Vorhreinsun 2026 - 15.-25. maí nk
Árleg vorhreinsun í Hvalfjarðarsveit verður samkvæmt neðangreindu og eru íbúar og frístundahúsaeigendur hvattir til að taka til hjá sér fyrir sumarið. Almennt hefur vor- og sumartiltekt gengið vel og mælst vel fyrir og fólk hefur verið duglegt að nýta sér þessa þjónustu og vonumst við til að svo verði áfram.
Á tímabilinu frá 15. maí til og með 25. maí verða gámar staðsettir í Melahverfi, Hlíðarbæ og á Innnesi.
Eftirfarandi gámar verða til staðar:
- Gámur fyrir timbur.
- Gámur fyrir járn og dekk.
- Gámur fyrir gróðurúrgang.
- Gámur fyrir almennan (óflokkaðan) úrgang til urðunar / *Óheimilt er að setja spilliefni, raftæki, rúmdýnur o.þ.h.
Frá 1. júní – 31. ágúst gefst íbúum í dreifbýli kostur á að fá tvær gerðir af gámum til afnota í tvo sólarhringa.
Eftirfarandi gámar eru í boði, og þá þarf að panta með að minnsta kosti tveggja daga fyrirvara:
- Gámur fyrir timbur.
- Gámur fyrir járn og dekk.
- Gámur fyrir gróðurúrgang.
- Gámur fyrir almennan (óflokkaðan) úrgang til urðunar / *Óheimilt er að setja spilliefni, raftæki, rúmdýnur o.þ.h.
Tímabil hreinsunarátaks í frístundabyggðum er frá 1. júní til 31. ágúst ár hvert og eru gámar í boði í 11 daga samfellt innan tímabilsins og getur forsvarsfólk frístundahverfa ákveðið tímasetningu í samráði við sveitarfélagið.
Eftirfarandi gámar eru í boði, og þá þarf að panta með a.m.k. viku fyrirvara:
- Gámur fyrir timbur.
- Gámur fyrir járn.
- Gámur fyrir gróðurúrgang.
Allar pantanir þurfa að berast til Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða með tölvupósti á netfangið www. hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is.
Lögð er áhersla á að aðilar kynni sér reglur áður en sótt er um gáma en þær má sjá hér á á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is.
Spilliefna- og raftækjabíll
Spilliefni og raftæki verða sótt að heimilum 22. maí nk.
Þjónustan er gjaldfrjáls og eru íbúar hvattir til að nýta sér hana.
Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu verða að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 433-8500 eða senda tölvupóst á hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is í síðasta lagi 20. maí nk.
Gera þarf grein fyrir staðsetningu og stærð/umfangi þess sem á að sækja.
Í hreinsunarátaki sveitarfélagsins dagana 15.-25. maí nk. verða ekki ílát fyrir þessar úrgangstegundir.
Umhverfis- og skipulagsdeild Hvalfjarðarsveitar