Fara í efni

Kalastaðir - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 14. desember að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir frístundarbyggðina Birkihlíð í landi Kalastaða samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 Breyting á deiliskipulagi frístundarbyggðar í landi Kalastaða felur í sér breytingu á mænisstefnu í vestri hluta byggðarinnar og aðkomu að lóðum í samræmi við rauverulega aðkomu.

Kalastaðir-deiliskipulagsbreyting.

 Deiliskipulagstillagan er til sýnis á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar og einnig á heimasíðu sveitarfélagsins www.hvalfjardarsveit.is.

 Kynning verður á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar föstudaginn 7. janúar nk. á milli 10:00 – 12:00.

 Athugasemdum skal skilað til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3. 301 Akranesi, eða netfangið skipulag@hvalfjardarsveit.is merkt ”Birkihlíð”. fyrir 4. febrúar 2022.

Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar