Fara í efni

Skipulags- og umhverfisfulltrúi

Skipulags- og umhverfisfulltrúi

Laust er til umsóknar starf skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða 100% starf innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að stýra fjölbreyttum verkefnum í skipulags- og umhverfismálum sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Skipulags –og umhverfisfulltrúi hefur yfirumsjón með skipulags-, umhverfis- og náttúruverndarmálum sveitarfélagsins, þjónustar íbúa Hvalfjarðarsveitar á þeim málefnasviðum, er ráðgefandi fyrir sveitarstjórn, landbúnaðarnefnd og umhverfis,- skipulags- og náttúruverndarnefnd og vinnur skv. samþykktum þeirra. Eftirfarandi heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar:

·         Skipulagsgerð og útgáfa framkvæmdaleyfa.

·         Umsjón með fráveitumálum, umferðar- og samgöngumálum.

·         Umsjón með umhverfis- og hreinlætismálum sveitarfélagsins.

·         Umsjón með náttúruverndarmálum í sveitarfélaginu.

·         Umsjón með opnum svæðum, gróðursetningu og uppgræðslu.

·         Umsjón með merkingu og kortlagningu útivistarsvæða og gönguleiða í sveitarfélaginu.

·         Umsjón verkefna er varða gróðurvernd, fjallskil, búfjárgirðingar og refa- og minkaeyðingu.

·         Gerð starfs- rekstrar-, og framkvæmdaáætlana fyrir þá málaflokka sem undir hann heyra.

Skipulags- og umhverfisfulltrúi ber ábyrgð á meðferð og varðveislu gagna, úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og þjónustugæða.  Skipulags- og umhverfisfulltrúi er starfsmaður umhverfis,- skipulags,- og náttúruverndarnefndar og landbúnaðarnefndar.

Almennt stjórnunarsvið:
Skipulags- og umhverfisfulltrúi starfar og stjórnar í samræmi við lög og reglugerðir sem gilda um landbúnaðarmál og skipulags- og umhverfismál sveitarfélaga. Einnig eftir lögum er varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu, samkvæmt markmiðum sveitarstjórnar og í samræmi við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar á hverjum tíma.

Menntunar- og hæfniskröfur:

·         Háskólamenntun og viðeigandi réttindi til að annast skipulagsgerð skv. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er skilyrði.

·         Þekking og reynsla af skipulags- og umhverfismálum er æskileg.

·         Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu er kostur.

·         Reynsla af þátttöku í stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er æskileg.

·         Reynsla af stjórnun, rekstri og þróunarstarfi er kostur.

·         Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulagshæfileika.

·         Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

·         Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.

Kjör:
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags  og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Framlengdur umsóknarfrestur um starf skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar er til og með 9. ágúst 2018.  
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. 
Umsóknir skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í síma 433-8500 og á netfanginu linda@hvalfjardarsveit.is

 

Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með um 660 íbúa. Náttúrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar eru næg og fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt skólastarf.

Mikil uppbygging hefur átt sér stað á iðnaðarsvæðinu við Grundartanga með fjölmörgum iðnfyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi við nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar má finna á www.hvalfjardarsveit.is