Fara í efni

Snjómokstur í Hvalfjarðarsveit 2021-2022

Hvalfjarðarsveit og Vegagerðin hafa framlengt  samning við Miðfellsbúið  ehf vegna
snjómoksturs  í Hvalfjarðarsveit  til 20. janúar 2022.  Fyrirkomulagið varðandi
snjómokstur mun vera eins og síðastliðinn vetur.

Dreifbýli
Allt að fjórum sinnum á almanaksári greiðir Hvalfjarðarsveit fyrir snjómokstur  á heimreiðum íbúðarhúsa í dreifbýli þar sem föst búseta er.
Ábúendur skulu panta mokstur / hálkueyðingu með eins sólarhrings fyrirvara svo hægt sé að tryggja snjómokstur  eins og óskað er eftir.
Íbúar eldri en 67 ára og örorkulífeyrisþegar, m.v. 75% örorku geta leitað til sveitarfélagsins um mokstur  á heimreiðum umfram fjögur skipti. Fyrir slíka þjónustu þarf að greiða 50% af taxta viðkomandi verktaka. 

Hvalfjarðarsveit greiðir ekki kostnað vegna snjómoksturs  sem til hefur verið
stofnað án hennar samþykkis að undanskildu, ef beiðni um mokstur  kemur
frá lögreglu, slökkviliði, lækni eða sjúkraflutningsmönnum vegna neyðarflutninga, skal þá
strax sinna því.

Að gefnu tilefni eru íbúar vinsamlegast beðnir um að merkja þá staði þar sem verðmæti eru
undir snjó til þess að snjómokstursvélar rekist ekki utan í og valdi tjóni. Verktaki ber ekki
ábyrgð á tjóni ef snjómokstursvélar rekast í verðmæti sem eru á kafi í snjó og ekki sýnileg.

Hægt er að nálgast viðmiðunarreglur varðandi snjómokstur í Hvalfjarðarsveit, inn á
heimasíðu Hvalfjarðarsveitar. https://www.hvalfjardarsveit.is/is/thjonusta/umhverfismal/snjomokstur/snjomokstur-vidmidunarreglur

Hægt er að panta heimreiðamokstur / hálkueyðingu:
-á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is
-alla virka daga frá kl. 10-15 í síma 433-8500
-utan opnunartíma á netfangið hlynur@hvalfjardarsveit.is