Fara í efni

Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd

65. fundur 16. júlí 2026 kl. 16:30 - 18:57 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Bjarki Borgdal Magnússon formaður
  • Einar Þórarinsson varaformaður
  • Björgvin Helgason aðalmaður
  • Þóra Margrét Júlíusdóttir aðalmaður
  • Anton Teitur Ottesen Varamaður
Starfsmenn
  • Jökull Helgason embættismaður
  • Helga Harðardóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Jökull Helgason Deildarstjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar
Dagskrá

1.Erindisbréf Hvalfjarðarsveitar - USNL-nefnd

2206005

Lögð fram afgreiðsla frá 447.fundi Sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar, þar sem Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 19 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 2.371.145 kr. vegna fjölgunar á fundum umhverfis-, skipulags-, náttúrverndar- og landbúnaðarnefndar m.v. upphaflega áætlun.



Á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar koma fram upplýsingar um fundartíma ofl. en þar segir m.a.:

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd fundar 1. og 3. fimmtudag í mánuði.

Heimilt er að fella niður fund 1. fimmtudag í mánuði ef ástæða er til.

Erindi sem taka á fyrir á fundi Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar, þurfa að berast í síðasta lagi kl. 16:00, fimmtudaginn í vikunni fyrir fund. Erindindum sem vísa þarf til staðfestingar sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar, verða tekin fyrir á næsta fundi sveitarstjórnar þar á eftir.
Lagt fram til kynningar.

2.Fjallskil 2026

2607009

Lögð er fram tillaga að Fjallskilaseðli Hvalfjarðarsveitar árið 2026.
A.Núparétt
Leitarsvæðið nær yfir Leirár- og Melasveit og Svínadal norðan Laxár inn að mörkum Hlíðarfótar og Eyrar.
Leitardagur er á laugardegi fyrir rétt.
Fyrri Núparétt er sunnudaginn 13. september kl. 13 og seinni rétt laugardaginn 26. september þegar smölun lýkur.
Leitarstjórar eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.
Réttarstjóri er Baldvin Björnsson. Marklýsingamenn eru Helgi Bergþórsson og Atli Viðar Halldórsson.
Skilamenn í Hornsrétt eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.

B. Reynisrétt
Leitarsvæðið nær yfir Skilmannahrepp allan, Innri-Akraneshrepp og Akraneskaupstað.
Leitardagar skulu vera sömu daga og réttir eru, nema ef réttarstjóri og leitarstjóri ákveði annað.
Fyrri Reynisrétt er laugardaginn 19. september þegar smölun lýkur og seinni rétt 26. september.
Leitarstjóri er Sigurgeir Guðni Ólafsson.
Réttarstjóri er Lilja Guðrún Eyþórsdóttir.
Marklýsingamenn eru Ólafur Sigurgeirsson og Lilja Guðrún Eyþórsdóttir.

C. Svarthamarsrétt
Leitarsvæðið nær yfir Hvalfjarðarströnd, Svínadal allan sunnan Laxár og norðan Laxár að innanverðu allt að merkjum Eyrar og Hlíðarfótar og upprekstrarland Akraneskaupstaðar á Botnsheiði og land jarða í Skorradalshreppi sunnan Fitjaár allt að landi Litlu Drageyrar.
Leitardagar eru föstudagur og laugardagur fyrir fyrri skilaréttir.
Fyrri Svarthamarsrétt er sunnudaginn 20. september kl. 10 og seinni rétt sunnudaginn 4. október þegar smölun lýkur.
Leitarstjóri er Guðmundur Sigurjónsson.
Réttarstjóri er Arnheiður Hjörleifsdóttir.
Marklýsingamenn eru Guðmundur Sigurjónsson og Jón Ottesen.
Skilamenn í Oddstaðarétt eru Stefán Gunnar Ármannsson og Guðbjartur Þór Stefánsson.

Lagt er til að við réttir í sveitarfélaginu verði kaffiveitingar að höfðu samráði við réttarstjóra og kvenfélagið Lilju.

Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.

3.Frumathugun á skipulagi vegna leikskóla á Innnesi

2607011

Á 447. fundi sveiarstjórnar þann 9. júlí 2026 var samþykkt undir lið 3.3 að fela Umhverfis- og skipulagsdeild að hefja greiningarvinnu og frumathugun á skipulagi vegna leikskóla á Innnesi / við Krossland.
Lagt fram til kynningar og voru umræður um málið.
Umhverfis- og skipulagsdeild falið að vinnna að sviðsmyndum varðandi framtíðarsýn á svæðinu og að stefnt verði að því að tillögur liggi fyrir í október n.k.

4.Styrkvegasjóður Vegagerðarinnar.

2502017

Umsókn um fjárveitingu til styrkvega árið 2026 hefur verið tekin til umfjöllunar og samþykkti Vegagerðin að veita styrk til vegagerðar af liðnum Styrkvegir í vegaáætlun árið 2026 til verkefnanna Núparétt, Svarthamarsrétt, Reynisrétt og útivistarsvæðið Álfholtsskógi, að upphæð 3 milljónir króna. Ráðstöfun styrks þarf að fara fram á árinu 2026.
Umhverfis- og skipulagsdeild falið að vinna að ráðstöfun styrksins.

5.Litla-Botnsland Ferðaþjónusta, L224375 - Deiliskipulag

2604021

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti tillögu að deiliskipulagi í landi Litla Botnslands 1, L224375, til auglýsingar á 442. fundi sínum þann 13.05.2026.

Áformuð er uppbygging á hóteli og tengdri ferðaþjónustu þar sem lögð er áhersla á náttúruupplifun og endurheimt vistkerfa.

Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 200 gesti, bæði á hóteli og í smærri gestahúsum, auk veitingareksturs, náttúruböðum og annarri tengdri þjónustu. Heildarstærð svæðisins er um 12,1 ha og heildar byggingarmagn undir ferðaþjónustu allt að 5.000 m2.

Skipulagssvæðið er innan C-hluta náttúruminjaskrár og jafnframt innan hverfisverndarsvæðis Botns í Hvalfirði samkvæmt Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Talsverð útbreiðsla birkitrjáa er innan svæðisins. Hönnun og skipulag uppbyggingarinnar tekur mið af náttúrulegu umhverfi þar sem leitast verður við að lágmarka rask á núverandi birkiskógi og stuðla að endurheimt hans og eflingu innan skipulagssvæðisins.

Skipulagið er í samræmi við aðalskipulag Hvalfjarðarveitar 2020-2032 með síðari breytingum, þar sem svæðið er skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði (VÞ20) en skipulagssvæðið var áður hluti af skilgreindri frístundabyggð í Botnsdal.

Svæðið er aðliggjandi m.a. Litla Botnslandi 2 L224376 og Botnskála 2 L224369 sem hvorutveggja eru frístundasvæði F40 skv. aðalskipulagi, og upprunajörðinni Litla Botni L133199. Botnsskáli L133298, VÞ4, er í nálægð við svæðið.

Samhliða gerð deiliskipulags er unnið að matstilkynningu til HMS, í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2024.



Kynningartími deiliskipulagstillögunnar í Skipulagsgátt var frá 22. maí - 3. júlí 2026.

Þann 3. júlí 2026 var frestur til athugasemda og umsagna framlengdur til 13. júlí 2026 vegna óska hagsmunaaðila um viðbótargögn.

Þann 07.07.2026 voru viðbótargögn sett inn í Skipulagsgátt sem sýna m.a. snið á skipulagssvæði.



11 umsagnir bárust á auglýsingatímanum frá eftirtöldum aðilum:

Náttúruverndarstofnun, Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni, Hákoni Zimsen f.h. landeigenda Stóra-Botns, Kristni Zimsen f.h. landeigenda Stóra-Botns, Náttúrufræðistofnun, Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, Kristjönu Björgu Sveinsdóttur, Helga Zimsen f.h. landeigenda Stóra-Botns, Jóhanni Haukssyni eiganda Litla Botnslands L186295 og Thorwald Westmaas stofnanda Hugarroar Hvalfjarðar ehf sem er eigandi Litla Botnslands 1, L224375.

Umsögn frá Landi og Skógum er í vinnslu.
Samantekt umsagna lögð fram og voru umræður um málið.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd felur Umhverfis- og skipulagsdeild að vinna áfram að málinu.

6.Narfabakki - Deiliskipulag.

2101108

Lögð fram breyting á deiliskipulagi fyrir Narfabakka.

Í gildi er deiliskipulag fyrir Narfabakka í Hvalfjarðarsveit sem tók gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þann 16. ágúst 2024.



Beiðni er um breytingu á uppdrætti og greinargerð skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Áform eru um uppsetningu vindmylla fyrir raforkuframleiðslu til eigin nota á jörðinni. Með breyttu skipulagi er skilmálum breytt, lóð nr. 5 er minnkuð og færð sunnar innan deiliskipulagsins og nýtt svæði fyrir vindmyllur afmarkað auk aðkomu að nýju svæði.

Breyting deiliskipulags er í samræmi við Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar þar sem raforkan er ætluð til staðbundinnar notkunar innan jarðar Narfabakka, sbr. heimildir um stakar framkvæmdir í kafla 2.3.4 í Aðalskipulagi Hvalfjarðasveitar 2020 - 2032.

Framkvæmdin sem breytingin nær til er ekki tilkynningaskyld til HMS í samræmi við lið 13.02 í viðauka 1 í lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 þar sem hún er ekki talin hafa umtalsverð umhverfisáhrif og raforkuframleiðslan undir viðmiðunarmörkum. Texta í kafla 3.1 er breytt auk þess sem nýjum kafla 3.6 er bætt við í greinargerð þar sem gerð er grein fyrir raforkuframleiðslu fyrir vindmyllur.



Innan deiliskipulagssvæðisins fjölgar lóðum úr 13 í 14, innan landbúnaðarlands er skv. deiliskipulaginu 7 lóðir, m.a. til garðræktar og breytast skilmálar í deiliskipulagstillögu á þann veg að innan landbúnaðarlands verði allt að 8 lóðir, m.a. til garðræktar og framleiðslu raforku.



Nánari skilmálar deiliskipulagstillögunnar eru m.a.:

Heimil verður uppsetning vindmylla til staðbundinnar notkunar innan jarðarinnar Narfabakka, samtals allt að 200 kW uppsett afl, sbr. heimildir um stakar framkvæmdir í kafla 2.3.4 í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020?2032. Vindmyllur skulu staðsettar innan lóðar 7, sem afmörkuð er sérstaklega fyrir vindmyllur á uppdrætti. Uppsetning vindmylla verður í samræmi við gildandi aðalskipulag sem heimilar hámarkshæð vindmyllu allt að 25 m miðað við spaða í hæstu stöðu. Fjöldi, stærð og endanleg staðsetning vindmylla ákvarðast við útgáfu framkvæmdaleyfis hverju sinni, að teknu tilliti til hljóðvistar, skuggaflökts og fjarlægðar frá landamerkjum, háspennulínum og vegum. Öryggissvæði vindmylla er 1,5 x hæð þeirra og verður alfarið innan lóðar 7. Vindmyllur skulu ekki staðsettar nær öðrum mannvirkjum en sem nemur fjórfaldri hæð þeirra miðað við spaða í hæstu stöðu.

Lóð nr. 5 er minnkuð til vesturs og færð sunnar innan deiliskipulagsins og nýtt svæði fyrir vindmyllur sem skilgreint verður sem lóð 7 er afmarkað vestan við lóð 5 auk aðkomu að lóðinni.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að deiliskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

7.Hafnarskógar 81 - Umsókn um óverulega deiliskipulagsbreytingu

2602006

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags frístundabyggðar í landi Hafnar II, lóð nr. 81 sem fjallað var um á 62. fundi USNL-nefndar þann 29.04.2026, þar sem brugðist hefur verið við athugasemdum landeigenda sbr. bókun af 62.fundi USNL-nefndar þann 29.04.2026.



Breyting deiliskipulagsins felur í sér breytingu á skipulagsuppdrætti og byggingarskilmálum. Breytingin er í samræmi við Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Í gildi er deiliskipulag í landi Hafnar II nr. 877/2008 í B-deild stjórnartíðinda, en síðan þá hafa verið gerðar tvær breytingar árin 2014 og 2011. Umsóknin tekur til færslu á lóð nr. 81 og byggingarreit hennar til suð vesturs, breyttrar mænisstefnu, breytts þakhalla í 0-45°. Lagður er fram uppdráttur með lýsingu á breytingum.



Í gildi er deiliskipulag í landi Hafnar II, með síðari breytingum. Breytingin nú er í samræmi við Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.



Umsókn um fyrirhugaða óverulega deiliskipulagsbreytingu barst upphaflega 02.02.2026.

Á 59. fundi USNL-nefndar þann 18.02.2026 var fjallað um málið en afgreiðslu málsins frestað og Umhverfis- og skipulagsdeild falið að afla ferkari upplýsinga.



Á 60. fundi USNL-nefndar þann 18.03.2026 voru lögð fram uppfærð gögn og var fjallað um málið að nýju og samþykkti nefndin að um væri að ræða óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Höfn II, enda viki tillagan að mati nefndarinnar að óverulegu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis. Samþykkti nefndin að láta fara fram grenndarkynningu meðal aðliggjandi lóðarhafa og landeiganda þ.e. Hafnarskógar 85 L225236, Hafnarskógar 83 L223568, Hafnarskógar 77 L224565, Hafnarskógar 79 L227597, Hafnarskógar 71 L227596, Hafnarskógar 75 L221362, Hafnarskógar 73 L221361, Hafnarskógar 69 og Höfn II L190371. Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti bókun nefndarinnar á 439. fundi sínum þann 25.03.2026.



Aftur fjallaði USNL-nefnd um tillöguna á 62.fundi sínum þann 29.04.2026. Þá var lokið við að grenndarkynna, sem var í Skipulagsgátt frá 30. mars - 27. apríl og bárust 2 athugasemdir frá landeigendum Hafnar II. Í niðurstöðu / bókun nefndarinnar kom fram að Umhverfis- og skipulagsdeild hafi rætt við landeigendur og farið yfir þær athugasemdir sem þeir gera við breytingartillöguna. Í ljósi athugasemda þeirra telji USNL-nefnd sér ekki fært um að samþykkja tillöguna til staðfestingar í B-deild Stjórnartíðinda og felur Umhverfis- og skipulagsdeild að ræða við lóðarhafa. Afgreiðslu málsins var því frestað.



Umhverfis- og skipulagsdeild fór í vettvangsskoðun á svæðið og skv. henni er gámur á svæðinu sem hefur verið settur niður við heimtröð hússins, ekki er að sjá að það hafi verið steypt undir hann eða hann jarðfestur á einhvern annan hátt fyrir utan grjót- og torfhleðslu á þremur hliðum gámsins. Ekki er gerð grein fyrir þessu í deiliskipulagi svæðisins.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd felur Umhverfis- og skipulagsdeild að vinna áfram að málinu. Afgreiðslu málsins frestað.

8.Endurskoðun aðalskipulags - Skilmálabreytingar / L3 landbúnaðarland

2206043

Hvalfjarðarsveit vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin tekur til landbúnaðarsvæða (L), með áherslu á svæði í flokki L3. Markmiðið er að skýra nýtingu innan L3 svæða með því að stofna fleiri flokka með nákvæmari skilgreiningum um uppbyggingarheimildir, sem taka mið af aðstæðum á hverjum stað fyrir sig.

Með breytingunni er gerð uppfærsla á almennum skilmálum og uppdrætti aðalskipulags, þar sem L3 svæði verða flokkuð sem L3-L6. Þá verður heimiluð landgræðsla og skógrækt undir 10 ha, þar á meðal skjólbeltarækt, á landbúnaðarlandi.

Sameiginleg skipulagslýsing vegna breytinga á almennum skilmálum frístundabyggðar, landbúnaðarsvæða, skógræktar- og landgræðslusvæða og varúðar og þynningarsvæðis var auglýst 02.10.2025-23.10.25 á skipulagsgátt.



Kynningartími í Skipulagsgátt var frá 22. maí - 3. júlí 2026 og bárust 5 umsagnir / athugasemdir.

Frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands dags. 11.06.2026, Náttúruverndarstofnun dags. 26.06.2026, Minjastofnun Íslands 29.06.2026, Náttúrufræðistofnun dags. 01.07.2026 og Akraneskaupstaður dags. 02.07.2026 gera ekki athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar.



Nánar tiltekið og samandregið felst eftirfarandi í skilmálabreytingunni fyrir landbúnaðarland L3:



Landbúnaðarland er í núverandi aðalskipulagi skilgreint sem L1, L2 og L3 þar sem L3 er víkjandi landnotkunarflokkur vegna íbúðaruppbyggingar og atvinnuuppbyggingar.

Svæðin sem um ræðir eru nágrenni Krosslands, Lambhagaland og nágrenni, Heiðarskóli og nágrenni, Narfabakki úr landi Narfastaða.

Landnotkunarflokkurinn L3 er þannig í núverandi aðalskipulagi skilgreindur sameiginlega fyrir fjögur ólík svæði, þar sem lóðarstærðir eru að lágmarki 2.500 m2 og hámarks byggingarmagn 5.000 m2.

Núverandi skilmálar varða 146 ha lands og þykja of almennir fyrir ólík svæði.

Í breytingunum felst að svæðunum 4 er nú skipt upp í tvö ólík svæði.

Í nágrenni Heiðarskóla og á Narfabakka, gilda áfram sömu stærðir, lóð að lágmarki 2.500 m2 að stærð og hámarks byggingarmagn 5.000 m2.

Í nágrenni Krosslands og Lambhagalands gildir hér eftir að lóðir mega að lágmarki vera 1.000 m2 og hámarks byggingarmagn skemmu 500 m2.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir breytingu á skilmálum Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Landbúnaðarland-L3 og leggur til að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til afgreiðslu skv. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

9.Endurskoðun aðalskipulags - Skilmálabreytingar / Skógræktar- og landgræðslusvæði

2206043

Hvalfjarðarsveit vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin nær til almenna skilmála um skógræktar- og landgræðslusvæði (SL). Með breytingunni verða sett fram skýrari ákvæði um ný skógræktar- og landgræðslusvæði með það markmið að veita sveitarfélaginu betri yfirsýn og stjórn á skógrækt innan sveitarfélagsins.

Sameiginleg skipulagslýsing vegna breytinga á almennum skilmálum frístundabyggðar, landbúnaðarsvæða, skógræktar- og landgræðslusvæða og varúðar og þynningarsvæðis var auglýst 02.10.2025-23.10.25 á skipulagsgátt. Aðalskipulagsbreytingum er skipt upp eftir landnotkunarflokkum og verða kynntar fjórar aðskildar breytingar. Eingöngu er gerð breyting á almennum skilmálum greinargerðar.

Kynningartími var frá 22. maí - 3. júlí 2026 og bárust 8 umsagnir / athugasemdir.



Frá Mílu dags. 09.06.2026, Náttúruverndarstofnun dags. 26.06.2026, Minjastofnun Íslands 29.06.2026, Vegagerðinni dags. 02.07.2026, Náttúrufræðistofnun dags. 03.07.2026, Axel Helgasyni dags. 03.07.2026, Landi og Skógi dags. 03.07.2026.



Nánar tiltekið og samandregið felst eftirfarandi í skilmálabreytingunni fyrir Skógræktar- og Landgræðslusvæði:



Verið að gera skýrari ákvæði um ný skógræktarsvæði, hvar skógrækt sé æskileg og undir hvaða kringumstæðum.

Skilgreina markmið fyrir skógrækt, meta jarðveg, vistkerfi, vatn, fornminjar, landslag osfrv.

Stærri verkefni þurfi framkvæmdaleyfi og ræktunaráætlanir.

Í umsögnum umsagnaraðila hefur verið kallað eftir skýrari markmiðum.

Í núverandi aðalskipulagi gildir að ef fer yfir 10 hektara skógrækt þarf að skilgreina skógræktar- og landgræðslusvæði í aðalskipulagi.

Í breytingunum felst m.a. að auk aðalskipulagsbreytinganna umfram 10 ha, þarf einnig að vinna ræktunaráætlun og skýra út markmiðin með skógrækt t.d. kolefnisbinding, útivistarskógur.

Auk þess er skilgreint að framkvæmdaleyfi þurfi umfram 3 ha.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir skilmálabreytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Skógræktar- og landgræðslusvæði og leggur til að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til afgreiðslu skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Samþykkt með 3 atkvæðum, 1 sat hjá (ÞMJ) og 1 á móti (EÞ)




10.Þórisstaðir; L133217 og Þórisstaðir 2, L 233003-Deiliskipulag

2604022

Lögð fram uppfærð gögn vegna deiliskipulags fyrir Þórisstaði þar sem búið er að taka út umfjöllun um gistingu í flokki II í samræmi við bókun sveitarstjórnar.



Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar fjallaði um tillögu að deiliskipulagi fyrir Þórisstaði L133217 og Þórisstaði 2, L 233003 á 447. fundi sínum þann 9.7.2026.



Eftirfarandi var afgreiðsla sveitarstjórnar:



Inngangur:

Lögð var fram tillaga að deiliskipulagi vegna frístundabyggðar og smávirkjunar í landi Þórisstaða á 62. fundi nefndarinnar þann 29.04.2026. Lagt var fram nýtt deiliskipulag sem nær til 84 ha svæðis fyrir frístundabyggð og smávirkjun að Þórisstöðum II og Þórisstöðum, Hvalfjarðarsveit. Svæðið er skilgreint sem frístundabyggð F52 og landbúnaðarland í flokki ll í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Aðkoma að svæðinu er frá Dragavegi (520). Afmörkun svæðisins nær til frístundabyggðarinnar og legu fallpípu smávirkjunar milli stöðvarhúss, inntaks og miðlínu árfarvegar. Lóðirnar að Þórisstöðum II skiptast í tvö svæði. Vestari hlutinn er nefndur Kúhalli og eystri hlutinn Hjallholt. Skv. skipulaginu er m.a. fjallað um virkjun Kúhallarár, frístundabyggð og skógrækt vegna 78 lóða, atvinnurekstur/útleigu- eða gististarfsemi ofl. Fram kemur að gert sé ráð fyrir undanþáguheimildum frá fjarlægðarreglum þjóðvega og gert ráð fyrir að sleppa skipulagslýsingu. Á fundi USNL-nefndar 16. júní s.l. var bókað m.a.: Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd fór yfir framlögð gögn og voru umræður um málið. Í ljósi þess að hér er um umfangsmikið svæði að ræða þar sem saman fer margskonar starfsemi, samþykkir nefndin að fela Umhverfis- og skipulagsdeild að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum með það að markmiði að hægt verði að fjalla aftur um málið að lokinni þeirri yfirferð. Afgreiðslu málsins frestað. Lögð fram tillaga Umhverfis- og skipulagsdeildar varðandi ábendingar um framsetningu deiliskipulagstillögunnar. Lögð eru fram uppfærð gögn til samræmis við ábendingar Umhverfis- og skipulagsdeildar.



Bókun/niðurstaða:

Til máls tók: EÞ, ÞMJ, GSG og HB. Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu: „Í ljósi þess að undirskriftir allra lóðarhafa liggja ekki fyrir um samþykki til gistingar í flokki II á öllu skipulagssvæðinu skv. ákvæði í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, staðfestir sveitarstjórn bókun USNL-nefndar varðandi málið. Lagt fram bréf til sveitarfélagsins frá málsaðila dags. 05.07.2026 þar sem þess er m.a. farið á leit að sveitarstjórn samþykki tillöguna með þeim breytingum að ákvæði um útleigu frístundahúsa í flokki II verði fellt úr deiliskipulaginu. Í ljósi erindis frá málsaðila og þess að USNL-nefnd fjallaði um deiliskipulagstillöguna á fundi sínum þann 02.07.2026 og gerði ekki aðrar athugasemdir en þær sem snéru að útleigu frístundahúsa á svæðinu, samþykkir sveitarstjórn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 1. mgr. 31. og 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn samþykkir að falla frá gerð lýsingar á skipulagsverkefninu þar sem allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi sbr. 3. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að falla frá ítarlegri kynningu tillögunnar, þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi sbr. 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn samþykkir uppfærslu tillögu með að fella út ákvæði um atvinnustarfsemi á svæðinu, gistingu í flokki II, og heimild til auglýsingar tillögunnar. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að tillagan verði lögð fram til samþykkis á næsta fundi Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar og í framhaldi þess fundar verði skipulagsfulltrúa heimilt að láta auglýsa tillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 án frekari umfjöllunar sveitarstjórnar." Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Í samræmi við afgreiðslu sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar þar sem samþykkt var að tillagan verði lögð fram til samþykkis á næsta fundi Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar og í framhaldi þess fundar verði skipulagsfulltrúa heimilt að láta auglýsa tillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 án frekari umfjöllunar sveitarstjórnar, staðfestir nefndin að hún geri fyrir sitt leyti ekki athugasemd við tillöguna.

11.Merkjalýsing - Narfastaðaland 2 no. 6 L203935 - Stofnun lóðar Sólarbrekka

2607014

Sótt er um stofnun nýrrar fasteignar/lóðar sem fær heitið Sólarbrekka, stærð 4.000 m2. Upprunalóðin Narfastaðaland 2 no. 6 L203935 er 28.778 m2 að stærð og verður 24.778 m2 eftir breytingu.

Stærð lóðarinnar skv. fasteignaskrá HMS er 2,9 ha.

Lóðin er á Landbúnaðarlandi L1 skv. Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og segir í skilmálum að heimilt sé að byggja upp í tengslum við núverandi bæjartorfur eða í jaðri svæða. Lóðarstærðir fara eftir umfangi framkvæmdar.

Ekkert deiliskipulag í gildi á svæðinu.



Með erindinu fylgja undirrituð gögn skv. lögum um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001 og reglugerð um merki fasteigna 160/2024.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti merkjalýsingu fyrir Narfastaðaland 2 no.6 og þær breytingar sem í henni felast.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

12.Önnur mál í USNL nefnd

1504031

Umræða um Kerfil og ágengar plöntur.

Í málaskrá Hvalfjarðarsveitar er málsnúmerið 1208019 - "Kerfill í Hvalfjarðarsveit" vegna umræðna um Skógarkerfil.

Á 14. fundi þáverandi Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefndar, dags. 20.08.2012 var fjallað um útbreiðslu Skógarkerfils vegna ábendingar frá íbúa um mögulega útbreiðslu hans.

Í árið 2025 barst sveitarfélaginu erindi þar sem bent var á að Kerfill væri í talsverðri útbreiðslu í Hvalfjarðarsveit frá þjóðveginum séð og örugglega víðar. Í erindinu var spurst fyrir um hvort möguleiki væri á að sveitarfélagið færi í átak við að slá Kerfilinn og kynna skaðsemi hans fyrir íbúum. Á 50. fundi Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar þann 2.7.2025 fjallaði nefndin um erindið og samþykkti að beina því til landeigenda að huga að slætti á Kerfli til að koma í veg fyrir útbreiðslu hans og að sett yrði almenn auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins þessu tengt.



Umræða um mál í kynningu í Skipulagsgátt.
Varðandi umræðu um Kerfil samþykkir nefndin að setja tilkynningu á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar með hvatningu til landeigenda, Vegagerðarinnar ofl., um að huga að útbreiðslu kerfilsins og reyna að hefta útbreiðslu hans.
USNL-nefnd leggur til við sveitarstjórn að verkið verði kostnaðarmetið og skoðað verði hvort hefta megi útbreiðslu hans með slætti á árinu 2026 en að öðrum kosti að vísa erindinu til vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs.

Rætt um að fela Umhverfis- og skipulagsdeild að rita minnisblað varðandi lóðamál á Grundartanga.

Rætt um skilmálabreytingar varðandi frístundabyggð sem nú er í kynningu í Skipulagsgátt.



Fundi slitið - kl. 18:57.

Efni síðunnar