Fara í efni

Samfélagsmiðstöðin Heiðarborg - niðurstöður samráðs og tillögur ráðgjafa

Í september 2025 samþykkti sveitarstjórn að semja við Guðmundu Ólafsdóttur um verkefnastjórn við mótun heildarsýnar fyrir Heiðarborg sem samfélagsmiðstöð.

Hér má sjá niðurstöður samráðs, tillögur ráðgjafa, næstu skref og fleira.

Eins og fram kemur í kynningunni fela næstu skref í sér að vinna að skipulagi nýs þreksalar. Stefnt er að því að kynna fyrirhugaða uppbyggingu hans í mars–apríl 2026. Í kjölfarið, og að hluta til samhliða, verður unnið að skipulagi eldri rýma Heiðarborgar í samstarfi við arkitekta. Þar verður ákveðið hvernig rýmin verða útfærð, með hliðsjón af niðurstöðum samráðs og tillögum ráðgjafa. Gert er ráð fyrir að kynna skipulag eldri hluta Heiðarborgar í maí 2026.

Samhliða þessu er unnið að skipulagi á rekstri samfélagsmiðstöðvarinnar, þar á meðal opnunartíma, mönnun og öðru sem því tengist.

Áætlað er að framkvæmdum við nýtt íþróttahús ljúki í ágúst 2026. Þá verður opnaður íþróttasalur, móttaka, stoðrými, búningsklefar og nýr þreksalur. Ný pottaaðstaða verður tekin í notkun nokkrum vikum síðar.

Að lokum eru öllum þeim sem tóku þátt í samráðsferlinu færðar bestu þakkir.