Menningar- og markaðsnefnd
Dagskrá
1.Hvalfjarðardagar 2026
2511038
Verkefnastjórar Hvalfjarðardaga 2025, Valdimar Ingi Brynjarsson og Hjörvar Gunnarsson komu undir þessum lið. Nefndin þakkar þeim fyrir komuna á fundinn.
Hvalfjarðardagar fara fram þriðju helgina í ágúst, 14 til 16 ágúst 2026. Umræður um skipulag og framkvæmd Hvalfjarðardaga 2026 fóru fram.
Velferðar- og fræðsludeild falið að vinna málið áfram.
Hvalfjarðardagar fara fram þriðju helgina í ágúst, 14 til 16 ágúst 2026. Umræður um skipulag og framkvæmd Hvalfjarðardaga 2026 fóru fram.
Velferðar- og fræðsludeild falið að vinna málið áfram.
2.Þjóðhátíðardagur - 17 júní 2026
2601020
Menningar- og markaðsnefnd leggur til við sveitarstjórn að gengið verði til samnings við Tónlistarfélag Hvalfjarðarsveitar um skipulagningu og framkvæmd hátíðarhaldanna á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2026.
3.Markaðs- og kynningarátak í Hvalfjarðarsveit
1905042
Umræður fóru fram um samfélagsmiðlaherferð. Verkefnastjóra Velferðar- og fræðsludeildar falið að vinna málið áfram.
4.Viðburðir í Hvalfjarðarsveit 2026.
2601038
Skógræktarfélag Skilmannahrepps hefur tekið að sér að skipuleggja og halda utan um páskaeggjaleit í Álfholtsskógi páskana 2026 líkt og farið hefur fram síðustu ár.
Fundi slitið - kl. 18:20.
Anna Guðrún Alexandersdóttir, verkefnastjóri Velferðar- og fræðsludeildar sat fundinn.