Menningar- og markaðsnefnd
Dagskrá
1.Hvalfjarðardagar 2026
2511038
Hvalfjarðardagar verða haldnir 13. - 16. ágúst 2026.
Dagskrá Hvalfjarðardaga lögð fram til kynningar. Menningar- og markaðsnefnd lýsir yfir ánægju með fjölbreytta dagskrá og hvetur íbúa og gesti til að njóta þess sem boðið verður upp á.
2.Ljósmyndakeppni Hvalfjarðardaga 2026.
2607003
Þema keppninnar í ár er „Hvalfjarðarsveit - Allt milli himins og jarðar.“
Fyrirkomulag keppninar er með þeim hætti að þátttakendur senda ljósmyndir sínar á netfangið hvalfjardardagar@hvalfjardarsveit.is eigi síðar en 3. ágúst 2026. Dómnefnd, skipuð fulltrúum Menningar- og markaðsnefndar Hvalfjarðarsveitar, fer yfir innsendar myndir og velur tíu bestu myndirnar. Þær verða sýndar í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar á Hvalfjarðadögum, þar sem veitt verða verðlaun fyrir bestu myndina.

Menningar- og markaðsnefnd þakkar öllum þeim sem sendu inn myndir í ljósmyndasamkeppnina. Alls bárust 120 myndir frá 22 einstaklingum. Nefndin hefur valið tíu myndir sem þóttu skara fram úr. Verkefnastjóra velferðar- og fræðsludeildar er falið að sjá um prentun þessara tíu bestu mynda að mati dómnefndar. Þær myndir sem valdar voru verða til sýnis í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar á Hvalfjarðardögum.
Nefndin samþykkir að íbúar og gestir Hvalfjarðardaga velji vinningsmyndina með rafrænni kosningu. Verkefnastjóra velferðar- og fræðsludeildar er jafnframt falið að auglýsa fyrirkomulag kosningarinnar á heimasíðu sveitarfélagsins.

3.Viðburðir í Hvalfjarðarsveit 2026.
2601038
Umræður fóru fram um fyrirhugaða viðburði í Hvalfjarðarsveit.
Menningar- og markaðsnefnd samþykkir að farið verði í söguferð með Ívari Erni Benediktssyni.
Menningar- og markaðsnefnd samþykkir að Jólagleði á Vinavelli fari fram 13. desember. Jólagleðin verður auglýst þegar nær dregur. Verkefnastjóra velferðar- og fræðsludeildar er falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Farið var yfir undirbúning opnunarhátíðar Heiðarborgar, íþrótta- og samfélagsmiðstöðvar Hvalfjarðarsveitar, sem fram fer 3. október nk. Verkefnastjórar Hvalfjarðardaga, Valdimar Ingi Brynjarsson og Hjörvar Gunnarsson, munu hafa umsjón með viðburðinum í samstarfi við verkefnastjóra velferðar- og fræðsludeildar.

4.Markaðs- og kynningarátak í Hvalfjarðarsveit
1905042
Á fundi sveitarstjórnar þann 9. júlí 2026 var eftirfarandi samþykkt varðandi framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu aðkomuskiltis við Hvalfjarðargöng:
"Umsókn um leyfi fyrir frístandandi skilti samræmist reglum Hvalfjarðarsveitar um staðsetningu og útlit auglýsingaskilta, samþykktar 25. september 2024 og ákvæði 2.5.1. gr. í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Að mati sveitarstjórnar telst tillagan óveruleg þar sem hún hafi óverulegar breytingar á landnotkun í för með sér og er ekki líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði.
Sveitarstjórn samþykkir að láta grenndarkynna erindið fyrir landeiganda Kirkjubóls og Innra-Hólms og afla umsagnar eftir atvikum Umhverfis- og Orkustofnunar eða Náttúruverndarstofnunar, skv. 2. mgr. greinar 2.4.2 um samþykkt byggingaráforma í byggingarreglugerð nr. 112/2012 og skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jafnframt gerir sveitarstjórn ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi ef jákvæð niðurstaða grenndarkynningar liggur fyrir og með hliðsjón af umsögnum eftir atvikum Umhverfis- og Orkustofnunar eða Náttúruverndarstofnunar."

Farið var yfir stöðu mála er varðar aðkomuskilti við Hvalfjarðargöng. Verkefnastjóra velferðar- og fræðsludeildar falið að vinna málið áfram.
5.Menningarsjóður Hvalfjarðarsveitar.
1811033
Reglur um Menningarsjóð Hvalfjarðarsveitar og úthlutun styrkja
úr sjóðnum til menningarstarfsemi í Hvalfjarðarsveit voru samþykktar í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar 12. febrúar 2019.

Umræður fóru fram um endurskoðun á gildandi reglum. Tilgangur endurskoðunarinnar er að skýra reglurnar betur og breyta tímasetningum. Meginmarkmið sjóðsins á að haldast óbreytt. Verkefnastjóra velferðar- og fræðsludeildar falið að vinna málið áfram og leggja fram uppfærðar reglur á næsta fundi nefndarinnar.
6.Ferðaþjónusta í Hvalfjarðasveit.
2607010
Ferðaþjónusta í Hvalfjarðarsveit hefur vaxið á undanförnum árum og innan sveitarfélagsins starfa fjölmargir aðilar sem bjóða upp á fjölbreytta þjónustu. Mikilvægt er að skapa vettvang fyrir samtal, samstarf og upplýsingamiðlun milli þessara aðila.
Menningar- og markaðsnefnd leggur því til við sveitarstjórn að sveitarfélagið hafi frumkvæði að því að kalla saman fulltrúa ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit til fundar með það að markmiði að efla samtal, samráð og mótun sameiginlegrar framtíðarsýnar fyrir ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.

7.Leigusamningur-Félagsheimilið Hlaðir og tjaldsvæði að Hlöðum- Drög
1810047
Leigusamningur við Hernámssetrið ehf. á félagsheimilinu Hlaðir rennur út um áramót samkvæmt samningi.
Formaður greindi frá fundi sem hann, ásamt sveitastjóra, átti með leigutaka þann 8.júlí síðastliðinn. Nefndin ræddi hvernig nýta mætti félagsheimilið eftir að gildandi leigusamningur rennur út.
Menningar- og markaðsnefnd leggur til að haldin verði sameiginlegur fundur með Velferðar- og fræðslunefnd sem fer með málefni sundlaugarinnar að Hlöðum. Verkefnastjóra Velferðar- og fræðsludeildar er falið að fylgja því eftir.

8.Barnamenningarhátíð
2405029
Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem börn og ungmenni fá að njóta, skapa og taka þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Hátíðin fer fram í október 2026.
Minnisblað um möguleg verkefni/viðburði á Barnamenningarhátíð í Hvalfjarðarsveit lagt fram til kynningar. Verkefnastjóra velferðar- og fræðsludeildar falið að vinna málið áfram og senda síðan atriði og verkefni til stýrihóps Barnó, SSV.
9.Uppbyggingarsjóður Vesturlands.
2607004
Tilgangur Uppbyggingarsjóðs Vesturlands er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Markmið Uppbyggingarsjóðs er að styðja við verkefni sem efla þróttmikla byggð á Vesturlandi í samræmi við Sóknaráætlun Vesturlands. Uppbyggingarsjóðurinn er samkeppnissjóður. Auglýst er opinberlega eftir umsóknum og eru þær metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í samningi um Sóknaráætlun Vesturlands 2025-2029 og þeim áherslum sem eru í verklags- og úthlutanarreglum.
Opnað verður fyrir næstu umsóknir haustið 2026.
Finna má nánari upplýsingar um sjóðinn inn á ssv.is

Menningar- og markaðsnefnd hvetur áhugasama til að kynna sér Uppbyggingarsjóð Vesturlands og sækja um styrki til verkefna sem falla að markmiðum sjóðsins.
Fundi slitið - kl. 17:42.
Mál nr. 1810047. Leigusamningur-Félagsheimilið Hlaðir og tjaldsvæði að Hlöðum. Málið verður nr. 7 á dagskránni verði það samþykkt.
Samþykkt 3:0