Fara í efni

Ungmennaþing Vesturlands 2026 haldið í Borgarnesi

Ungmennaþing Vesturlands var haldið á Hótel Borgarnesi dagana 25. til 27. september 2026.

Þar komu saman 41 ungmenni víðsvegar að af Vesturlandi til að ræða málefni sem brenna á ungu fólki og móta sameiginlega sýn á framtíð svæðisins.

Dagskrá þingsins einkenndist af líflegum umræðum, vinnustofum og samvinnu þátttakenda. Afrakstur þingsins var ályktun Ungmennaþings Vesturlands þar sem fram koma áherslur og tillögur ungmenna um málefni sem þau telja mikilvægt að fái aukið vægi í samfélaginu.

Á þingið mættu einnig alþingismenn og sveitarstjórnarfólk af Vesturlandi til samtals við þátttakendur. Ályktun þingsins var kynnt og rædd og skapaðist í kjölfarið opið og uppbyggilegt samtal milli ungmennanna og kjörinna fulltrúa. Þar fengu stjórnmálamenn tækifæri til að hlýða á sjónarmið ungs fólks og kynnast þeim verkefnum og áskorunum sem þau telja mikilvægt að horfa til á komandi árum.

Þingið tókst afar vel og sýndi skýrt fram á mikilvægi þess að skapa vettvang þar sem rödd ungs fólks fær að heyrast. Ljóst er að kjörnir fulltrúar fengu með sér fjölmörg verkefni og hugmyndir til frekari umræðu og úrvinnslu í sínu starfi.

Þegar ungmenni fá tækifæri til að eiga raunverulegt samtal við ákvörðunartökufólk verða til hugmyndir sem geta styrkt samfélagið allt. Ungmennaþingið er mikilvægur vettvangur fyrir slíka þátttöku og áhrif.

Samþykktar ályktanir Ungmennaþing Vesturlands 2026