Nýkjörin sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
Nýkjörin sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur nú formlega tekið til starfa og hélt sinn fyrsta fund þann 4. júní 2026 sem var jafnframt 444. fundur sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Fundurinn var haldinn í stjórnsýsluhúsinu að Innrimel 3.
Á fundinum var m.a. kosið í embætti oddvita sveitarstjórnar og ýmsar nefndir sveitarfélagsins.
Haraldur Benediktsson var kjörin oddviti sveitarstjórnar og Guðrún Sigríður Gísladóttir varaoddviti. Nánar má sjá nefndarskipan í fundargerð 444. fundar sveitarstjórnar, sjá slóð á fundargerðina hér: https://www.hvalfjardarsveit.is/is/stjornsysla/fundargerdir-og-skyrslur/allar-fundargerdir/sveitarstjorn/1585
Á fundinum var einnig samþykktur samhljóða ráðningarsamningur við Bjarka Þorsteinsson sem mun gegna starfi sveitarstjóra Hvalfjarðarsveitar.
Einnig var samþykkt að fastur fundartími sveitarstjórnar verði annan og fjórða hvern fimmtudag kl. 15:00.