferðarnefnd lýsti yfir mikilli ánægju með mögulega aðkomu Þroskahjálpar að uppbyggingu skammtímadvalar á Vesturlandi og lagði áherslu á brýna þörf fyrir slíkt úrræði.



Þann 3. desember 2025 skrifaði Hvalfjarðarsveit undir sameiginlega viljayfirlýsingu ásamt sveitarfélögum á Vesturlandi og var lagt til að verkefnahópur myndi skila niðurstöðum sínum fyrir 13. febrúar 2026.



Í kjölfar undirritunar hafa stjórnendur á Vesturlandi fundað nánast vikulega með það að markmiði að útfæra verkefnið nánar í samræmi við efni viljayfirlýsingarinnar. Vinnan hefur einkum snúið að mótun þjónustunnar og skilgreiningu helstu forsendna fyrir uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi.



Í þessari vinnu hefur verið lögð áhersla á að móta heildstæða skammtímadvöl sem uppfyllir gildandi lög og reglugerðir um málefni fatlaðs fólks, tryggir jafnt aðgengi barna og fjölskyldna óháð búsetu og byggir á faglegum gæðaviðmiðum. Þá er vinna hafin við að móta sameiginlega nálgun að framtíðarfyrirkomulagi reksturs, þar á meðal fjármögnun þjónustunnar á grundvelli fjölda þjónustuþega. Fundað var þann 27. janúar 2026 með stjórnendum í velferðarþjónustu og Þroskahjálp á Vesturlandi. Farið var yfir stöðu mála, teikningar af húsnæðinu kynntar og lagðar til þær breytingar sem stjórnendur telja nauðsynlegt að ráðast í.



Næstu skref í verkefninu eru að fara í vettvangsferð í Holt með fulltrúum Þroskahjálpar, SSV, fulltrúa frá skipulagssviðum sveitarfélaga. Skoða aftur aðstæður m.a með tilliti til aðgengismála.
Velferðar- og fræðslunefnd lýsir yfir ánægju með þann framgang sem orðið hefur í verkefninu um uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi og fagnar því öfluga samstarfi sem hefur skapast milli sveitarfélaga á svæðinu og Þroskahjálpar á Vesturlandi. Verkefnið er talið mikilvægt skref í að efla og jafna aðgengi barna og fjölskyldna að nauðsynlegri þjónustu, óháð búsetu.

Þá leggur Velferðar- og fræðslunefnd ríka áherslu á áframhaldandi samvinnu sveitarfélaga á Vesturlandi, faglegan undirbúning og vandaða útfærslu þjónustunnar, með hagsmuni barna og fjölskyldna þeirra að leiðarljósi.

13.Móttökuáætlun fyrir íbúa af erlendum uppruna

2305016

Símenntun á Vesturlandi hefur að beiðni Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, unnið að gerð almennrar móttökuáætlunar fyrir fólk af erlendum uppruna.



Móttökuáætlunin er hugsuð sem rammi sem sveitarfélög geta nýtt sér og aðlagað að sínum aðstæðum og þörfum.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 17:30.

Efni síðunnar