Velferðar- og fræðslunefnd
Dagskrá
1.Kjör í fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að skv. 39. gr. samþykkta um stjórn Hvalfjarðarsveitar.
2605029
Kosning varaformanns og ritara nefndar.
a) Varaformaður
Lögð fram tillaga um Andreu Ýr Arnarsdóttur sem varaformann nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
b) Ritari
Lögð fram tillaga um Arneyju Þyrí Guðjónsdóttur sem ritara nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
Lögð fram tillaga um Andreu Ýr Arnarsdóttur sem varaformann nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
b) Ritari
Lögð fram tillaga um Arneyju Þyrí Guðjónsdóttur sem ritara nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
2.Ákvörðun um fastan fundartíma Velferðar- og fræðslunefndar
2606013
Samþykkt samhljóða að fastur fundartími nefndarinnar verði 3. þriðjudagur hvers mánaðar kl. 15:30
3.Samkomulag um breytt fyrirkomulag vegna stækkunar á hjúkrunarheimilinu Höfða.
2605013
Drög að samkomulagi um breytt fyrirkomulag vegna stækkunar á hjúkrunarheimilinu Höfða milli Hvalfjarðarsveitar, Akraneskaupstaðar og félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Á 442. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðasveitar var samþykkt framlagt samkomulag frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um breytt fyrirkomulag vegna stækkunar á Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili. Frá því að málið var samþykkt hefur orðalag verið uppfært. Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærða viljayfirlýsingu og vísar erindinu til afgreiðslu sveitastjórnar.
Valdís Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða kom og kynnti breytingar á fyrirhuguðum áformum um stækkun Höfða og breytingar á orðalagi í samkomulagi fyrir nefndinni og eru henni færða þakkir fyrir góða kynningu.

4.Skólanámskrá leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveit
2603005
Seinni hluti Skólanámskrár grunnskóla í Hvalfjarðarsveit kynntur.
Fyrri hluti skólanámskrár er sameiginlegur fyrir Skýjaborg og Heiðarskóla og var hann samþykktur á 9. fundi Velferðar- og fræðslunefndar.
Fyrri hluti skólanámskrár er sameiginlegur fyrir Skýjaborg og Heiðarskóla og var hann samþykktur á 9. fundi Velferðar- og fræðslunefndar.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir seinni hluta skólanámskrár Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit. Velferðar- og fræðslunefnd þakkar skólastjórnendum og öðru starfsfólki fyrir fagmennsku, skýra og vandaða vinnu við endurnýjun á skólanámskrá.
5.Erindisbréf Hvalfjarðarsveitar.
2206005
Kynning á Erindisbréfi Velferðar- og fræðslunefndar
Lagt fram til kynningar.
6.Fundargerðir Ungmennaráðs
2310003
Lagt fram til kynningar.
7.Kynning á Velferðar- og fræðslumálum
2606017
Kynning á verkefnum og starfsemi Velferðar- og fræðsludeildar, Heiðarskóla og Skýjaborgar.
Starfsfólk Velferðar- og fræðsludeildar, skólastjóri Heiðarskóla og leikskólastjóri Skýjaborgar kynntu starfsemi sína og verkefni fyrir nýrri nefnd. Nefndin þakkar fyrir greinagóðar og gagnlegar kynningar.
Fundi slitið - kl. 20:03.
Leik- og grunnskólastjórar sátu undir lið nr. 4 og 7.