Urðarmelur malbikaður
06. júlí 2026
Þann 2. júlí sl. var unnið að malbikun Urðarmels sem er ný gata í Melahverfi.
Á svæðinu er gert ráð fyrir blandaðri íbúðabyggð með einbýlishúsum, parhúsum og raðhúsum.
Um er að ræða 3 einbýlishúsalóðir, 4 parhúsalóðir og 5 fjögurra íbúða raðhúsalóðir, eða samtals 12 lóðir fyrir 3 einbýlishús og 28 íbúðir í par- og raðhúsum.
Á kortasjá Hvalfjarðarsveitar má sjá lausar lóðir og nánari upplýsingar um lausar lóðir má sjá hér: