Fara í efni

Sveitarstjórn

448. fundur 13. ágúst 2026 kl. 15:00 - 15:50 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Haraldur Benediktsson oddviti
  • Guðrún Sigríður Gísladóttir aðalmaður
  • Guðbjartur Þór Stefánsson aðalmaður
  • Einar Þórarinsson aðalmaður
  • Brynhildur Stefánsdóttir aðalmaður
  • Þóra Margrét Júlíusdóttir aðalmaður
  • Baldur Þór Ketilsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Björn Bjarki Þorsteinsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri
Dagskrá

1.Sveitarstjórn - 447

2606010F

Fundargerðin framlögð.

2.Menningar- og markaðsnefnd - 67

2607003F

Fundargerðin framlögð.
Til máls tók: BS
  • Menningar- og markaðsnefnd - 67 Ferðaþjónusta í Hvalfjarðarsveit hefur vaxið á undanförnum árum og innan sveitarfélagsins starfa fjölmargir aðilar sem bjóða upp á fjölbreytta þjónustu. Mikilvægt er að skapa vettvang fyrir samtal, samstarf og upplýsingamiðlun milli þessara aðila.

    Menningar- og markaðsnefnd leggur því til við sveitarstjórn að sveitarfélagið hafi frumkvæði að því að kalla saman fulltrúa ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit til fundar með það að markmiði að efla samtal, samráð og mótun sameiginlegrar framtíðarsýnar fyrir ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

    "Sveitarstjórn samþykkir tillögu menningar- og markaðsnefndar að sveitarfélagið hafi frumkvæði að því að kalla saman fulltrúa ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit til fundar með það að markmiði að efla samtal, samráð og mótun sameiginlegrar framtíðarsýnar fyrir ferðaþjónustu í sveitarfélaginu."

    Tillagan var samþykkt með 7 atkvæðum.

    Til máls tóku: ÞMJ og HB

3.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 65

2607002F

Fundargerðin framlögð.
Til máls tók: EÞ
  • 3.2 2607009 Fjallskil 2026
    Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 65 A.Núparétt
    Leitarsvæðið nær yfir Leirár- og Melasveit og Svínadal norðan Laxár inn að mörkum Hlíðarfótar og Eyrar.
    Leitardagur er á laugardegi fyrir rétt.
    Fyrri Núparétt er sunnudaginn 13. september kl. 13 og seinni rétt laugardaginn 26. september þegar smölun lýkur.
    Leitarstjórar eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.
    Réttarstjóri er Baldvin Björnsson. Marklýsingamenn eru Helgi Bergþórsson og Atli Viðar Halldórsson.
    Skilamenn í Hornsrétt eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.

    B. Reynisrétt
    Leitarsvæðið nær yfir Skilmannahrepp allan, Innri-Akraneshrepp og Akraneskaupstað.
    Leitardagar skulu vera sömu daga og réttir eru, nema ef réttarstjóri og leitarstjóri ákveði annað.
    Fyrri Reynisrétt er laugardaginn 19. september þegar smölun lýkur og seinni rétt 26. september.
    Leitarstjóri er Sigurgeir Guðni Ólafsson.
    Réttarstjóri er Lilja Guðrún Eyþórsdóttir.
    Marklýsingamenn eru Ólafur Sigurgeirsson og Lilja Guðrún Eyþórsdóttir.

    C. Svarthamarsrétt
    Leitarsvæðið nær yfir Hvalfjarðarströnd, Svínadal allan sunnan Laxár og norðan Laxár að innanverðu allt að merkjum Eyrar og Hlíðarfótar og upprekstrarland Akraneskaupstaðar á Botnsheiði og land jarða í Skorradalshreppi sunnan Fitjaár allt að landi Litlu Drageyrar.
    Leitardagar eru föstudagur og laugardagur fyrir fyrri skilaréttir.
    Fyrri Svarthamarsrétt er sunnudaginn 20. september kl. 10 og seinni rétt sunnudaginn 4. október þegar smölun lýkur.
    Leitarstjóri er Guðmundur Sigurjónsson.
    Réttarstjóri er Arnheiður Hjörleifsdóttir.
    Marklýsingamenn eru Guðmundur Sigurjónsson og Jón Ottesen.
    Skilamenn í Oddstaðarétt eru Stefán Gunnar Ármannsson og Guðbjartur Þór Stefánsson.

    Lagt er til að við réttir í sveitarfélaginu verði kaffiveitingar að höfðu samráði við réttarstjóra og kvenfélagið Lilju.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og skipan í hlutverk að því undanskildu að í stað Jóns Ottesen sem merkjalýsingamanns í Svarthamarsrétt komi Sigurður Laxdal, jafnframt samþykkir sveitarstjórn tillögu nefndarinnar að fjallskilaseðli Hvalfjarðarsveitar árið 2026:

    A.Núparétt - Leitarsvæðið nær yfir Leirár- og Melasveit og Svínadal norðan Laxár inn að mörkum Hlíðarfótar og Eyrar. Leitardagur er á laugardegi fyrir rétt. Fyrri Núparétt er sunnudaginn 13. september kl. 13 og seinni rétt laugardaginn 26. september þegar smölun lýkur.
    Leitarstjórar eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.
    Réttarstjóri er Baldvin Björnsson.
    Marklýsingamenn eru Helgi Bergþórsson og Atli Viðar Halldórsson.
    Skilamenn í Hornsrétt eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.

    B. Reynisrétt - Leitarsvæðið nær yfir Skilmannahrepp allan, Innri-Akraneshrepp og Akraneskaupstað. Leitardagar skulu vera sömu daga og réttir eru, nema ef réttarstjóri og leitarstjóri ákveði annað. Fyrri Reynisrétt er laugardaginn 19. september þegar smölun lýkur og seinni rétt 26. september.
    Leitarstjóri er Sigurgeir Guðni Ólafsson.
    Réttarstjóri er Lilja Guðrún Eyþórsdóttir.
    Marklýsingamenn eru Ólafur Sigurgeirsson og Lilja Guðrún Eyþórsdóttir.

    C. Svarthamarsrétt - Leitarsvæðið nær yfir Hvalfjarðarströnd, Svínadal allan sunnan Laxár og norðan Laxár að innanverðu allt að merkjum Eyrar og Hlíðarfótar og upprekstrarland Akraneskaupstaðar á Botnsheiði og land jarða í Skorradalshreppi sunnan Fitjaár allt að landi Litlu Drageyrar. Leitardagar eru föstudagur og laugardagur fyrir fyrri skilaréttir. Fyrri Svarthamarsrétt er sunnudaginn 20. september kl. 10 og seinni rétt sunnudaginn 4. október þegar smölun lýkur.
    Leitarstjóri er Guðmundur Sigurjónsson.
    Réttarstjóri er Arnheiður Hjörleifsdóttir.
    Marklýsingamenn eru Guðmundur Sigurjónsson og Sigurður Laxdal.
    Skilamenn í Oddstaðarétt eru Stefán Gunnar Ármannsson og Guðbjartur Þór Stefánsson.

    Lagt er til að við réttir í sveitarfélaginu verði kaffiveitingar að höfðu samráði við réttarstjóra og kvenfélagið Lilju."

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 65 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að deiliskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að deiliskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 65 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir breytingu á skilmálum Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Landbúnaðarland-L3 og leggur til að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til afgreiðslu skv. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir breytingu á skilmálum Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Landbúnaðarland-L3 og að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til afgreiðslu skv. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 65 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir skilmálabreytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Skógræktar- og landgræðslusvæði og leggur til að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til afgreiðslu skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Samþykkt með 3 atkvæðum, 1 sat hjá (ÞMJ) og 1 á móti (EÞ)




    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir skilmálabreytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Skógræktar- og landgræðslusvæði og að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til afgreiðslu skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Tveir sátu hjá (ÞMJ og BÞK) og einn á móti (EÞ)

    Til máls tóku: EÞ og ÞMJ

    Einar Þórarinsson (EÞ) lagði fram eftirfarandi bókun:
    "Ég tel að markmiðum sveitarfélagsins um yfirsýn yfir skógrækt hefði mátt ná með vægari úrræðum en að binda leyfisskyldu við 3 ha, og að ekki liggi fyrir staðbundin gögn sem sýni þörf á svo íþyngjandi skilmálum eins og hér um ræðir. Ég vil einnig hvetja til þess að skilmálar um skógræktar- og landgræðslusvæði verði meðal þeirra atriða sem höfð verði til skoðunar þegar sveitarstjórn metur, sbr. 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, hvort og hvenær endurskoða eigi núgildandi aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar á kjörtímabilinu."
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 65 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti merkjalýsingu fyrir Narfastaðaland 2 no.6 og þær breytingar sem í henni felast.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir merkjalýsinguna Narfastaðaland 2 no. 6 og þær breytingar sem í henni felast.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Beiðni um niðurfellingu á leigu af félagsheimilinu Miðgarði

2608001

Erindi frá Menningar- og markaðsnefnd varðandi beiðni um niðurfellingu á leigu af félagsheimilinu Miðgarði.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Verkefnastjóra Hvalfjarðardaga endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði fimmtudaginn 13. ágúst nk. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til menningarmála."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Heiti á póstnúmeri.

2608004

Rætt um heiti á póstnúmerinu 301, framlagt minnisblað/tillaga sem sveitarstjóri hefur tekið saman.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela sveitarstjóra að senda Byggðastofnun formlegt erindi þar sem óskað er eftir því að ritun póstnúmers 301 verði breytt úr „301 Akranes“ í „301 Hvalfjarðarsveit“.
Sveitarstjórn telur að heitið Hvalfjarðarsveit endurspegli með réttari hætti landfræðilega og stjórnsýslulega staðsetningu íbúa, fasteigna, fyrirtækja og stofnana innan sveitarfélagsins sem bera póstnúmerið 301.
Sveitarstjórn vísar sérstaklega til þess að Byggðastofnun hefur sjálf í opinberri svæðaskiptingu auðkennt Akranes með póstnúmerinu 300 og Hvalfjarðarsveit með póstnúmerinu 301.
Jafnframt er vísað til ákvörðunar Byggðastofnunar nr. Á-2/2024 þar sem ritun póstnúmers 276 var breytt úr „276 Mosfellsbær“ í „276 Kjós“.
Ekki er óskað eftir breytingu á póstnúmerinu 301 sjálfu eða breytingu á fyrirkomulagi póstþjónustu.
Sveitarstjóra er jafnframt falið að afla nákvæmra upplýsinga úr fasteignaskrá HMS og Fyrirtækjaskrá um fjölda fasteigna, landeigna og lögaðila innan Hvalfjarðarsveitar sem bera póstnúmerið 301 og láta þær upplýsingar fylgja formlegu erindi sveitarfélagsins."

Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.

Til máls tóku: BÞ, BS, GSG og HB

6.Tímasetningar sveitarstjórnarfunda á næstunni.

2608005

Rætt um tímasetningar sveitarstjórnafunda á næstunni.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjaraðrsveitar samþykkir að næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar, nr. 449, verði haldinn föstudaginn 4. september kl. 16:30.

Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Katanesvegur, Grundartanga- aðalskipulagsbreyting.

2504025

Á 64. fundi sínum þann 2.7.2026 samþykkti Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd fyrir sitt leyti tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna Katanesvegar á Grundartanga með áorðnum breytingum og lagði til að tillagan yrði send Skipulagstofnun til afgreiðslu skv. 3. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að undangenginni afgreiðslu sveitarstjórnar vegna málsins.



Sveitarstjórn fjallaði um aðalskipulagstillöguna og afgreiðslu USNL-nefndar á 447. fundi sínum þann 9.7.2026 og samþykkti sveitarstjórn breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna Katanesvegar á Grundartanga með áorðnum breytingum og tillögu USNL-nefndar að viðbrögðum við umsögnum/athugasemdum sem bárust á kynningartíma skv. 1. mgr. 32. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkti sveitarstjórn að tillagan yrði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagstofnun til afgreiðslu skv. 2. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Var tillagan samþykkt með 5 atkvæðum, 2 greiddu atkvæði gegn tillögunni.



Í kjölfar afgreiðslu USNL-nefnar og sveitarstjórnar var á vegum Umhverfis- og skipulagsdeildar gengið endanlega frá skipulagsgögnum aðalskipulagsbreytingarinnar, svarbréf gerð fyrir þá aðila sem sem gert höfðu athugasemdir eða ábendingar á auglýsingartíma tillögunnar, aflað uppfærslu á stafrænum gögnum ofl. Umrædd gögn voru svo í kjölfarið sett í Skipulagsgátt sbr. https://skipulagsgatt.is/issues/2025/925 ásamt öðrum þeim gögnum sem lögboðið er að skila þar inn.

Loks var málið afhent HMS til athugunar fyrir endanlega staðfestingu tillögunnar í B-deild Stjórnartíðinda sbr. 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010.



Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Fyrir sveitarstjórn hafa nú verið lögð fram endanleg gögn sem afhent hafa verið Húsnæðis- Mannvirkja- og Skipulagsstofnun (HMS), sbr. Skipulagsgátt og er hér lagt til að sveitarstjórn staðfesti fyrri bókun sína varðandi málið sbr. 447. fundur dags. 9.7.2026 þar sem sveitarstjórn samþykkti breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna Katanesvegar á Grundartanga til endanlegrar afgreiðslu skv. 2. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010."


Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum. Á móti eru 2 (ÞMJ og BÞK)

8.Samtök orkusveitarfélaga - kynning.

2607016

Framlagt erindi frá Samtökum orkusveitarfélaga þar sem vakin er athygli á samtökunum gagnvart nýkjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum.

Jafnframt er framlagt skjal frá Samtökum orkusveitarfélaga þar sem útlistaðar eru helstu áherslur Samtaka orkusveitarfélaga í samskiptum við ríkisvaldið um varðandi frumvarp og frumvarpsdrög gagnvart breytingum á fasteignamati og fasteignasköttum.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu að bókun:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar lýsir yfir eindregnum stuðningi við þau sjónarmið Samtaka orkusveitarfélaga að fyrirhugaðar breytingar á skattlagningu orkumannvirkja verði útfærðar þannig að þær styrki tekjustofna sveitarfélaga en leiði ekki til skerðingar þeirra með öðrum hætti.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar leggur sérstaka áherslu á að svokölluð hvalrekaákvæði megi ekki skerða þann ávinning sem sveitarfélögum er ætlaður með breytingunum, né heldur leiða til tvöfaldrar skerðingar tekna í samspili við Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Það væri í beinni andstöðu við markmið breytinganna ef nýjar fasteignaskatttekjur sveitarfélaga yrðu teknar til baka, að hluta eða öllu leyti, með öðrum ráðstöfunum ríkisins eða í gegnum jöfnunarkerfið.
Jafnframt tekur sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar skýrt fram að breytingar á fasteignaskattlagningu stóriðju eigi ekki að vera hluti af þessari umræðu. Sveitarstjórn leggst eindregið gegn því að afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og fasteignasköttum verði með nokkrum hætti tengt breytingum sem skerða fasteignaskatttekjur sveitarfélaga af stóriðju.
Um er að ræða tvö aðskilin mál. Afnám undanþágu orkumannvirkja á að styrkja sjálfstæða tekjustofna sveitarfélaga og tryggja nærsamfélögum sanngjarnan hlut af þeirri verðmætasköpun sem á sér stað innan þeirra marka. Slík réttarbót má ekki verða tilefni til þess að veikja aðra lögbundna og mikilvæga tekjustofna sveitarfélaga.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hvetur stjórnvöld því til að tryggja með skýrum hætti í áframhaldandi vinnu við málið að þessar grundvallarforsendur verði virtar."

Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.

Til máls tóku: HB og GSG

9.Grænbók - endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.

2607019

Framlagt erindi frá Innviðaráðuneytinu varðandi endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.
Framlagt til kynningar.

10.Hvatning til sveitarstjórnar um öflugt starf Öldungaráðs.

2607021

Framlagt erindi frá Landssambandi eldri borgara.
Framlagt til kynningar.

11.Aðalfundur Faxaflóahafna sf 2026.

2605021

Aðalfundargerð.
Framlögð fundargerð aðalfundar Faxaflóahafna.

12.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Faxaflóahafnir sf.

2602017

Fundargerðir 268. og 269. fundar.
Framlagðar til kynningar ofangreindar fundargerðir frá stjórn Faxaflóahafna.

Fundi slitið - kl. 15:50.

Efni síðunnar