Fara í efni

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára barna

Opið er fyrir umsóknir um húsnæðisstuðning vegna 15-17 ára barna.

Veita skal sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra eða forsjáraðila 15-17 ára barna sem leigja herbergi, eru á heimavist eða á námsgörðum vegna náms fjarri lögheimili. Sérstakur húsnæðisstuðningur skal vera óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila.

Reglur um húnæðisstuðning má sjá hér

Rafræna umsókn á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar má sjá hér.

Með umsókninni þurfa að fylgja eftirfarandi gögn.
1) Staðfesting á námi barns frá viðkomandi menntastofnun.
2) Afrit af húsaleigusamningi.

Nánari upplýsingar veiti Félagsmálastjóri Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða á felagsmalastjori@hvalfjardarsveit.is