Fara í efni

Vorhreinsun 2025

Árleg vorhreinsun í Hvalfjarðarsveit verður samkvæmt neðangreindu og eru íbúar, sumarhúsaeigendur og rekstraraðilar hvattir til að taka til hjá sér fyrir sumarið. Almennt hefur vor- og sumartiltekt gengið vel og mælst vel fyrir og fólk hefur verið duglegt að nýta sér þessa þjónustu og vonumst við til að svo verði áfram.

Spilliefna- og raftækjabíll
Spilliefni og raftæki verða sótt að heimilum dagana 13.-15. maí nk.
Þjónustan er gjaldfrjáls og eru íbúar hvattir til að nýta sér hana.
Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu verða að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 433-8500 eða senda tölvupóst á hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is í síðasta lagi 12. maí nk.
Gera þarf grein fyrir staðsetningu og stærð/umfangi þess sem á að sækja.
Í hreinsunarátaki sveitarfélagsins dagana 16.-26. maí nk. verða ekki ílát fyrir þessar úrgangstegundir.

Á tímabilinu frá 16. maí til og með 26. maí verða gámar staðsettir í Melahverfi, Hlíðarbæ og á Innnesi (í námu gegnt afleggjara að Ytra-Hólmi 1).

Eftirfarandi gámar verða til staðar:

  • Gámur fyrir timbur.
  • Gámur fyrir járn og dekk.
  • Gámur fyrir gróðurúrgang.
  • Gámur fyrir almennan (óflokkaðan) úrgang.

Frá 1. júní – 31. ágúst gefst íbúum í dreifbýli kostur á að fá tvær gerðir af gámum til afnota í tvo sólarhringa.
Eftirfarandi gámar eru í boði, og þá þarf að panta með að minnsta kosti tveggja daga fyrirvara:

  • Gámur fyrir timbur.
  • Gámur fyrir járn og dekk.
  • Gámur fyrir gróðurúrgang.
  • Gámur fyrir almennan (óflokkaðan) úrgang.

Tímabil hreinsunarátaks í frístundabyggðum er frá 1. júní til 31. ágúst ár hvert og eru gámar í boði í 11 daga samfellt innan tímabilsins og getur forsvarsfólk frístundahverfa ákveðið tímasetningu í samráði við sveitarfélagið.
Eftirfarandi gámar eru í boði, og þá þarf að panta með a.m.k. viku fyrirvara:

  • Gámur fyrir timbur.
  • Gámur fyrir járn.
  • Gámur fyrir gróðurúrgang.

Allar pantanir þurfa að berast til Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða með tölvupósti á netfangið www. hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is.

Lögð er áhersla á að aðilar kynni sér reglur áður en sótt er um gáma en þær má sjá hér á á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is.

Umhverfis- og skipulagsdeild Hvalfjarðarsveitar