Fara í efni

Sveitarstjórn

445. fundur 25. júní 2026 kl. 15:12 - 16:14 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Haraldur Benediktsson oddviti
  • Guðrún Sigríður Gísladóttir aðalmaður
  • Guðbjartur Þór Stefánsson aðalmaður
  • Einar Þórarinsson aðalmaður
  • Brynhildur Stefánsdóttir aðalmaður
  • Þóra Margrét Júlíusdóttir aðalmaður
  • Vignir Már Sigurjónsson Varamaður
Starfsmenn
  • Björn Bjarki Þorsteinsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Helga Harðardóttir verkefnastjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar
Dagskrá
Oddviti bauð fundarmenn velkomna og setti fund skv. fyrirliggjandi dagskrá auk þess að óska eftir, með vísan til c.liðar 16. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar, að bæta með afbrigðum eftirfarandi máli á dagskrá:

Mál nr. 2606022 - Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029. Málið verður nr. 6 á dagskránni verði það samþykkt.

Samþykkt 7:0

1.Sveitarstjórn - 444

2605007F

Fundargerðin framlögð.

2.Menningar- og markaðsnefnd - 66

2606002F

Fundargerðin framlögð.

Til máls tók BS.

3.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 63

2605008F

Fundargerðin framlögð.

Til máls tók EÞ.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 63 Deildarstjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar fór yfir erindisbréf nefndarinnar.
    Nefndin leggur til að halda fundi 1. og 3. fimmtudag í mánuði kl. 15:30 á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, frestur til að skila inn erindum til nefndarinnar er kl. 16 á fimmtudegi fyrir fund.
    Jafnframt leggur nefndin til að heimilt verði að fella niður fund 1. fimmtudag í mánuði ef ástæða er til.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn tekur jákvætt í það að fundartíðni nefndarinnar verði aukin, en í ljósi þess þá þarf að gera viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 og því er afgreiðslu þessa liðar frestað til næsta fundar sveitarstjórnar.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 63 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir nýtt leiksvæði í landi Kross með áorðnum breytingum þar sem komið verði til móts við óskir íbúa varðandi mildari lýsingu svæðisins.
    Umhverfis- og skipulagsdeild falið að svara framkomnum athugasemdum í samræmi við umræður á fundinum.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir nýtt leiksvæði í landi Kross."

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 63 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti merkjalýsingu fyrir stofnun lóða í Melahverfi við Urðarmel og þær breytingar sem í henni felast.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar "Sveitarstjórn samþykkir merkjalýsingu fyrir stofnun lóða í Melahverfi við Urðarmel og þær breytingar sem í henni felast."

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 63 Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 þar sem ábendingar sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar hafa eftir atvikum verið hafðar til hliðsjónar.
    Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Verður tillagan og forsendur hennar kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Verður tillagan og forsendur hennar kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum."

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 63 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og að hún verði kynnt og auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og að hún verði kynnt og auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 63 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Galtarlæk og leggur til að tillagan verði send Skipulagstofnun til afgreiðslu skv. 3. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

    ÁH var mótfallin hafnarframkvæmd og greiðir því atkvæði gegn tillögunni.
    ÞMJ sat hjá við afgreiðslu málsins.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Galtarlæk og leggur til að tillagan verði send Skipulagstofnun til afgreiðslu skv. 3. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum.
    Á móti ÞMJ og VMS.
    Til máls tók ÞMJ.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 63 Umhverfis-, skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóðinni Kúhalli 5, L133537, á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar sem framkvæmd var skv. 44. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóðinni Kúhalli 5, L133537, á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar sem framkvæmd var skv. 44. grein skipulagslaga nr. 123/2010."

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 63 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við vísindarannsókn Rastar og bendir á að rannsóknin er til þess fallin að auka þekkingu á straumi sjávar í Hvalfirði.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við fyrri hluta vísindarannsóknar Rastar, er snýr að litarefnisrannsókn og bendir á að rannsóknin er til þess fallin að auka þekkingu á straumi sjávar í Hvalfirði."

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.


    Til máls tóku ÞMJ, EÞ og VMS.

4.Velferðar- og fræðslunefnd - 12

2606005F

Fundargerðin framlögð.

Til máls tók GSG.
  • Velferðar- og fræðslunefnd - 12 Á 442. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðasveitar var samþykkt framlagt samkomulag frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um breytt fyrirkomulag vegna stækkunar á Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili. Frá því að málið var samþykkt hefur orðalag verið uppfært. Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærða viljayfirlýsingu og vísar erindinu til afgreiðslu sveitastjórnar.

    Valdís Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða kom og kynnti breytingar á fyrirhuguðum áformum um stækkun Höfða og breytingar á orðalagi í samkomulagi fyrir nefndinni og eru henni færða þakkir fyrir góða kynningu.

    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn samþykkir framlagða orðalagsbreytingu á samkomulagi við Félags- og húsnæðismálaráðuneytið um breytt fyrirkomulag vegna stækkunar á Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili."

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.

2505008

Viðauki nr. 18.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 18 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 1.500.000 kr. vegna iðkendastyrks til ÍA. Hækkunin felst í vísitöluhækkun og auknum fjölda iðkenda. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2027-2030.

2606022

Lögð er fram tíma- og verkáætlun fyrir fjárhagsáætlun ársins 2027 og forsendur áætlunargerðar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir tíma- og verkáætlun vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Til máls tók BBÞ.

7.Sumarleyfi sveitarstjórnar.

2606016

Erindi frá oddvita.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að sveitarstjórnarfundur sem vera ætti þann 23. júlí nk. falli niður vegna sumarleyfis sveitarstjórnar. Fyrsti fundur sveitarstjórnar að afloknu sumarleyfi verður haldinn þann 13. ágúst nk."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Kjör í fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að skv. 39. gr. samþykkta um stjórn Hvalfjarðarsveitar.

2605029

Kjör sameiginlegs varafulltrúa frá SSV í stjórn Faxaflóahafna sf. og Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar, en kosið er í stjórn Vatnsveitufélagsins til eins árs í senn í samræmi við ákvæði sameignarfélagssamnings. Framlögð tillaga um skipan fulltrúa í því ljósi að Helga Harðardóttir hefur óskað eftir að losna undan skipan sem aðalfulltrúi. Einnig er breyting á varamönnum Í lista í Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd og Velferðar- og fræðslunefnd.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Í stjórn Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar sf. verði aðalfulltrúi Jökull Helgason og varafulltrúi Björn Bjarki Þorsteinsson.

Sameiginlegur varafulltrúi frá Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð í stjórn Faxaflóahafna verði Hrafnhildur Tryggvadóttir.

Um skipan varmanna í Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd og Velferðar- og fræðslunefnd er lagt til að Vignir Már Sigurjónsson verði varamaður í USNL nefnd í stað Katrínar Rósar Sigvaldadóttur og Vignir Már verði einnig varamaður í Velferðar- og fræðslunefnd í stað Þóru Margrétar Júlíusdóttur.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Siðareglur kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum Hvalfjarðarsveitar.

2606020

Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum voru samþykktar af sveitarstjórn 24. ágúst 2022, í samræmi við 29. gr. sveitarstjórnarlaga. Nýjar sveitarstjórnir eiga meta hvort ástæða sé til endurskoðunar reglnanna. Ef ekki er talið að siðareglurnar þarfnist endurskoðunar halda þær gildi sínu, en tilkynna skal Innviðaráðuneyti um þá niðurstöðu.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir framlagðar siðareglur og staðfestir þær með undirritun sinni, reglunum vísað til nefnda á vegum Hvalfjarðarsveitar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

10.Starfsaðstæður kjörinna fulltrúa og nefndarfólks.

2606014

Rætt um starfsaðstæður kjörinna fulltrúa og nefndarfólks.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna stöðumat á milli funda og kynna tillögur til breytinga á næsta fundi sveitarstjórnar.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Til máls tóku BBÞ, VMS, BS og ÞMJ.

11.Ósk um endurgjaldslaus afnot af Miðgarði.

2606019

Erindi frá verkefnastjóra vegna Hvalfjarðardaga.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Verkefnastjóra Hvalfjarðardaga endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði sunnudaginn 16. ágúst nk. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til menningarmála."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

12.Gandheimar, L 133740 og Geldingaá, L 133739 - aðalskipulagsbreyting.

2504027

Erindi frá Birni Þ. Viktorssyni hrl. fh. málsaðila.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir að vísa erindinu til umfjöllunar í Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd. Sveitarstjóra er falið að funda með bréfritara.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

13.Aðalfundur SSV árið 2026.

2603004

Aðalfundarboð - auka aðalfundur.
Guðrún S. Gísladóttir situr fundinn skv. samþykkt á 444. fundi sveitarstjórnar.

14.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Samband íslenskra sveitarfélaga.

2602001

Fundargerðir 999. og 1000. fundar.
Fundargerðir framlagðar.

15.Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2026.

2603031

Aðalfundargerð.
Fundargerð framlögð.

Fundi slitið - kl. 16:14.

Efni síðunnar